Warzone og Quiz hjá Babe Patrol Stelpurnar í Babe Patrol ætla að verja kvöldinu í al Mazrah í Warzone 2. Þar munu þær skjóta mann og annan og halda svo spurningakeppni. 7.12.2022 20:30
Heche var ekki undir áhrifum fíkniefna Réttarmeinafræðingur Los Angeles hefur staðfest að leikkonan Anna Heche var ekki undir áhrifum fíkniefna þegar hún lenti í bílslysi í sumar. Hún slasaðist alvarlega í slysinu og dó skömmu síðar, eftir að hafa verið í dái. Hún var 53 ára gömul. 7.12.2022 16:41
Mastodon innbyggður í Vivaldi Vivaldi er orðinn fyrsti vafrinn sem er með samfélagsmiðilinn Mastodon innbyggðan í kóða vafrans. Það er meðal annarra breytinga sem gerðar hafa verið á vafranum. 7.12.2022 15:02
Fyrirtæki Trumps dæmt vegna skattsvika Trump Organization, fyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, var í gær dæmt sekt um skattsvik og aðra glæpi. Kviðdómendur í Hæstarétti Manhattan sakfelldu fyrirtækið í öllum sautján ákæruliðum málsins. 7.12.2022 13:45
Vildu koma prins til valda í Þýskalandi Fólkið sem handtekið var í Þýskalandi í morgun og er grunað um skipulagningu valdaráns ætlaði að reyna að koma manni úr gamalla þýskri konungsætt til valda. Sá heitir Hinrik XIII P.R. en annar maður sem heitir Ruediger v.P. átti að leiða herafla hins nýja Þýskalands. 7.12.2022 12:08
Flugvélahamur heyrir brátt sögunni til í Evrópu Hinn svokallaði flugvélahamur (e. Airplane mode) mun brátt heyra sögunni til, í það minnsta í Evrópu, og munu flugfarþegar geta vafrað um á netinu og hringt í háloftunum. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að flugfélög geti veitt farþegum aðgang að 5G nettengingu í flugi. 7.12.2022 11:19
Voru ekki beðin um að fresta undirskrift: „Sirkus sem heldur bara áfram“ Formaður Framsýnar segir ekki rétt að forkólfar Framsýnar á Húsavík hafi verið beðnir um að fresta því að skrifa undir samning Starfsgreinasambandsins við Samtök Atvinnulífisins. Fulltrúarnir hafi einfaldlega ekki komist suður til að skrifa undir. Umræða um að Framsýn hafi ekki ætlað að vera með sé hluti af tilraunum fólks til að grafa undan samningunum. 7.12.2022 10:14
Ákært fyrir hatursglæpi vegna árásarinnar á Club Q Saksóknarar í Colorado hafa ákært árásarmanninn sem skaut fimm til bana og særði sautján á Club Q, skemmtistað fyrir hinsegin fólk, í Colorado Springs í síðasta mánuði í 305 ákærum og þar á meðal fyrir hatursglæpi og morð. 6.12.2022 17:06
Bandaríski herinn skiptir út frægum þyrlum Forsvarsmenn bandaríska hersins gerðu í gær samkomulag við eigendur fyrirtækisins Bell um að skipta út öllum UH-60 Black Hawk þyrlum hersins. Bell mun samkvæmt samningnum framleiða frumgerð af farartækinu V-280, sem er nokkurs konar blendingur þyrlu og flugvélar, fyrir árið 2028. 6.12.2022 12:18
Kínverskir tölvuþrjótar grunaðir um að stela milljörðum af Covid-styrkjum Kínverskir tölvuþrjótar sem taldir eru tengjast yfirvöldum í Kína, rændu milljónum dala af Covid-styrkjum í Bandaríkjunum. Þeir eru sagðir hafa rænt minnst tuttugu milljónum dala af atvinnuleysisbótum og stuðningslánum til fyrirtækja í mörgum ríkjum Bandaríkjanna. 6.12.2022 11:25