Ökumanns sem ók á stúlku á rafmagnshlaupahjóli við Grandatorg leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú ökumanns fólksbifreiðar sem ók á unga stúlku á rafmagnshlaupahjóli við Grandatorg í Reykjavík um klukka 16.43 í gær. Innlent 5. október 2021 14:53
Stálu kampavínsflöskum og sprautuðu úr þeim í loftið Lögreglan á Suðurnesjum fékk á dögunum tilkynningu um þjófnað og skemmdarverk á hóteli í umdæminu en nokkrir menn höfðu þar meðal annars stolið kampavínsflöskum og sprautað úr þeim upp í loftið. Innlent 5. október 2021 09:19
Salernum stolið í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti margvíslegum verkefnum í gærkvöldi og nótt. Hún var meðal annars kölluð til rétt fyrir miðnætti þar sem tveir höfðu ráðist á einn í Hlíðahverfinu. Mennirnir unnu einnig skemmdir á bifreið viðkomandi en voru á brott þegar lögregla kom á vettvang. Innlent 5. október 2021 08:06
Réðst á dyravörð eftir að hafa verið vísað út Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi eða í nótt mann sem hafði ráðist á dyravörð skemmtistaðar eftir að dyravörðurinn hafði vísað honum af staðnum. Innlent 4. október 2021 06:52
Föt karlmanns fundust við Elliðaá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning um að föt af karlmanni hefðu fundist við Elliðaá. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að dróni hafi verið notaður til að skoða ána. Innlent 3. október 2021 12:02
Ljósastaurar í Breiðholti fengu að finna fyrir því Lögreglumenn sem voru við eftirlit í Breiðholti í gærkvöldi urðu vitni að því þegar ökumaður ók á ljósastaur. Innlent 3. október 2021 07:51
Gekk um miðbæinn með hníf í hendi Í gærkvöldi þurfti lögregla að hafa afskipti af manni sem gekk um miðborg Reykjavíkur með hníf í hendi. Innlent 3. október 2021 07:43
Lögregla hafði afskipti af vopnuðum manni við Kattakaffihúsið Á áttunda tímanum í kvöld barst lögreglu tilkynning um mann vopnaðan hnífi í Bergstaðastræti, nánar tiltekið fyrir utan Kattakaffihúsið í Bergstaðastræti 10. Innlent 2. október 2021 20:39
Háttaði sig og steinsofnaði í sófa hjá ókunnugum Íbúi í miðbæ Reykjavíkur þurfti að óska eftir aðstoð lögreglu í nótt eftir að ókunnugur maður lagðist til svefns í íbúð hans. Innlent 2. október 2021 07:32
Unglingur sparkaði í lögreglubíl og hrækti á lögreglumann Töluvert annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Sautján ára karlmaður var handtekinn í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur undir miðnætti. Innlent 2. október 2021 07:24
Ók bíl á bensíndælurnar á Sprengisandi Í kvöld varð slys á eldsneytisstöð Atlantsolíu á Sprengisandi þegar bifreið var ekið yfir eldsneytisdælu. Innlent 1. október 2021 23:15
Lögregla braut gegn konu sem var blekkt af flugumanninum sem kom til Íslands Dómarar við bresku dómsmálastofnunina IPT hafa komist að þeirri niðurstöðu að lögreglan í Lundúnum hafi brotið gróflega á mannréttindum konu sem flugumaðurinn Mark Kennedy átti í ástarsambandi við með þeim tilgangi að afla upplýsingum til lögreglu um hana og þá hópa sem hún tengdist. Erlent 1. október 2021 18:05
Stúlkan sem leitað var að á Suðurnesjum er fundin Sex ára stúlka sem Lögreglan á Suðurnesjum leitaði í dag er komin í leitirnar. Innlent 1. október 2021 17:50
Svona hljóðar ásökunin sem Aron Einar sver af sér „Ég má segja frá, ég má bara ekki nafngreina. Mig langar ekki að burðast með þetta ein í hjartanu, mig langar ekki að hugsa í hvert skipti sem ég fer á meðal fólks: „Ætli þau viti þetta, ætli þau trúi mér“, því það er ógeðslega íþyngjandi og heftandi félagslega. Innlent 1. október 2021 11:08
Ógætilegur akstur á skólalóð en báðir aftur í þegar lögreglu bar að Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust í gær þrjár tilkynningar þar sem um var að ræða ógætilegur akstur bifreiða á bifreiðastæðum. Í tveimur tilvikum höfðu ökumenn látið af háttsemi sinni þegar á staðinn var komið. Innlent 1. október 2021 07:22
Ökufantur á 210 kílómetra hraða ákærður Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að aka mótorhjóli á 210 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var níutíu. Hann er sakaður um að hafa stefnt lífi og heilsu annarra vegfarenda í augljósan háska. Innlent 30. september 2021 13:12
Framkvæmdastjóri hótelsins búinn að skoða upptökurnar og sér ekkert athugavert Hótel Borgarnes hefur afhent lögreglu upptökur úr öryggismyndavélum sínum frá því um helgina þegar talning á atkvæðum í Norðvesturkjördæmi fór fram. Þetta staðfestir framkvæmdastjóri hótelsins, sem segist sjálfur hafa horft á hluta þeirra. Innlent 29. september 2021 12:31
Búið að aflétta lokunum innanbæjar á Sauðárkróki Búið er að aflétta lokunum innanbæjar á Sauðárkróki sem voru settar á vegna gruns um krapastíflu í Sauðá. Skoðun sérfræðinga eftir að veður gekk niður leiddi í ljós að rennsli er orðið eðlilegt að nýju. Innlent 28. september 2021 20:57
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra: Vegfarendur hefðu mátt hlýta viðvörunum Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra í veðurofsanum í dag. Birgir Jónasson lögreglustjóri sagði í samtali við fréttastofu að nokkuð hafi mætt á hans fólki og björgunarsveitarfólki við að aðstoða vegfarendur vegna veðurs og ófærðar. Margir hefðu mátt taka til sín viðvaranir sem gefnar voru út í gær. Innlent 28. september 2021 18:04
Öryggismyndavélar ættu að eyða allri óvissu Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, segir það alls ekki útilokað að starfsmenn Hótels Borgarness gætu hafa farið inn í sal hótelsins á meðan atkvæði voru geymd þar óinnsigluð áður en þau voru endurtalin síðasta sunnudag. Hann fullyrðir þó að enginn hafi átt við gögnin, allt hafi verið eins og hann skildi við það þegar hann kom til baka og segir að öryggismyndavélar úr salnum ættu að geta sannað það að ekkert kosningasvindl hafi verið framið. Innlent 28. september 2021 17:11
Sauðá á Króknum svo til hætt að renna Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur sent frá sér áríðandi tilkynningu þar sem fram kemur að boð hafi borist þess efnis að Sauðá á Sauðárkróki sé hætt að renna að mestu leyti. Innlent 28. september 2021 15:36
Lét öllum illum látum á slysadeild Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um mjög æstan mann á slysadeild Landspítalans. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Innlent 28. september 2021 06:06
Djöfulgangur og læti á bílaplaninu við Smáralind Lögreglan fær hverja einustu helgi útkall vegna hávaða á bílaplaninu við Norðurturninn í Smáralind. Nágrannar eru þreyttir á ástandinu og kalla eftir aðgerðum. Innlent 27. september 2021 22:01
Lögreglumaður sem skildi eftir kannabisefni við húsleit laus allra mála Hæstiréttur féllst ekki á málskotsbeiðni ákæruvaldsins í máli lögreglumanns sem var sýknaður af ákæru um stórfellda vanrækslu í starfi þegar hann lagði ekki hald á kannabisefni við húsleit. Innlent 27. september 2021 14:35
Ók á þrjá bíla og missti framdekkið undan bílnum Ökumaður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt eftir að hann hafði ekið á þrjá bíla og misst annað framdekkið undan bíl sínum. Maðurinn er grunaður um ölvunarakstur. Innlent 26. september 2021 06:07
Þrír handteknir vegna líkamsárásar í Árbæ Þrír karlmenn voru handteknir á tólfta tímanum í gærkvöldi grunaðir um líkamsárás í Árbæ. Mennirnir eru nú vistaðir í fangageymslum lögreglu fyrir rannsókn málsins. Einn maður var fluttur á slysadeild til aðhlynningar fyrir vistun en ekki er vitað um áverka. Innlent 26. september 2021 06:05
Handtekinn á Seltjarnarnesi grunaður um fjölda afbrota Einn þriggja ungra karlmanna sem voru handteknir á Seltjarnarnesi í nótt er grunaður um hótanir, líkamsárás, brot á vopnalögum og vörslu fíkniefna. Hann var vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar lögreglu í nótt. Innlent 25. september 2021 07:24
Þórhildur Gyða hefur kært Sigurð G. vegna umdeildrar Facebook-færslu Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur kært hæstaréttarlögmanninn Sigurð G. Guðjónsson til lögreglu, Persónuverndar og Lögmannafélags Íslands fyrir að hafa birt myndir úr lögregluskýrslu hennar. Þetta staðfestir lögmaður Þórhildar í samtali við Vísi. Innlent 24. september 2021 17:18
Vildi ekki þiggja aðstoð eftir umferðarslys en sagðist sár eftir líkamsárás Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys í miðborginni um kvöldmatarleytið í gær. Þar hafði bifreið verið bakkað á mann sem var að ganga yfir götu. Maðurinn vildi enga aðstoð þiggja, að því segir í tilkynningu lögreglu, en sagðist finna til í öllum skrokknum vegna líkamsárásar sem hann hafði orðið fyrir skömmu. Innlent 24. september 2021 06:11
Leikmaður Lemgo laus úr haldi Leikmaður þýska úrvaldsdeildarliðsins Lemgo, sem handtekinn var hér á landi í morgun vegna gruns um kynferðisbrot, er laus úr haldi. Lögreglan segir rannsókn málsins ganga vel. Innlent 23. september 2021 20:18