Er stolt „basic bitch“ Athafnakonan og áhrifavaldurinn Birgitta Líf hefur gaman að fjölbreytileika tískunnar en er alltaf samkvæm sjálfri sér í klæðaburði. Hún hefur sérstaklega gaman af því að klæðast síðum og þröngum kjólum með óléttukúluna sína og setti sér markmið að klæðast ekki bara jogginggöllum á meðgöngunni. Birgitta Líf er viðmælandi í Tískutali. 18.11.2023 11:31
„Alls konar blessanir í slæmu hlutunum“ Útvarpsmaðurinn Axel Birgisson sér glasið hálf fullt í lífinu og er gjarnan lýst sem miklum stemningsmanni. Lífið tók skarpa U-beygju í sumar þegar Axel greindist með illkynja æxli en hann segir lífsreynsluna hafa kennt sér heilmikið. Blaðamaður settist niður með Axel og ræddi við hann um lífið, ferilinn, tónlistina, ástina, vináttuna og margt fleira. 18.11.2023 07:00
Nefndi verk um sjálfsblekkingu og græðgi 2008 fyrir hálfri öld „Á fyrstu sýningunni minni árið 1976 þá skíri ég þessar myndir 2008 - 2010, fyrir tæpum fimmtíu árum. Myndirnar eru dökkar, sjálfsblekkingin er mikil og þær heita nákvæmlega eftir árinu sem hrunið er,“ segir grafíkerinn og kolamálarinn Ragnheiður Jónsdóttir. Hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 17.11.2023 07:01
„Minnir áhorfandann á að við þurfum ekki að hlusta á allt“ „Ég byrjaði mjög snemma að hafa áhuga á myndlist, eflaust um fjögurra ára aldur. Ég var mikill dundari og var alltaf að lita og teikna. Ég man ekki eftir mér öðruvísi,“ segir listakonan og skartgripahönnuðurinn Hendrikka Waage, sem stendur fyrir listasýningunni Valkostir samtímans. Sýningin er opin á föstudag og laugardag í Hannesarholti. 15.11.2023 11:01
Ekki þurr þráður í brúðkaupi Lóu Pind og Jónasar „Dagurinn var gjörsamlega fullkominn,“ segir sjónvarpskonan og hin nýgifta Lóa Pind sem giftist Jónasi Valdimarssyni við hátíðlega og fjöruga athöfn í Iðnó síðastliðið laugardagskvöld, þann 11.11.23. Gestir felldu gleðitár og var dansað langt fram eftir kvöldi. 14.11.2023 09:36
„Ég er ekkert að slæpast“ „Ég er algjör fréttafíkill, ég hlusta á hvern einasta fréttatíma,“ segir hin 90 ára Ragnheiður Jónsdóttir, grafíker og kolamálari, sem stendur fyrir sýningunni Kosmos/Kaos á Listasafni Árnesinga. Ragnheiður er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 14.11.2023 07:01
Verða sængur og koddar viðriðin næsta Met Gala? Fyrsta mánudag maí mánaðar koma stjörnurnar árlega saman í glæsilegum klæðnaði í tilefni af viðburðinum Met Gala, sem er gjarnan talinn stærsti tískuviðburður ársins. 13.11.2023 13:30
Stjörnulífið: Tónleikar, glamúr, óp og skvísulæti Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið. Birgitta Líf leyfði óléttubumbunni að skína skært í London, stórsöngkonur landsins komu saman á Tinu Turner heiðurstónleikum í Hörpu og Gummi Kíró skellti sér í sunnudagspelsinn. 13.11.2023 11:00
Vilja ekki láta aukna velgengni aftra sér „Við erum búin að þróa með okkur meiri fullkomnunaráráttu,“ segir danssveitin Inspector Spacetime sem hefur verið að gera góða hluti í íslensku tónlistarsenunni síðustu misseri. 11.11.2023 17:00
„Góður stíll hefur ekkert að gera með pening“ Athafnakonan, töffarinn og ofurskvísan Anna Margrét Jónsdóttir hefur alltaf kunnað að meta góð efni enda er hún alin upp af saumakonu. Hún segir stílinn sinn lítið hafa breyst í gegnum tíðina þó að fataskápurinn búi ekki yfir jafn mörgum löðrandi kynþokkafullum flíkum og áður en hefur engin boð og bönn í tískunni. Anna Margrét er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 11.11.2023 11:30
Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Viðskipti innlent