Repjuolía á íslenska skipaflotann Fyrsta tilraunaræktun á repju til olíuframleiðslu á Íslandi hófst 2009 á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum og hefur sú tilraun gefist vel. 19.5.2019 19:15
Þriggja milljarða króna hjúkrunarheimili byggt á Selfossi Íbúar í Árnessýslu hafa beðið nokkuð lengi eftir að framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi hefjist en hálfgert neyðarástand skapaðist eftir að dvalar og hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri og Blesastöðum á Skeiðum var lokað fyrir nokkrum árum. 19.5.2019 13:00
Ákall til stjórnvalda um stórátak í vegamálum Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri í Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur miklar áhyggjur af vegamálum innan sveitarfélagsins í kjölfar rútuslyssins á fimmtudaginn. 18.5.2019 12:15
Blesótt lamb með stóra og breiða blesu Lamb með risa blesu á nefinu kom nýlega í heiminn í fjárhúsinu á bænum Neðri - Hundadal í Suðurdölum í Dalasýslu. 15.5.2019 16:30
Krummalaupur á Selfossi með sex ungum í beinni útsendingu Þetta er fimmta vorið í röð sem krummapar kemur uppi laupi ofan við skilti Byko á Selfossi. Misjafn hefur verið eftir árum hvað ungarnir eru margir en nú hafa öll met verið slegið því þeir eru sex talsins. Vefmyndavél er við laupinn þannig að það er hægt að fylgjast með foreldrunum fóðra ungana sína og sjá hvernig þeir braggast allan sólarhringinn. 12.5.2019 19:30
Fyrsti mygluleitarhundur landsins tekin til starfa "Hann sýnir mér hvar myglan er, hann stendur kyrr og bendir og það gefur okkur vísbendingu um hvar við getum þá leitað af myglunni“, segir Jóhanna Þorbjörg Magnúsdóttir, hundaþjálfari, sem á fyrsta mygluleitarhund landsins. 11.5.2019 19:30
Salka bar fimm hressum og heilbrigðum lömbum "Þetta eru fínustu lömb, hress og heilbrigð. Burðurinn gekk ágætlega hjá henni, það komu reyndar tvö á afturfótunum, það var eitthvað sem við leystum auðveldlega. Þetta eru sæðingalömb undan sæðingahrúti, þannig að eitthvað af þeim verður líklega í ásetningshópnum í haust, segir Tómas Jensson,“ bóndi á Teigi í Fljótshlíð. 7.5.2019 20:00
Hárgreiðslufólk kolefnisjafnar ferðalag sitt til Íslands með gróðursetningu Rútur streyma nú í Þorláksskóga með þátttakendur hárgreiðsluráðstefnunnar og munu gera næstu daga þar sem allir þátttakendur fá að setja niður stiklinga í sandinn við Þorlákshöfn, sem verða svo að myndarlegum plöntum. Ætlunin er að planta í fimm þúsund hektara á svæðinu í þeim tilgangi að rækta upp skóg á næstu árum. 5.5.2019 20:15
Harmonika er stórskemmtilegt hljóðfæri Þórður og Haraldur eru báðir sammála um að harmonikka sé stórskemmtilegt hljóðfæri og þeir hafa trú á framtíð hljóðfærisins, enda eru félögin þeirra bókuð á nokkra sameiginlega tónleika í sumar. 5.5.2019 19:45
Eini sveppabóndi landsins segist vera í tísku í dag "Já, þetta er hollustu bylgjan, við hentum vel inn í vegan og keto líka, þannig að við erum í tísku í dag, það er gaman að vera í tísku því að þetta er undirstaðan fyrir því að framleiða góða vöru að hún seljist vel, við erum í þeirri stöðu núna“, segir Georg Ottósson, eini sveppabóndi landsins og eigandi Flúðasveppa á Flúðum. 4.5.2019 19:30