Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Íslendingar hafa hafnað áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Lokatölur voru 46,95 prósent já og 53,05 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 09:32
Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Búið er að telja öll atkvæði í Norðausturkjördæmi. Alls sögðu 38,78 prósent prósent kjósenda já en 61,22 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 06:51
Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Búið er að telja öll atkvæði í Norðvesturkjördæmi. Alls sögðu 37,13 prósent kjósenda já en 62,87 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 06:10
Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Búið er að telja öll atkvæði í Suðurkjördæmi. Alls sögðu 39,5 prósent kjósenda já en 60,5 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 05:46
Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Búið er að telja öll atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður. Alls sögðu 54,49 prósent kjósenda já en 45,51 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 02:54
Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Búið er að telja öll atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi norður. Alls sögðu 57,51 prósent kjósenda já en 42,49 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 02:30
Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Verði já-ið ofan á í kvöld er margra ára vegferð í farvatninu að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Kjörsókn endurspegli áhuga fólks á málinu en erfitt sé þegar mjótt er á munum. Innlent 30. ágúst 2026 01:53
„Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist vera sátt við fyrstu tölur. Hún muni þó eftir því úr íþróttunum að þetta sé ekki búið fyrr en þetta er búið. Innlent 30. ágúst 2026 01:51
„Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að allir hljóti að finnast umræðan í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið óvægin. Hún segir tal um að konur eins og hún hafi verið til sölu í umræðunni vera ógeðfellt. Innlent 30. ágúst 2026 01:49
„Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Framsóknarkonurnar Lilja Alfreðsdóttir og Magnea Gná Jóhannsdóttir sammælast um það að kosningabaráttan hafi farið vel fram og allt bendi til þess að ungt fólk hafi sagt nei í dag. Innlent 30. ágúst 2026 00:57
Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Stemmningin hjá jáfólki sem kom saman í Hafnarhúsinu í kvöld til að fylgjast með niðurstöðum úr þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið var róleg til að byrja með en sprakk út þegar fleiri tölur duttu í hús. Lífið 30. ágúst 2026 00:48
„Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Formaður Ungra Sjálfstæðismanna og einn af stofnendum Ung gegn ESB segir að það stefni í langa nótt en viðurkennir að hann hefði viljað sjá meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum. Innlent 30. ágúst 2026 00:34
Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Það er óhætt að segja að fólk sem mætti í Kolaportið til að fagna lýðræðinu með Áfram Ísland hreyfingunni og þeim sem kusu nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi skemmt sér vel. Lífið 30. ágúst 2026 00:28
Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Atkvæði skiptast nákvæmlega jafnt samkvæmt fyrstu tölum í Suðvesturkjördæmi sem tilkynntar voru nú fyrir skömmu. Búið er að telja 19800 atkvæði en alls voru 80.910 á kjörskrá í kjördæminu. Innlent 30. ágúst 2026 00:01
Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Já-liðar eru fleiri í Reykjavíkurkjördæmi norður samkvæmt fyrstu tölum sem verið var að tilkynna. Alls er búið að telja 21.108 atkvæði og sögðu 59,39 prósent já en 40,61 prósent nei. Innlent 29. ágúst 2026 23:39
56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Samkvæmt fyrstu tölum í Norðausturkjördæmi kusu 56,05 prósent nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald viðræðna við ESB. Búið er að telja 10.000 atkvæði. Innlent 29. ágúst 2026 23:37
Meirihluti segir já í Reykjavík suður Samkvæmt fyrstu tölum úr Reykjavíkurkjördæmi suður sögðu 55,9 prósent já í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald viðræðna við ESB en 44,1 prósent nei. Búið er að telja 21.020 atkvæði. Innlent 29. ágúst 2026 23:31
„Ég er mjög kátur“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins voru að vonum ánægð með fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi. Skiptingin var þar 60% á móti 40% neiurum í vil. Innlent 29. ágúst 2026 23:25
Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Alls sögðu 60,8 prósent kjósenda í Norðvesturkjördæmi nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald viðræðna við ESB samkvæmt fyrstu tölum sem greint var frá nú rétt í þessu. Búið er að telja 5845 atkvæði. Innlent 29. ágúst 2026 23:17
Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Bjarki Sigurðsson var staddur í bæði Ráðhúsinu í Reykjavík og fyrir utan Hagaskóla í Vesturbæ rétt upp úr klukkan níu og ræddi við kjósendur á lokasprettinum en síðustu kjörstöðum var lokað klukkan tíu í kvöld. Sumir gleymdu sér en aðrir nutu veðurblíðu dagsins. Flestir kjósendur voru sammála um að það hefði ekki tekið þá langan tíma að gera upp hug sinn. Lífið 29. ágúst 2026 23:03
Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Nei-hliðin er með forystu í Suðurkjördæmi samkvæmt fyrstu tölum sem tilkynntar voru rétt í þessu. Búið er að telja 9750 atkvæði en 42.136 kjósendur eru á kjörskrá í kjördæminu. Innlent 29. ágúst 2026 22:59
Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Mikil spenna ríkir fyrir tölunum í kvöld og ágætt að fara yfir það hvernig formenn yfirkjörstjórna í hverju kjördæmi sjá kvöldið fyrir sér. Reiknað er með fyrstu tölum um klukkan 22:30 en taka skal fram að um áætlaða tíma er að ræða sem gætu vel breyst. Innlent 29. ágúst 2026 22:01
Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Kosningavaka fréttastofu Sýnar verður á dagskrá í kvöld í beinni útsendingu á Sýn og á Vísi frá klukkan 22:15. Innlent 29. ágúst 2026 21:22
Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Kjörstöðum í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið verður lokað klukkan 22. Fylgst verður grannt með gangi mála í kosningasjónvarpi Sýnar og hér í kosningavaktinni á Vísi. Innlent 29. ágúst 2026 20:41
Hvað segja veðbankarnir? Veðbankar telja töluvert meiri líkur á að neiið beri sigur úr býtum í atkvæðagreiðslunni. Stuðlarnir eru þó ekki ýkja háir eins og ljóst er á því hve hnífjafnt hefur verið í síðustu skoðanakönnunum. Innlent 29. ágúst 2026 18:29
Valkyrjurnar halda blaðamannafund Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra ætla að halda blaðamannafund klukkan eitt á morgun til að fara yfir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þá munu þær svara spurningum fjölmiðla. Innlent 29. ágúst 2026 16:42
Gengisstyrking krónunnar að undanförnu kemur BlueBay „alls ekki á óvart“ Gengisstyrking krónunnar að undanförnu kemur einu stærsta skuldabréfastýringarfélagi Evrópu, sem er jafnframt umsvifamikill eigandi íslenskra ríkisskuldabréfa, ekki á óvart en hann telur að ef já-ið verður ofan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um hvort hefja eigi á nýjan leik aðildarviðræður við ESB þá muni fjárfestar fara að veðja á samleitni vaxta við evrusvæðið. Innherji 29. ágúst 2026 15:24
Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn í Reykjavík mælist meiri en á sama tíma í síðustu alþingiskosningum. Formaður yfirkjörstjórnar segir þó ekki mikið um raðir á kjörstöðum. Von er á fyrstu tölum úr Reykjavík upp úr miðnætti. Innlent 29. ágúst 2026 12:16
Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlendir fjölmiðlar fylgjast með Íslandi í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Fulltrúar um fjörutíu fréttamiðla eru staddir hér á landi til að fjalla um málið. Erlent 29. ágúst 2026 11:36
„Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Kjördagur er runninn upp og munurinn á hópi þeirra sem hyggjast kjósa já og þeirra sem hyggjast kjósa nei varðandi áframhald aðildarviðræðna við ESB mælist afar lítill. „Ég spái því að þetta verði rosalega spennandi og skemmtileg kosninganótt,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði. Innlent 29. ágúst 2026 10:12