„Nú er komið að mér“ Hákon VIII Noregskonungur ávarpaði norsku þjóðina í fyrsta sinn sem konung í kvöld, rúmum sólarhring eftir að faðir hans, Haraldur V, lést 89 ára að aldri. Erlent 29.8.2026 17:41
Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Hákon áttundi Noregskonungur mun halda minningarræðu um Harald föður sinn sem lést í gærmorgun. Þetta verður fyrsta skipti sem hann formlega ávarpar þjóðina sem konungur. Erlent 29.8.2026 16:30
Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlendir fjölmiðlar fylgjast með Íslandi í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Fulltrúar um fjörutíu fréttamiðla eru staddir hér á landi til að fjalla um málið. Erlent 29.8.2026 11:36
Heilsu Haraldar hrakar enn Heilsu Haraldar Noregskonungs hrakar enn og er heilsufarsástand hans sagt „mjög alvarlegt“. Erlent 27. ágúst 2026 07:39
Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Seiðmaðurinn og eiginmaður Mörtu Lovísu Noregsprinsessu, Durek Verrett, hefur gengist undir nýrnaígræðslu á Ríkisspítalanum í Ósló. Ígræðslan er sögð hafa gengið vel eftir langa bið eftir líffæragjafa. Hann var 28 ára gamall þegar hann greindist með ólæknandi nýrnasjúkdóm. Erlent 26. ágúst 2026 14:38
Heilsu Haralds konungs hrakar Haraldur Noregskonungur hefur legið inni á spítala í tæplega viku, eða síðan mánudaginn 17. ágúst, þar sem hann hlýtur meðferð vegna blóðsjúkdóms en heilsu hans hrakaði um helgina. Hákon krónprins er ríkisstjóri á meðan hinn 89 ára Haraldur konungur er á sjúkrahúsi. Erlent 23. ágúst 2026 18:45
Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Alls hefur 135 flugferðum verið aflýst í Noregi í morgun vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Óslóarflugvelli var lokað í um fimm klukkustundir í morgun en hefur verið opnaður að nýju. Ætlast er til þess að lokunin muni hafa veruleg áhrif á flugumferð það sem eftir er af degi og eru sagðar langar biðraðir á vellinum. Erlent 23. ágúst 2026 11:07
Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt fjórum sjúkraflugum það sem af er degi en þar af var eitt á Flateyri í Breiðafirði og eitt á Patreksfirði. Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur komið að útköllum þar sem farið var djúpt á haf út en á tímabili var nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum þar sem þau bárust nánast samtímis. Innlent 22. ágúst 2026 20:11
Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Norskur dómstóll dæmdi í dag skipstjóra flutningaskips sem sigldi næstum á íbúðarhús þegar það strandaði í Þrándheimsfirði í fyrra í skilorðsbundið fangelsi. Stýrimaður skipsins sofnaði í brúnni. Erlent 21. ágúst 2026 11:38
Olíusjóðurinn bætir enn við sig í íslenskum verðbréfaeignum Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, hélt áfram að stækka við sig í íslenskum verðbréfum á fyrstu mánuðum ársins en heildareignir sjóðsins hér á landi hafa meira en sjöfaldast á innan við áratug. Innherji 21. ágúst 2026 10:26
Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Lögreglan í Svíþjóð hefur handtekið norskan mann sem er talinn tengjast hvarfi Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018. Maðurinn var þó ekki handtekinn vegna þessa máls heldur vegna gruns um umfangsmikil fíkniefnabrot. Erlent 20. ágúst 2026 16:56
Haraldur konungur lagður inn á spítala Haraldur Noregskonungur verður lagður inn á sjúkrahús í tvær vikur. Krónprinsinn Hákon er því ríkisstjóri í fjarveru föður síns. Erlent 17. ágúst 2026 22:38
Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Ónefndur einstaklingur hefur verið sektaður fyrir að hafa notað þokulúður til að vekja sofandi ísbjörn á Svalbarða. Viðkomandi verður gert að borga jafnvirði 650 þúsund króna fyrir uppátækið. Erlent 14. ágúst 2026 08:37
Methagnaður norska olíusjóðsins Norski olíusjóðurinn hagnaðist um 1.753 milljarða norskra króna, jafnvirði tæpra 22.800 milljarða íslenskra króna, á fyrri helmingi ársins. Hagnaður hans hefur aldrei verið meiri á sex mánaða tímabili. Viðskipti erlent 12. ágúst 2026 08:19
Norskir nei-sinnar bæta við sig Norðmenn fylgjast grannt með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ný skoðanakönnun sýnir að meirihluti Norðmanna er enn andvígur því að sækja aftur um aðild að sambandinu. Erlent 11. ágúst 2026 16:47
Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Erling Braut Haaland er ekki aðeins stærsta fótboltastjarnan í Noregi því hann er einnig að slá í gegn í tónlistinni. Fótbolti 7. ágúst 2026 21:32
Hvað er í gangi á Svalbarða? Svalbarði er svo norðarlega að hann eru nær Norðurpólnum en nokkru öðru byggðu bóli í Evrópu. Óheimilt er að jarða fólk vegna sífrera í jörðu, konur geta ekki fætt börn vegna skorts á heilbrigðisþjónustu og utan bæjarmarka er nauðsynlegt að bera riffil vegna ísbjarna. Þessi afskekkti og fámenni eyjaklasi hefur á síðustu árum orðið að miðju ýmissa samsæriskenninga. Lífið 5. ágúst 2026 11:01
Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Ørjan Håskjold Nyland, markmaður norska landsliðsins í fótbolta, er enn að jafna sig á vinsældum eftir heimsmeistaramótið í fótbolta. Hann hefur reynt að sleppa við að fara í búðina vegna athyglinnar sem hann fær. Fótbolti 1. ágúst 2026 22:45
Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Norskur maður, Johannes Kongsnes Natland, hefur verið fundinn sekur um að hafa ferðast til Englands til að fremja launmorð fyrir alþjóðlegt glæpagengi sem er sagt hafa tengsl við stjórnvöld í Íran. Athygli vekur að Natland er aðeins nítján ára gamall. Erlent 30. júlí 2026 11:44
Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Svokallað Haaland-æði hefur verið á samfélagsmiðlum eftir heimsmeistaramótið. Framherjinn sjálfur heldur því undir með því að vera virkur á samfélagsmiðlum. Fótbolti 26. júlí 2026 13:30
Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Fimmtán ár eru í dag liðin frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló þar sem 77 manns týndu lífi. Formaður Ungs jafnaðarfólks segir það skipta öllu máli að minnast fórnarlambanna og standa gegn hatri og ofbeldi. Innlent 22. júlí 2026 12:11
Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Lögregla í norsku borginni Drammen telur nú líklegast að slys hafi valdið stórbrunanum sem varð ríflega hundrað heimilum á svæðinu að bráð á dögunum. Rannsókn stendur þó enn yfir og eru eldsupptök ókunn. Erlent 19. júlí 2026 11:56
Búið að ráða niðurlögum eldsins Búið er að ráða niðurlögum eldsins í útjaðri Drammen og ekkert slökkvistarf fór fram í nótt. Eldsupptök eru enn ókunn. Erlent 19. júlí 2026 08:50
Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Aðgerðastjóri lögreglu í Drammen segir fréttir af því að viðbragðsaðilar hafi náð tökum á eldinum sem logar í Krokstadelva séu ýktar. Erlent 18. júlí 2026 10:39