Komu í veg fyrir 10.000 manna brúðkaup í New York Heilbrigðisyfirvöld í New York komu í veg fyrir að samfélag strangtrúaðra gyðinga í Brooklyn héldi brúðkaupsveislu fyrir allt að 10.000 manns í dag. Fimmtíu manns samkomutakmarkanir eru í gildi í borginni vegna kórónuveirufaraldursins en strangtrúaðir gyðingar hafa amast gegn reglunum. 19.10.2020 16:27
Talsvert magn olíu í hreinsistöð í Klettagörðum Olía hefur borist í töluverðu magni inn í hreinsistöð Veitna í Klettagörðum í Reykjavík. Erfitt er sagt að rekja uppruna olíumengunarinnar en hreinsistöðin tekur við fráveituvatni frá stórum hluta höfuðborgarsvæðisins. 19.10.2020 15:30
Órói á ritstjórn götublaðs eftir umfjöllun um son Biden Starfsmenn bandaríska götublaðsins New York Post eru sumir sagðir fullir efasemda um trúverðugleika gagna og heimildarmanna umfjöllunar þess um son Joe Biden, forsetaframbjóðanda demókrata, í síðustu viku. 19.10.2020 14:14
Vilja taka 5G-samsæriskenningar fastari tökum Fimmtán aðildarríki Evrópusambandsins hvetja til þess að sambandið móti áætlun til þess að takast á við upplýsingafals um 5G-væðingu fjarskiptakerfa. Annars telja þau að efnahagsbata og þróun fjarskiptakerfi verði stefnt í voða. 19.10.2020 13:32
Húsleit hjá meintum íslömskum öfgamönnum eftir hrottalegt morð Franska lögreglan gerði húsleit á heimilum tuga grunaðra íslamskra öfgamanna í morgun í kjölfar hrottalegs morðs á kennara í úthverfi Parísar á föstudag. Tugir samtaka múslima eru einnig sagðir til rannsóknar. 19.10.2020 12:46
Réttað yfir síðasta leiðtoga hryðjuverkasamtakanna ETA Síðasti þekkti leiðtogi basknesku hryðjuverkasamtakanna ETA kemur fyrir dómara í Frakklandi í dag þar sem hann er ákærður fyrir aðild að hryðjuverkum. Hann segist breyttur maður og biðst afsökunar á mannsdrápum, með fyrirvara. 19.10.2020 12:08
Fauci kom ekkert á óvart að Trump smitaðist Veikindi Donalds Trump Bandaríkjaforseta af völdum kórónuveirunnar komu Anthony Fauci, helsta sóttvarnasérfræðingi Bandaríkjastjórnar, ekki ögn á óvart eftir að hann sé Trump taka þátt í viðburði í Hvíta húsinu þar sem sóttvarnatilmæli voru virt að vettugi. 19.10.2020 11:12
Rannsaka hvort tölvupóstar séu hluti af upplýsingahernaði Rússa Bandaríska alríkislögreglan FBI er sögð rannsaka hvort að tölvupóstar sem persónulegur lögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta lét götublaði í té séu hluti af upplýsingahernaði Rússa í aðdraganda kosninga í næsta mánuði. 16.10.2020 23:31
Saka mexíkóska ráðherrann um mútuþægni og stórfellt fíkniefnasmygl Bandarískir saksóknarar saka fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó um að hafa aðstoðað við smygl á þúsundum kílóa af fíkniefnum til Bandaríkjanna gegn mútum. 16.10.2020 23:19
Segja ræningjann hafa sprittað sig fyrir ránið Maður sem framdi vopnað rán á veitingastað í vesturbæ Reykjavíkur í dag er sagður hafa sprittað sig „í bak og fyrir“ áður en hann lét til skarar skríða. Starfsmenn staðarins sakaði ekki og lofa forsvarsmenn fyrirtækisins þá fyrir að hafa sýnt yfirvegun. 16.10.2020 22:51