Meintur hrotti í Hrísey í varðhaldi vel inn í aðventuna Karlmaður búsettur í Hrísey í Eyjafirði sem grunaður er um fjölmörg ofbeldisbrot hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 10. desember. Innlent 12. nóvember 2020 16:36
Ekið á tólf ára stúlku í Kópavogi Ekið var á tólf ára stúlku á rafmagnshlaupahjóli þar sem hún fór yfir götu á gangbraut í Kópavogi á áttunda tímanum í gærkvöldi. Innlent 12. nóvember 2020 06:26
Örkumluð eftir bílslys og eiginmaðurinn með heilaæxli Aðstæður Elínborgar Björnsdóttur eru hreint út sagt skelfilegar eftir hroðalegt bílsslys á Sandgerðisvegi í byrjun árs. Innlent 11. nóvember 2020 15:12
Sjö handteknir grunaðir um umfangsmikil fjársvik og peningafölsun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar umfangsmikið mál sem snýr að meintum fjársvikum og peningafölsun. Innlent 10. nóvember 2020 14:51
Ekki alveg sammála um þurrkarann Talið er líklegast að eldur sem kviknaði í íbúðarhúsi við Hafnarstræti á Akureyri í maí, með þeim afleiðingum að karlmaður á sjötugsaldri lést, hafi kviknað út frá þurrkara. Innlent 10. nóvember 2020 10:55
Höfðu hendur í hári þjófa á vespum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hljóp uppi mann á fimmta tímanum í nótt sem gerst hafði fingralangur í Gerðunum í Reykjavík. Innlent 10. nóvember 2020 06:56
Þjófar sópuðu upp snjóbrettaskóm að næturlagi Verslunin Pukinn.com greinir frá því á Facebook-síðu sinni að brotist hafi verið inn í húsnæði hennar síðastliðna nótt og mikið magn af nýjum snjóbrettaskóm tekið ófrjálsri hendi. Innlent 9. nóvember 2020 22:23
Fundu veiðimann sem týndist við Sporðöldulón Viðbragðsaðilum hefur tekist að finna veiðimann sem var týndur í grennd við Sporðöldulón á suðurlandi í kvöld. Innlent 9. nóvember 2020 22:08
Rekja stórbruna í Hrísey til vinnu kvöldið áður Líklegast þykir að eldur sem kviknaði í frystihúsi Hríseyjar Seafood í Hrísey í lok maí síðastliðnum hafi kviknað út frá glóð sem barst í pappa og plast í húsinu. Innlent 9. nóvember 2020 14:38
Tveir menn á fertugsaldri játuðu röð innbrota í Kópavogi Tveir menn á fertugsaldri hafa játað að hafa staðið fyrir fjölda innbrota í Sunnusmára í Kópavogi í síðasta mánuði. Innlent 9. nóvember 2020 13:59
Hafa hvorki getað rætt við ökumann né farþega Karl og kona sem lentu í alvarlegu umferðarslysi í Öxnadal í Hörgársveit á föstudag liggja enn mikið slösuð á sjúkrahúsi. Innlent 9. nóvember 2020 13:32
Þrjátíu mál inn á borð lögreglu Þrjátíu verkefni komu inn á borð lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, en í mörgum þeirra þurfti lögreglan að veita sálrænan stuðning, eftir því sem fram kemur í tilkynningu. Innlent 9. nóvember 2020 07:27
Síbrotafugl handsamaður af lögreglunni Tólf ára gamall örn, eða síbrotafugl eins og lögreglan á Vestfjörðum kallar hann, var í dag handsamaður eftir að hafa komið sér í ógöngur. Innlent 8. nóvember 2020 21:12
Álag á lögreglumenn aukist mikið í faraldrinum Álag á lögreglumenn hefur aukist mikið í kórónuveirufaraldrinum og sumir þeirra hafa þurft að fara allt að fjórum sinnum í sóttkví eftir afskipti af fólki sem virðir ekki sóttvarnarreglur Innlent 8. nóvember 2020 18:49
Hjólabrettaslys, húsbrot og akstur undir áhrifum Alls voru 73 mál bókuð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. Innlent 8. nóvember 2020 07:19
Lögreglan veitti þekktum brotamanni eftirför Lögreglan var kölluð út á sjötta tímanum í kvöld og þurfti hún að veita bílstjóra eftirför sem keyrði á miklum hraða frá Vesturlandsvegi og í gegn um borgina. Innlent 7. nóvember 2020 17:32
400 grömm af kókaíni fundust í Heiðmörk Fjögur hundruð grömm af kókaíni fundust í Heiðmörk í gær. Útivistarmaður sem var í heilsubótargöngu með hundinn sinn tilkynnti lögreglu um sérkennilegan hlut sem varð á vegi hans á göngunni. Innlent 7. nóvember 2020 15:00
Líkamsárás í austurbæ Reykjavíkur Klukkan 20:43 var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um líkamsárás í heimahúsi í austurbæ Reykjavíkur. Innlent 7. nóvember 2020 07:15
Neituðu að virða grímuskyldu úti í búð Töluvert margar tilkynningar bárust lögreglu um brot á sóttvarnalögum í dag. Innlent 6. nóvember 2020 20:25
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna innbrota og þjófnaða Karlmaður á sextugsaldri var í gær úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innbrotum í umdæminu. Innlent 6. nóvember 2020 12:03
Skoða hvort lögreglumaður verði sendur í leyfi Til skoðunar er hvort einn lögreglumaður verðir sendur í leyfi á meðan rannsókn Héraðssaksóknara á meintu ofbeldi við handtöku er í gangi. Þetta segir Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 6. nóvember 2020 11:48
Upptökur úr búkmyndavélum lögreglu sendar til héraðssaksóknara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur vísað máli, þar sem fjórir lögregluþjónar hafa verið sakaðir um gróft ofbeldi við handtöku í Hafnarfirði, til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Innlent 6. nóvember 2020 09:51
Lögreglumenn sakaðir um gróft ofbeldi við handtöku í Hafnarfirði Sjónarvottar fullyrða að fjórir lögregluþjónar, sem handtóku mann við Hvaleyrarholt í Hafnarfirði síðasta mánudag, hafi gengið allt of langt í aðgerðum sínum og eru lögreglumennirnir sakaðir um gróft ofbeldi. Innlent 6. nóvember 2020 07:22
Innlit inn í þýfisgeymsluna á Vínlandsleið Lögregla lagði hald á mikið af þýfi í tveimur húsum í stórri aðgerð í Mosfellsbæ í gær. Einn var handtekinn í aðgerðunum. Innlent 5. nóvember 2020 20:34
Börn með sjálfsvígshugsanir vegna nektarmynda Dæmi eru um að börn fái sjálfsvígshuganir eftir að nektarmynd af þeim fer í dreifingu á netinu. Verkefnastjóri Hjálparsíma Rauða krossins segir nokkuð algengt að börn í slíkri stöðu hafi samband. Innlent 5. nóvember 2020 20:30
Skaðabætur frá borginni færi honum ekki barnsárin aftur Reykjavíkurborg hefur hafið samningaviðræður um skaðabætur við ungan mann sem varð fyrir grófu kynferðisofbeldi af hálfu stuðningsfulltrúa sem starfaði hjá Barnavernd Reykjavíkur. Ungi maðurinn fagnar því að þurfa ekki að ganga í gegnum annað dómsmál. Innlent 5. nóvember 2020 19:00
Vill aukna réttarvernd þeirra sem verða fyrir því að nektarmyndum af þeim er dreift Dómsmálaráðherra segir núverandi löggjöf veita aðeins brotakennda réttarvernd þegar kemur að kynferðisbrotum sem framin eru með stafrænum hætti. Hún mun mæla fyrir frumvarpi í næstu viku sem felur meðal annars í sér aukna vernd þeirra sem verða fyrir því að nektarmyndum af þeim sé dreift. Innlent 5. nóvember 2020 12:51
Kölluð út snemma morguns vegna ölvaðs manns í jólaskapi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út á sjötta tímanum í morgun eftir að tilkynning barst um „undarleg hljóð frá stigagangi í fjölbýlishúsi í hverfi 201“. Innlent 5. nóvember 2020 11:18
Tilkynnt um fjórar líkamsárásir Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna fjögurra líkamsárása í umdæmi sínu í gærkvöldi. Innlent 5. nóvember 2020 07:26
Hefur fengið hundruð reynslusagna um kynferðislegt ofbeldi á netinu gegn ungum konum Kona sem heldur úti instagramsíðu um stafrænt kynferðisofbeldi segir hundruð ungra kvenna hafa sent sér reynslusögur af slíku ofbeldi. Það vanti úrræði og auka þurfi kynfræðslu. Innlent 4. nóvember 2020 20:01