Ósammála nefndinni og biðst lausnar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur fallist á beiðni Gunnars Jakobssonar um lausn úr embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika í Seðlabanka Íslands. Gunnar hefur einn viljað lækka stýrivexti á tveimur fundum peningastefnunefndar í röð. Hann hefur þegið starfstilboð erlendis frá. 5.4.2024 16:19
Hlaut dóm á meðan hann sat í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásar Mohamad Kourani, sýrlenskur karlmaður sem ítrekað hefur komist í kast við lögin, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna stunguárásar í OK Market í Valshverfinu í þann 7. mars. Sléttri viku eftir árásina var hann dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og fleiri brot. 5.4.2024 16:10
Svona var fyrsta viðtal Katrínar sem forsetaframbjóðandi Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, veitir fjölmiðlum viðtöl í Hörpu klukkan 14. 5.4.2024 13:49
Katrín gefur kost á sér Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til embættis forseta Íslands. 5.4.2024 13:06
Stjórnarformaðurinn getur ekki tjáð sig Arnar Þór Másson, stjórnarformaður Marels, segist ekki geta tjáð sig um samþykkt á yfirtökutilboði JBT í Marel. 5.4.2024 12:21
Katrín hafi enn ekki ákveðið sig Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna, segir forsætisráðherra ekki enn hafa tilkynnt ákvörðun sína um mögulegt forsetaframboð. 5.4.2024 11:49
Þarf að afhenda reikninga lögmannsstofunnar sem hefur malað gull Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verið gert að afhenda Frigusi II, sem lengi hefur staðið í stappi við ríkið í Lindarhvolsmálinu svokallaða, reikninga frá lögmannsstofunni Íslögum án yfirstrikana. Frá ársbyrjun 2018 hefur ráðuneytið greitt stofunni áttatíu milljónir króna. 4.4.2024 17:00
Síðasta vígi norrænna seðla fallið Landsbanki Íslands hefur hætt kaupum og sölu á norskum krónum og mun frá og með 3. maí 2024 hætta að kaupa og selja sænskar eða danskar krónur. 4.4.2024 13:54
Enn bólar ekkert á þjófunum og rannsókn í fullum gangi Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi sem fer fyrir rannsókn á stórtækum þjófnaði í Hamraborg, segir þjófana enn ófundna og að rannsókn málsins sé í fullum gangi. 4.4.2024 13:39
Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Verslunarrisinn Amazon hefur ákveðið að hætta notkun tæknilausnar í verslunum sínum, sem gerði viðskiptavinum kleift að taka hluti úr hillunum og einfaldlega labba út. Lausnin er sögð byggð á vinnu um eitt þúsund indverskra láglaunaverkamanna í stað gervigreindar. 4.4.2024 12:17