Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2026 16:04 Callum Wilson fagnar með stuðningsmönnum West Ham United eftir að hafa skorað sigurmarkið gegn Everton. getty/Warren Little Þrátt fyrir að vinna loks sinn fyrsta deildarleik á árinu 2026 í dag er Tottenham enn í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. Sigurmark Callums Wilson fyrir West Ham United gegn Everton skyggði á gleði Tottenham-manna.
Fyrir leiki dagsins var Spurs í fallsæti og hafði ekki unnið leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu ári. Lengi vel benti lítið til þess að þessari löngu bið Tottenham-manna lyki á Molineux í dag. En þegar átta mínútur voru til leiksloka skoraði Joao Palhinha eftir hornspyrnu. Antonin Kinsky bjargaði Tottenham svo í uppbótartíma þegar hann varði aukaspyrnu frá Joao Gomes. Joao Palhinha skoraði eina markið í leik Wolves og Tottenham.getty/Andrew Kearns Sigurinn dugði Spurs þó ekki til að komast upp úr fallsæti því West Ham vann dramatískan sigur á Everton á heimavelli, 2-1, á sama tíma. Tomás Soucek kom West Ham yfir á 51. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Jarrods Bowen. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka jafnaði Kiernan Dewsbury-Hall fyrir Everton og stuðningsmenn Tottenham glöddust mjög. Gleðin var þó skammvinn því þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Wilson eftir skalla Bowens fyrir markið. Lokatölur á Lundúnaleikvanginum, 2-1, Hömrunum í vil. Áfram munar því tveimur stigum á West Ham og Tottenham. Bæði lið eiga eftir að spila fjóra leiki. Everton er í 11. sæti deildarinnar og hefur tapað tveimur leikjum í röð.
Enski boltinn Wolverhampton Wanderers Tottenham Hotspur West Ham United Everton FC Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Sjá meira