„Verð mjög hrærð yfir þessu öllu“ „Ég er full bjartsýni og hef ofurtrú á stelpunum okkar,“ segir Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, fyrir úrslitaleikinn í Utrecht í kvöld þar sem það ræðst hvort Holland eða Ísland kemst beint á HM í Eyjaálfu næsta sumar. 6.9.2022 10:30
Mjög nálægt því að hætta en gæti komist á HM í kvöld „Það væri svakalegt. Bara draumur,“ segir Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir um möguleikann á að feta í fótspor kærustu sinnar, kanadíska landsliðsmarkvarðarins Erin McLeod, með því að vinna sig í kvöld inn á HM í fótbolta í fyrsta sinn. 6.9.2022 09:30
KSÍ veitir áfengi ef vel fer í kvöld Ef að tilefni verður til þess að opna kampavínsflösku í kvöld, til að fagna fyrsta farseðli íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta á heimsmeistaramót, þá munu stelpurnar okkar mögulega gera það í boði Knattspyrnusambands Íslands. 6.9.2022 08:00
„Þroskast og breyst mikið frá því síðast“ Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir segir að Ísland eigi mikla möguleika á að tryggja sig inn á HM kvenna í fótbolta í fyrsta sinn á morgun, með góðum úrslitum gegn Hollandi í Utrecht. 5.9.2022 17:46
Sjáðu blaðamannafundinn fyrir leikinn mikilvæga Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta leikur á morgun einn sinn mikilvægasta leik frá upphafi þegar liðið spilar við Holland um öruggt sæti á HM. 5.9.2022 14:11
„Skiptir miklu máli að kippa henni út úr leiknum“ Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í vörn íslenska landsliðsins fá afar krefjandi verkefni annað kvöld þegar þær reyna að verjast hollenska landsliðinu og þar á meðal hinni mögnuðu Vivianne Miedema. 5.9.2022 12:31
„Vinkonur síðan að við vorum ungar þannig að við fögnum þessu bara“ Miðverðirnir Ingibjörg Sigurðardóttir og Guðrún Arnardóttir eiga í afar jafnri samkeppni um stöðu í vörn íslenska landsliðsins sem mætir Hollandi annað kvöld, í úrslitaleik um sæti á HM í fótbolta. 5.9.2022 10:30
Utan vallar: Sýnið þeim að tréklossarnir séu eini munurinn Núna er tækifærið. Ef að Ísland á einhvern tímann að komast á sjálft heimsmeistaramótið í knattspyrnu kvenna þá er vonin betri nú en nokkru sinni fyrr, þó að stórt ljón standi í veginum. 5.9.2022 09:01
„Það væri draumur að rætast“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta æfði við fínar aðstæður í sól og þægilegum hita nálægt borginni Utrecht í dag, í aðdraganda stórleiksins við Holland á þriðjudag sem ræður því hvort liðanna fær öruggan farseðil á HM næsta sumar. 4.9.2022 21:46
Stelpurnar okkar enn nær HM án þess að hreyfa legg eða lið Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er þessa stundina á leiðinni til Utrecht í Hollandi þar sem liðið mætir heimakonum á þriðjudagskvöld í úrslitaleik um öruggt sæti á HM. HM-draumurinn er orðinn mjög raunverulegur. 4.9.2022 11:00