West Ham United

West Ham United

Fréttir af enska fótboltaliðinu West Ham United FC frá London.

Fréttamynd

West Ham kvartar til dómaranefndar

Forráðamenn West Ham munu hafa samband við dómaranefnd ensku deildanna í ljósi jöfnunarmarks liðsins sem dæmt var af undir lok 1-0 taps fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið gæti haft mikið að segja um bæði titilbaráttuna sem og vonir West Ham um að halda sæti liðsins í deildinni.

Enski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Tap West Ham gefur Tottenham von

Brentford vann langþráðan sigur eftir dræmt gengi, 3-0 á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Brentford komst í Evrópusæti en West Ham gæti farið í fallsæti á morgun vegna úrslitanna.

Enski boltinn
Fréttamynd

Frjálsíþróttastjarnan gerði grín að West Ham

Breska frjálsíþróttakonan Keely Hodgkinson er ein stærsta íþróttastjarna Breta en hún stóðst ekki mátið að skjóta á enska úrvalsdeildarfélagið West Ham þegar fréttist af því að fótboltafélagið stæði í vegi fyrir að HM í frjálsum yrði haldið í London.

Enski boltinn
Fréttamynd

Mörkin úr enska: Sex­tán ára skrifaði söguna með Arsenal

Gærdagurinn var sögulegur fyrir Max Dowman og Arsenal. Þessi sextán ára strákur varð yngsti markaskorari sögunnar í ensku úrvalsdeildinni er hann skoraði seinna mark Arsenal í sigri gegn Everton. Toppliðin áttu bæði leik í gær og þá var Anthony Gordon hetja Newcastle gegn Chelsea. 

Enski boltinn
Fréttamynd

Aldrei spurning á Anfield

Liverpool vann 5-2 sigur á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Anfield. Liðið vinnur þar með þriðja sigurinn í deildinni í röð.

Enski boltinn
Fréttamynd

Stál­heppnir gegn C-deildarliðinu

West Ham skreið áfram í 16-liða úrslit FA-bikarsins í fótbolta í fyrsta leik dagsins með 1-0 sigri á C-deildarliði Burton Albion eftir framlengdan leik. Makalaust var að Burton-liðum hafi ekki tekist að jafna leikinn.

Enski boltinn
Fréttamynd

Dagar Frank hjá Tottenham taldir?

West Ham United vann Lundúnaslag dagsins í ensku úrvalsdeildinni gegn Tottenham í leik sem gæti markað endalok stjóratíðar Thomas Frank hjá Tottenham. Lokatölur 2-1 sigur West Ham.

Enski boltinn
  • «
  • 1
  • 2