Fengu innblástur frá Cool Runnings og eru mættir á Vetrarólympíuleika Margir muna eftir ævintýri Jamaíkumannanna sem tóku þátt í fjögurra manna bobsleðakeppninni á Vetrarólympíuleikunum í Calgary árið 1988, sem kvikmyndin Cool Runnings fjallar um. Jamaíka á aftur lið í keppninni í ár. Sport 10. febrúar 2022 16:32
Shiffrin keppir á morgun en er hætt að tala við fjölmiðla á ÓL Bandaríska skíðakonan Mikaela Shiffrin ætlar ekki að veita fleiri viðtöl á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Sport 10. febrúar 2022 14:31
Sænska stjarnan kom aftur örmagna í mark Ekki hefur gengið sem skyldi hjá Fridu Karlsson, einni skærustu skíðastjörnu Svía, á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Sport 10. febrúar 2022 12:30
Fimm skíðastökkskonur dæmdar úr leik vegna búninga sem voru ekki nógu þröngir Fimm konur sem kepptu í skíðastökki blandaðra liða voru dæmdar úr leik vegna búninganna sem þær klæddust. Sport 10. febrúar 2022 09:30
Vann ÓL-gull og fagnaði með að kyssa þjálfarann og hrauna yfir sambandið Ítalska skautakonan Arianna Fontana vann Ólympíugull í skautaati í vikunni og fagnaði því á frekar sérstakan hátt. Sport 10. febrúar 2022 08:30
Fimmtán ára rússneska undrabarnið féll á lyfjaprófi Hin fimmtán ára Kamila Valieva, sem átti stóran þátt í því að rússneska ólympíunefndin vann gull í liðakeppninni í listdansi á skautum á Vetrarólympíuleikunum í Peking, er sögð hafa fallið á lyfjaprófi fyrir leikana. Sport 10. febrúar 2022 07:30
Leynd ríkir yfir ástæðum þess að verðlaun voru ekki veitt Rússar, Bandaríkjamenn og Japanir áttu að taka við verðlaunum í gær eftir liðakeppni í listskautum á Vetrarólympíuleikunum í gær. Ekkert varð hins vegar af því og grunur leikur á að ástæðan tengist lyfjamálum. Sport 9. febrúar 2022 13:30
Súperstjarnan barðist við tárin eftir algjört klúður Bandaríska skíðakonan Mikaela Shiffrin ætlaði sér að vinna fjölmörg gullverðlaun á Vetrarólympíuleikunum í Peking en hún hefur nú klúðrað algjörlega fyrstu tveimur greinum sínum. Sport 9. febrúar 2022 12:30
Rússneski skíðaforsetinn sár og neitar að tala við norska fjölmiðla Forseti rússneska skíðasambandsins, Jelena Välbe, neitar að tala við norska fjölmiðla vegna ummæla Jans Petter Saltvedt á NKR um lyfjamisferli Rússa. Sport 9. febrúar 2022 12:00
Hófí Dóra vann sig upp um fimm sæti í seinni umferðinni Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir lenti í 38. sæti í svigi á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Sport 9. febrúar 2022 07:27
Finnar segja Kínverja brjóta á mannréttindum íþróttamanna sinna á ÓL Finnska íshokkísambandið er mjög ósátt með þá meðferð sem tveir leikmenn landsliðs þeirra í íshokkó hafa fengið á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Sport 8. febrúar 2022 16:31
Grænlenska skyttan klikkaði ekki á einu skoti Ukaleq Slettemark stóð sig vel í sinni fyrstu keppni á Ólympíuleikunum en þessi tvítuga grænlenska skíðaskotfimikona keppir fyrir Dani á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Sport 8. febrúar 2022 14:31
Isak sautján sekúndum frá því að komast áfram Isak Stianson Pedersen var rúmum sautján sekúndum frá því að komast áfram í undanúrslit í sprettgöngu á Vetrarólympíuleikunum í Peking í dag. Sport 8. febrúar 2022 10:47
Klúður kínverskrar skautakonu þurrkað út af netinu í Kína Nítján ára kínversk skautakona olli þjóð sinni miklum vonbrigðum þegar hún klúðraði sínum dans í blandaðri liðakeppni á listskautum á skautum. Á sama tíma hefur meðferðin sem hún fékk á netinu farið langt yfir strikið. Sport 8. febrúar 2022 10:00
Fyrirsætan frá Bandaríkjunum sem færði Kínverjum gull á ÓL í nótt Eileen Gu varð í nótt Ólympíumeistari í skíðafimi af stórum palli eftir að hafa náð fyrsta 1620 stökkinu sínu á ferlinum í lokastökkinu í keppninni. Sport 8. febrúar 2022 09:11
Kristrún komst ekki áfram í sprettgöngunni Kristrún Guðnadóttir lenti í 74. sæti af níutíu keppendum í undanrásum í sprettgöngu á Vetrarólympíuleikunum í Peking og komst ekki áfram í næstu umferð. Sport 8. febrúar 2022 09:00
Segir ásakanir um kynferðisbrot vera misskilning Peng Shuai, kínverska tenniskonan sem gufaði upp af yfirborði jarðar í nokkrar vikur síðasta haust eftir að ásaka háttsettan mann innan kínversku ríkisstjórnarinnar um kynferðisbrot, segir málið vera byggt á misskilningi. Sport 8. febrúar 2022 07:01
Kepptu með grímur vegna veirunnar Leikur Kanada og Rússlands í íshokkí á Vetrarólympíuleikunum sem nú fara fram í Peking vakti mikla athygli þar sem bæði lið kepptu með grímur til að koma í veg fyrir að leikmenn smituðust af veirunni. Sport 7. febrúar 2022 23:31
Þurfa tuttugu lasagnediska á dag Íþróttafólkið á Vetrarólympíuleikunum í Peking er ekki bara það besta í heimi í sínum íþróttagreinum. Margt af því getur tekið mun betur til matar síns en meðalmaðurinn. Sport 7. febrúar 2022 17:01
Rússneskt undrabarn skráði sig á spjöld Ólympíusögunnar Rússneska skautakonan Kamila Valieva frá Rússlandi sýndi snilli sína í liðakeppninni í listhlaupi á Vetrarólympíuleikunum í Peking og framkvæmdi stökk sem enginn annar hefur áður gert. Sport 7. febrúar 2022 15:00
Hugsaði til látinnar vinkonu sinnar eftir sögulegt Ólympíugull Hollenska skautakonan Ireen Wüst skráði sig á spjöld sögunnar þegar hún varð hlutskörpust í 1.500 metra skautahlaupi á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Sport 7. febrúar 2022 14:01
Hófí Dóra reyndi að bjarga hnjánum: „Heyrði bara lækni öskra á mig: Er í lagi með þig?“ „Auðvitað er þetta alltaf smá sjokk,“ segir Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir sem hlaut nokkuð slæma byltu í keppni í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Peking í dag. Hún hófst á loft og skall í öryggisnet við brautina en segist hafa sloppið vel. Sport 7. febrúar 2022 12:00
Vann Ólympíugull þremur árum eftir að hafa greinst með krabbamein Kanadamaðurinn Max Parrot var í skýjunum eftir að hafa unnið til gullverðlauna í brekkufimi á snjóbretti á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Sport 7. febrúar 2022 09:31
Hólmfríður úr leik í fyrstu grein sinni Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir er úr leik í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Sport 7. febrúar 2022 06:51
„Mjög erfitt í lokin, þurfti að einbeita mér að detta ekki“ Snorri Einarsson náði besta árangri Íslendings í skíðagöngu á Vetraólympíuleikum í morgun er hann hafnaði í 29. sæti í 30 kílómetra skiptigöngu, hann segir það mikinn léttir að hafa byrjað leikana svona vel. Snorri ræddi við Stöð 2 og Vísi að göngunni lokinni. Sport 6. febrúar 2022 21:01
Snorri náði besta árangri Íslendings í skíðagöngu | Rússar tóku gull og silfur Snorri Einarsson náði besta árangri Íslendings í skíðagöngu á Vetraólympíuleikum þegar hann hafnaði í 29. sæti í 30 km skiptigöngu karla í morgun. Rússarnir Alexander Bolshunov og Denis Spitsov komu fyrstir í mark. Sport 6. febrúar 2022 10:01
Sturla Snær með veiruna Sturla Snær Snorrason, keppandi í alpagreinum á Vetrarólympíuleikunum í Peking, hefur greinst jákvæður með kórónuveiruna. Sport 5. febrúar 2022 14:31
Er til land með betra nafn fyrir Vetrarólympíuleika? Það var létt yfir Íslendingunum og þeir tóku nokkur spor þegar þeir gengu inn á Þjóðarleikvanginn í Peking á setningarathöfn Vetrarólympíuleikanna í dag. Sport 4. febrúar 2022 15:22
Endugerðu flísgallann frá vetrarólympíuleikunum 1998 Íslenski fataframleiðandinn 66°Norður frumsýndi í dag nýjan Kríu flísgalla, sem er endurgerð á galla sem var sérstaklega framleiddur og hannaður fyrir íslensku keppendurna á vetrarólympíuleikunum í Nagano árið 1998. Tíska og hönnun 4. febrúar 2022 13:00
Hnefaleikar og ólympískar lyftingar gætu dottið út af Ólympíuleikunum Hnefaleikar, ólympískar lyftingar og nútímafimmtarþraut eru ekki á listanum yfir keppnisgreinar á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028. Það gæti þó breyst. Sport 3. febrúar 2022 16:31