Varafréttastjóri

Árni Sæberg

Árni er varafréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Ég myndi segja að ég væri burðar­dýr“

Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist hafa fengið áfall þegar hann tók við flöskum af amfetamínbasa í Bremerhaven í Þýskalandi. Honum hafi verið tjáð að um sjö lítra af efnum yrði að ræða en þeir reyndust fjórtán. Í hita leiksins hafi ekki verið um annað að ræða en að taka allar flöskurnar, hann hafi verið að verða seinn í vinnuna. 

Upp­nám í Dettifossmálinu vegna ó­vænts gagns

Verjandi Sævars Hilmarssonar, sem er einn ákærðu í Dettifossmálinu svokallaða, mótmælti framlagningu nýrra gagna harðlega þegar þinghald hófst í málinu. Um klukkustundar töf varð á upphafi aðalmeðferðar.

Aðal­með­ferð hafin í Detti­fossmálinu

Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur þeim Sævari Erni Hilmarssyni, Kastriot Pepaj og tveimur skipverjum á Dettifossi, vegna umfangsmikils fíkniefnasmygsl með skipinu, er hafin.

Skipu­leggjandi smygls hand­tekinn á Spáni og á­kærður hér

Karlmaður frá Dóminíska lýðveldinu var ákærður í sumar fyrir að hafa skipulagt tvo smyglleiðangra frá Spáni til Íslands, annars vegar í gegnum Þýskaland og hins vegar í gegnum Sviss. Burðardýr í málunum hafa þegar hlotið þriggja ára og 21 mánaða dóma fyrir smyglið. Maðurinn var einn 24 handtekinna í umfangsmikilli aðgerð fjölþjóðlegs lögregluliðs.

„Það eru gríðar­lega miklir hags­munir í húfi“

Innviðaráðherra segir boðað verkfall flugvirkja hjá Icelandair alvarlegt mál og að algjört grundvallaratriði sé að deiluaðilar finni lausn á deilunni áður en til verkfalls kemur. Þó hafi möguleikinn á því að setja lög á verkfall flugvirkja ekki komið til umræðu.

Ás­mundur skipaður for­seti

Ásmundur Helgason hefur verið skipaður forseti Félagsdóms en hann var áður varaforseti dómsins. Björn L. Bergsson hefur verið skipaður varaforseti eftir að hafa gegnt embætti dómara við Félagsdóm.

Tæp­lega 50 milljarða halli hins opin­bera á öðrum fjórðungi

Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, hafi verið neikvæð um 48,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2026 eða sem nemur 3,8 prósentum af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á öðrum ársfjórðungi 2025 3,0 prósentum af vergri landsframleiðslu þess ársfjórðungs.

Hart tekist á um fjár­lögin: „Hvað er að þessu liði?“

Fjármála- og efnahagsráðherra var ómyrkur í máli þegar fjárlagafrumvarp hans var rætt á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í morgun. Hann sakaði fyrri ríkisstjórnir um að hafa eytt um efni fram allt frá árinu 2019 og komið ríkissjóði í 800 milljarða króna mínus. „Hvað er að þessu liði?“ spurði hann meðal annars.

Sjá meira