Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Kratinn, upplýsingavettvangur þingflokks Samfylkingarinnar, telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi styrkt stöðu flokksins. Í greiningu sem send var félagsmönnum er fylgistap nokkurra flokka sett í samhengi við afstöðu þeirra til viðræðnanna. Fylgisþróunin var þó ólík hjá flokkum sem stóðu sömu megin. Innlent 4.9.2026 14:16
Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. Innlent 4.9.2026 14:00
Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Stjórnmálafræðingur og prófessor í fjölmiðlafræði segir óljóst hver eftirmál þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið eigi að vera. Þau eigi þó eftir að hafa áhrif á þingveturinn framundan. Innlent 3.9.2026 21:37
Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokk og Framsóknarflokk ætla að leggja fram þingsályktunartillögu þegar þing kemur saman eftir helgi um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka dragi ríkisstjórnin umsóknina ekki til baka. Rætt var við Guðrúnu um málið í kvöldfréttum Sýnar í gær. Innlent 1. september 2026 08:51
Enn óljóst hvað verður um umsóknina Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra segir eðlilegt að málið verði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra segir að skoða þurfi hvernig eðlilegast sé að loka ferlinu. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna boða þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka. Innlent 31. ágúst 2026 23:00
Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl segist harma það að Íslendingar hafi hafnað í atkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann telur þetta til marks um að Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi. Erlent 31. ágúst 2026 18:38
Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina. Innlent 31. ágúst 2026 15:49
Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Margir, þeirra á meðal Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins, sögðu að nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla yrði til þess að reka flein í heilu fjölskyldurnar. Vísir hefur heyrt af nokkrum hjónaböndum sem fóru í gegnum þennan hreinsunareld og tók púlsinn á tveimur þeirra – og ekki er annað að heyra en að samböndin hafi staðið þennan slag af sér. Lífið 31. ágúst 2026 15:46
„Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Andstæðingar Evrópusambandsaðildar í Noregi fagna niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um helgina. Norskur prófessor með tengsl við Ísland segist telja að hægri- og forréttindakreðsur hafi sannfært þá sem minna mega sín um að kjósa gegn aðildarviðræðum. Erlent 31. ágúst 2026 11:09
Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Skráðu sjávarútvegsfélögin þrjú hafa lækkað í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni eftir niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Viðskipti innlent 31. ágúst 2026 10:39
Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Bandarísk stjórnvöld segja Ísland áfram mikilvægan bandamann innan Atlantshafsbandalagsins og að Bandaríkin virði niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar og fullvalda ákvörðun þjóðarinnar. Innlent 30. ágúst 2026 23:50
Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist. Innlent 30. ágúst 2026 22:27
Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skoraði á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, að gerast fyrsti flutningsmaður frumvarps um bókun 35 við EES-samningsins. Sigmundur tók ekki vel í hugmyndina. Innlent 30. ágúst 2026 21:11
Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar, segir að sjálfur hefði hann ekki flýtt þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Hann segir ESB líklega enn vilja Ísland inn og telur ólíklegt að þau láti Ísland finna fyrir því fyrir að hafna sambandinu í gær. Innlent 30. ágúst 2026 18:30
Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær var 82,6 prósent. Það er mesta þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu í sögu lýðveldisins. Aðeins í atkvæðagreiðslunni um lýðveldisstofnunina sjálfa var þátttakan meiri en þá kusu rúm 98 prósent þjóðarinnar. Innlent 30. ágúst 2026 18:21
„Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Niðurstaða þjóðaratkvæðisins hefur verið til umfjöllunar á evrópskum miðlum í dag. Heilt yfir eru miðlar sammála um helstu deiluatriði kosningabaráttunnar þar sem já-hliðin tali um kjör almennings á meðan nei-hliðin tefli fram fullveldisrökum og sjávarútvegsmálum. Einhverjir miðlar segja að Ísland hafi með þessu „loka dyrunum“ og aðrir segja niðurstöðuna vonbrigði eða jafnvel bakslag fyrir ESB. Innlent 30. ágúst 2026 17:02
„Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Stofnanir ESB segjast virða fullkomlega vilja íslensku þjóðarinnar eftir að meirihluti kjósenda sagði nei við því að hefja aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Erlent 30. ágúst 2026 16:46
Nei-hliðin vann á ástríðunni Stjórnmálafræðingur segir að niðurstöðu kosninganna megi skýra af því að já-hliðin hafi einblínt um of á tæknilegar útfærslur á meðan ástríða hafi fengið að ríkja nei-megin. Þjóðernisíhaldssemi var áberandi í kosningabaráttunni og útilokað þykir að niðurstaðan leiði til afsagnar ríkisstjórnarinnar. Innlent 30. ágúst 2026 15:31
„Landsbyggðin okkar stendur sterk” Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði ríkisstjórnina í góðu sambandi við landsbyggðina. Landsbyggðin standi sterk en niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar geti þýtt að staða fólks á höfuðborgarsvæðinu sé verri en þeirra á landsbyggðinni. Sterkara ákall hafi verið á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi viðræður en á landsbyggð. Innlent 30. ágúst 2026 15:27
Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Formenn ríkisstjórnarflokkanna segjast stoltar af því að hafa lagt málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin hafi fengið sitt að segja og ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og ætli ekki að halda viðræðum áfram. Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða niðurstöðuna og framhaldið. Innlent 30. ágúst 2026 14:18
Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Formenn stjórnarandstöðu segja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar mikið áfall fyrir ríkisstjórnina. Þau árétta að Evrópusamstarf sé Íslandi enn mikilvægt en skilaboð þjóðarinnar séu skýr til ríkisstjórnar um að einbeita sér að þeim verkefnum sem þau voru kjörin til að leysa, eins og að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þau hafi ætlað að gera það með Evrópusambandinu en meirihluti þjóðar hafi ekki trúað á þá lausn. Innlent 30. ágúst 2026 12:45
Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Formenn ríkisstjórnarflokkanna efna til blaðamannafundar í dag til að bregðast við niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fór í gær. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 30. ágúst 2026 12:17
Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Kosningarnar verða gerðar upp í Sprengisandi sem er á sínum stað klukkan tíu. Páll Magnússon, nýr stjórnandi þáttarins, tekur á móti formönnum flokka og aðrir ráðamenn en valkyrjurnar ætla ekki að láta sjá sig. Innlent 30. ágúst 2026 09:47
Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Búið er að telja öll atkvæði í Suðvesturkjördæmi. Alls sögðu 46,95 prósent kjósenda já en 53,05 prósent nei. Innlent 30. ágúst 2026 09:33