Sam­einuðu arabísku fursta­dæmin

Sam­einuðu arabísku fursta­dæmin

Höfuðborg: Abú Dabí. Mannfjöldi: 11,4 milljónir (2025). Flatarmál: 83.600 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Ræddust við í síma í kjöl­far um­mæla Trump um Breta

Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands ræddust við í síma í dag um málefni Mið-Austurlanda og samvinnu Breta og Bandaríkjamanna í stríðinu gegn Íran. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver sé nýr leiðtogi Íran.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Loks komnar af átakasvæðinu: „Á­tján tímar af þroti“

Fjórar vinkonur sem voru að hefja heimsreisu þegar þær festust á átakasvæði í Mið-Austurlöndunum hafa loks komist þaðan. Þær fréttu af því að þær hefðu fengið pláss í flugferð í útvarpinu, þurftu að komast yfir landamæri með ókunnugum heimamanni og dvelja á flugvelli í fleiri klukkustundir í hópi Rúmena.

Innlent
Fréttamynd

Hafa ekki náð á 26 Ís­lendinga í Mið-Austurlöndum

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Innlent
Fréttamynd

Þrír banda­rískir her­menn fallnir í á­tökum við Íran

Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila.

Erlent
Fréttamynd

Ís­lendingar óska eftir að­stoð

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni.

Innlent
Fréttamynd

Fursta­dæmin þjálfa upp­reisnar­menn í leyni­legri her­stöð

Yfirvöld í Eþíópíu hafa reist leynilegar herbúðir þar sem þúsundir meðlima uppreisnarhópsins Rapid Support Forces (RSF) eru þjálfaðir fyrir átök við stjórnarherinn í Súdan. Framkvæmdirnar munu hafa verið fjármagnaðar af Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem hafa staðið þétt við bakið á RSF í átökunum blóðugu í Súdan.

Erlent
Fréttamynd

„Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur

Nokkrum dögum áður en Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna á nýjan leik í janúar í fyrra, keyptu sjeik úr konungsfjölskyldu Sameinuðu arabísku furstadæmanna og aðrir fjárfestar þaðan 49 prósenta hlut í rafmyntafélagi fjölskyldu forsetans.

Erlent
Fréttamynd

Selenskí undir miklum þrýstingi

Utanríkisráðherra bindur vonir við að tímamótaviðræður sendinefnda Úkraínu, Bandaríkjanna og Rússlands í Abú Dabí skili árangri. Mikilvægt sé þó að fullveldi Úkraínu verði virt og friðurinn verði raunverulegur og ekki á forsendum Rússa.

Innlent
Fréttamynd

Rússar, Úkraínu­menn og Banda­ríkja­menn funda í fyrsta sinn við sama borð

Fulltrúar Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru nú sagðir ætla að halda samningafund í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um stríðið í Úkraínu og mögulegt vopnahlé. Fundurinn fer fram í dag og er um að ræða fyrstu viðræðurnar frá innrás Rússa fyrir hartnær fjórum árum þar sem Rússar og Úkraínumenn sitja við sama borð ásamt Bandaríkjunum.

Erlent
Fréttamynd

Drauma­ferðin gæti verið nær en þú heldur

Úrval Útsýn býður upp á fjölmargar spennandi ævintýraferðir í vetur og í vor. Meðal þeirra eru ferðir til Óman og Dubai í febrúar, til Japans í mars og til Egyptalands í maí. Allar þrjár ferðirnar hafa fengið góðar viðtökur meðal landsmanna og því þurfa áhugasamir að bregðast skjótt við til að tryggja sér pláss.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Óttast inn­rætingu íslam­ista í breskum há­skólum

Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum styrkja ekki lengur ríkisborgara sína til háskólanáms í Bretlandi, af ótta við að nemendur verði útsettir fyrir innrætingu samtaka á borð við Múslimska bræðralagið. Múslimska bræðralagið eru alþjóðleg samtök múslima sem skilgreind eru sem hryðjuverkasamtök í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en ekki í Bretlandi.

Erlent
Fréttamynd

Við­skila í London eftir að hafa hent vega­bréfinu í ruslið

Íslensk kona á leið til Ástralíu með syni sína tvo lenti í einni stærstu martröð ferðalangsins þegar vegabréf eldri sonarins endaði í ruslinu á flugvelli í Lundúnum. Þau rótuðu í tunnunni en þá var vegabréfið horfið. Leiðir skildu, móðirin og yngri sonurinn flugu áfram en sá eldri varð eftir með síma, hleðslutæki og einbeittan vilja til að endurheimta vegabréfið.

Ferðalög
Fréttamynd

Fundað um frið í Abú Dabí

Bandarískir og rússneskir erindrekar komu saman í Abú Dabí í Sameinuðu furstadæmunum í morgun. Þar stendur til að ræða frið í Úkraínu og tillögurnar sem fyrir liggja. Ólíklegt þykir að Rússar muni samþykkja þessar tillögur, sem hafa tekið nokkrum breytingum frá því þær litu fyrst dagsins ljós.

Erlent
Fréttamynd

Fursta­dæmin dæla vopnum og kín­verskum drónum til Súdan

Leyniþjónustur Bandaríkjanna og embættismenn í Evrópu, Líbíu og Egyptalandi segja að ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafi aukið hergagnasendingar til vígamanna Rapid support forces (RSF) í Súdan á þessu ári. Kínverskir drónar hafa verið sendir til vígamannanna, auk stórskotaliðsvopna, farartækja, vélbyssa og skotfæra, svo eitthvað sé nefnt.

Erlent
Fréttamynd

Mót­mæla hug­myndum um inn­limun nær alls Vesturbakkans

Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja að Ísraelsmenn myndu fara yfir „rauða línu“ ef þeir innlimuðu Vesturbakkann. Þá myndi það gera út um möguleikann á svokallaðri „tveggja ríkja lausn“ á deilu Ísrael og Palestínumanna.

Erlent
Fréttamynd

Grönduðu flug­vél frá fursta­dæmunum og felldu fjöru­tíu mála­liða

Súdanski herinn gerði á dögunum loftárás á flugvöll í Darfurhéraði sem beindist sérstaklega að herflugvél sem talið er að hafi verið í eigu herafla Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Flugvélinni var grandað og með henni fórust að minnsta kosti fjörutíu málaliðar frá Kólumbíu, sem furstadæmin eru sögð hafa ráðið til að styðja uppreisnarmenn í Súdan.

Erlent
Fréttamynd

Stökk fjöru­tíu sinnum úr flug­vél í Dubai

„Þegar ég stökk úr flugvél ein í fyrsta sinn þá var heilinn að segja mér bara nei, nei, nei, ekki stökkva,“ segir ævintýrakonan Svanhildur Heiða Snorradóttir. Hún heillaðist algjörlega að fallhlífarstökki þegar hún var búsett í Miðausturlöndum og ræddi við blaðamann um þetta mjög svo spennandi áhugamál.

Lífið