Enn ekki gengið frá samningum þrátt fyrir að fjármögnun hafi verið tryggð Enn hefur ekki verið gengið frá samningum um rekstur 90 hjúkrunarrýma á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að fjármögnun þeirra hafi verið tryggð fyrir áramót. Vonir stóðu til að hægt yrði að taka hjúkrunarrýmin í notkun í sumar, sem hefði létt verulega á hinum margumrædda „fráflæðisvanda“ á Landspítalanum. 24.8.2021 07:20
Ferðin yfir nýja Ölfusárbrú mun kosta 400 til 700 krónur Framkvæmdir við nýja brú yfir Ölfusá verða boðnar út fyrir áramót og hefjast á fyrri hluta næsta árs. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. 24.8.2021 06:50
Starfsmönnum Play boðið 50 prósent lægra starfshlutfall í vetur Stjórnendur Play funduðu með starfsmönnum félagsins í síðustu viku en á fundinum var meðal annars rædd sú tillaga að flugmenn og flugliðar tækju á sig allt að 50 prósent lækkun á starfshlutfalli gegn fastráðningu í vetur. 24.8.2021 06:24
Ákvörðunin um að yfirgefa Afganistan byggð á „hálfvitalegum“ pólitískum frasa Ákvörðun Bandaríkjamanna um að yfirgefa Afganistan var röng og drifin af „hálfvitalegum“ pólitískum frasa um að binda enda á svokölluð „eilífðarstríð“ (e. forever wars). Þetta segir Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. 23.8.2021 08:24
Aflífun 154 katta vekur sorg og reiði í Taívan Mikil reiði greip um sig á samfélagsmiðlum í Taívan eftir að yfirvöld greindu frá því að 154 kettir hefðu verið aflífaðir eftir að þeir fundust á fiskibát. Um var að ræða hreinræktaða ketti sem smygla átti inn í landið. 23.8.2021 07:20
Bólusetningar barna hefjast í Laugardalshöll Bólusetningar barna á aldrinum 12 til 15 ára hefjast í Laugardalshöll í dag en áætlað er að um 10 þúsund börn á höfuðborgarsvæðinu verði bólusett þar í dag og á morgun. 23.8.2021 06:30
Fjöldi fasteignapappíra inniheldur enn rasísk ákvæði Yfirvöld og samtök víðsvegar í Bandaríkjunum vinna nú að því að auðvelda einstaklingum að fá rasískar klásúlur í fasteignapappírum numdar brott. 21.8.2021 07:04
Ever Given siglir aftur um Súes-skurðinn en með dráttarbáta með sér Gámaflutningaskipið Ever Given er nú á leið sinni í Rauðahaf, sem leið liggur um Súes-skurðinn. Vel er fylgst með skipinu, þar sem það komst í heimsfréttirnar fyrir að festast í skurðinum fyrr á þessu ári. 20.8.2021 14:33
Veitingamenn segja framtíðarsýn Þórólfs „blauta tusku“ í andlitið Framtíðarýn sóttvarnalæknis er „blaut tuska“ framan í stóran hluta veitingamarkaðarins, sem hefur verið meira og minna óstarfhæfur frá því að kórónuveirufaraldurinn barst hingað til lands. 20.8.2021 12:45
Segir umræðuna um leghálskrabbamein hafa snúist um hræðsluáróður Konur sem koma í leghálsskimun þurfa nú að bíða í sex vikur, jafnvel fjórar, eftir niðurstöðum. Þetta segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Fréttablaðið. 20.8.2021 07:52