Skallaði konu í andlitið Maður skallaði konu í andlitið í Hafnarfirði skömmu fyrir tvö í nótt. Sá var handtekinn og vistaður í fangageymslu en konan hlaut meðal annars bólgur í andliti. Innlent 24. apríl 2022 07:23
Svanhvít fannst látin Svanhvít Harðardóttir, sem lýst var eftir í gær, fannst látin í kvöld. Innlent 24. apríl 2022 00:05
Sló starfsmann sem bað hann um að hætta að borða ferskt grænmeti Það var nóg um að vera hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Nokkrir voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og var einn þeirra gómaður tvisvar eftir að hafa náð í aukalykla af bifreið sinni. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 23. apríl 2022 18:49
Nota dróna og hunda við leitina Á þriðja tug björgunarsveitarmanna hófu skömmu fyrir hádegi leit á ný að Svanhvíti Harðardóttur, konu sem saknað hefur verið síðan á fimmtudag. Innlent 23. apríl 2022 15:22
Björgunarsveitir í biðstöðu en vísbendingar af skornum skammti Björgunarsveitir eru í biðstöðu vegna leitar að Svanhvíti Harðardóttur, sem ekkert hefur spurst til síðan á miðvikudag. Innlent 23. apríl 2022 11:11
Skoða hvort eitthvað liggi að baki árásinni Lögregla rannsakar hvort árás sem gerð var á sautján ára pilt í miðborginni í nótt hafi verið að yfirlögðu ráði eða tilviljunarkennd. Innlent 23. apríl 2022 10:26
Sautján ára fluttur með sjúkrabíl eftir árás Ráðist var á sautján ára dreng í miðborg Reykjavíkur klukkan hálf fjögur í nótt. Árásarmennirnir flúðu af vettvangi en drengurinn var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku. Líðan drengsins liggur ekki fyrir. Innlent 23. apríl 2022 07:26
Ríflega eitt hundrað leita Svanhvítar Ríflega eitt hundrað björgunarsveitarmenn leita nú Svanhvítar Harðardóttur á Völlunum í Hafnarfirði. Síðast er vitað um ferðir hennar klukkan 13:00 í gær. Innlent 22. apríl 2022 22:32
Vélin er komin á þurrt land Flak flugvélarinnar TF-ABB var híft upp úr Þingvallavatni rétt í þessu. Aðgerðir hafa staðið yfir við vatnið í allan dag og vélin hefur verið hífð upp í áföngum. Innlent 22. apríl 2022 19:54
Gabríel kominn á Hólmsheiði en félagar hans lausir Strokufanginn, sem leitað var síðustu daga og kom í leitirnar í morgun, hefur verið færður í afplánun í fangelsið á Hólmsheiði. Fimm félagar hans sem einnig voru handteknir eru lausir úr haldi lögreglu. Innlent 22. apríl 2022 18:13
Guðríður komin í hald lögreglu Lögreglan á Vesturlandi hefur lagt hald á styttuna af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stolið var af stöpli á Laugarbrekku og komið fyrir inni í listaverki fyrir framan Nýlistasafnið í Reykjavík. Innlent 22. apríl 2022 17:49
Töluvert tjón á hópferðabíl eftir „graff“ Snemma í morgun var tilkynnt um eignarspjöll í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þar höfðu skemmdarvargar spreyjað málningu eða „graffað“ á hópferðabíl svo töluvert tjón hlaust af. Innlent 22. apríl 2022 17:31
Lýst eftir Svanhvíti Harðardóttur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Svanhvíti Harðardóttur, 37 ára. Hún er 167 sm á hæð, sólbrún með ljóslitað rúmlega axlarsítt hár. Innlent 22. apríl 2022 15:44
Búið að hífa vélina af botni Þingvallavatns Aðgerðir við að hífa flak flugvélarinnar TF-ABB upp úr Þingvallavatni eru hafnar. Vélin er komin upp af botni vatnsins. Innlent 22. apríl 2022 15:19
Hafnar því að rasismi grasseri innan lögreglunnar Dómsmálaráðherra er sannfærður um að lögregla dragi lærdóm af máli strokufanga í kjölfar samfélagsumræðu sem spannst um viðbrögð hennar við leitina. Hann hafnar því að viðbrögðin hafi grundvallast á rasisma. Innlent 22. apríl 2022 13:33
Hífa vélina upp í skrefum og vona að aðgerðum ljúki í kvöld Flak flugvélarinnar TF-ABB verður híft upp af botni Þingvallavatns í dag en vélin brotlenti í vatninu fyrir rúmum tveimur mánuðum. Lögregla er með mikinn viðbúnað á svæðinu en flakið verður fært upp á land í nokkrum skrefum. Vonir eru bundnar við að aðgerðum verði lokið um kvöldmatarleytið. Innlent 22. apríl 2022 12:03
Handtóku Gabríel og félaga hans í sumarbústað Strokufanginn sem leitað var að í vikunni var handtekinn í sumarbústað rétt utan við borgina ásamt fimm öðrum eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir. Innlent 22. apríl 2022 11:58
Segir rauðhærða og skeggjaða oft lenda í „þessu veseni“ Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, telur að fólk þurfi að vera „sérkennilega innréttað“ til að sjá kynþáttafordóma í máli þar sem sextán ára þeldökkur drengur var í tvígang stöðvaður af lögreglu í tengslum við leit hennar að strokufanga. Innlent 22. apríl 2022 10:21
Hífa flugvélarflakið af botni Þingvallavatns í dag Í dag stendur til að hífa flugvélina TF-ABB af botni Ölfusvatnsvíkur í Þingvallavatni. Björgunarmenn undirbúa sig nú við bakka vatnsins. Innlent 22. apríl 2022 09:45
Lögreglan handtók Gabríel í nótt Lögregla hefur handtekið hinn tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í vikunni. Innlent 22. apríl 2022 08:23
Dekk losnaði undan bíl og skoppaði niður Ártúnsbrekku Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út nokkru fyrir klukkan 21 í gærkvöldi þegar tilkynnt var um umferðaróhapp í Ártúnsbrekku í Reykjavík. Dekk hafði þar losnað undan bíl og skoppaði það svo niður Ártúnsbrekkuna án þess þó að lenda á öðru ökutæki. Innlent 22. apríl 2022 06:44
Lögregla hafi ekki átt annarra kosta völ: „Við erum að leita að hættulegum manni“ Ríkislögreglustjóri segist ekki geta útilokað fordóma í lögreglunni en telur lögreglu ekki hafa sýnt fram á rasisma í tengslum við leitina að strokufanga. Hún segir lögreglu ekki hafa val um að fylgja eftir ábendingum í leit að eftirlýstum manni og að viðbrögð lögreglu hafi verið rétt. Henni þyki leitt að ungur maður hafi dregist inn í málið og að verið sé að ræða hvernig bæta megi aðgerðir í framhaldinu. Innlent 21. apríl 2022 20:00
Telur mál piltsins ekki merki um rasisma í lögreglunni Doktor í afbrotafræði telur ekki að viðbrögð lögreglu, sem hefur nú haft afskipti af unglingspilti í tengslum við leit að strokufanga tvígang, beri vott um rasisma. Pilturinn er ekkert tengdur málinu en er dökkur á hörund eins og strokufanginn. Innlent 21. apríl 2022 19:05
Beina sjónum að félögum strokufangans Leit stendur enn yfir að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama sem strauk úr Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. Lögregla segir fjölmargar ábendingar hafa borist vegna leitarinnar en allt kapp er lagt á að finna Gabríel. Innlent 21. apríl 2022 18:40
Virðist í sama ástandi og þegar skilið var við hana í febrúar Draga á flak flugvélarinnar TFF-ABB upp úr Þingvallavatni í fyrramálið. Vinnubúðir verða settar upp við vatnið í dag en á sjötta tug koma að verkefninu. Flugvélin hefur legið á botni vatnsins í rúma tvo mánuði en virðist í sama ástandi og þegar skilið var við hana í febrúar. Innlent 21. apríl 2022 15:31
Fer fram á að lögregla svari fyrir verklag sitt Þingmaður Pírata hefur farið fram á að dómsmálaráðherra og lögreglan mæti á opinn fund allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis til að svara fyrir verklag sitt við leitina að Gabríel Douane Boama. Innlent 21. apríl 2022 14:08
Maður á Teslu hafi tilkynnt son hennar í bakaríinu Móðir drengsins sem lögregla hefur nú haft afskipti af í tvígang í tengslum við leit að strokufanga segir málið hafa gríðarleg áhrif á son sinn, sem sé nú í raun fangi á eigin heimili. Hún var með syni sínum í bakaríi í Mjóddinni í morgun þegar lögreglumenn renndu í hlað að fylgja eftir ábendingu um mögulega staðsetningu strokufangans - sem reyndist sextán ára sonurinn. Innlent 21. apríl 2022 13:23
Höfðu afskipti af piltinum í annað sinn Lögregla hafði í morgun í annað sinn afskipti af unglingspilti í tengslum við leitina að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í fyrradag, að sögn móður hans. Drengurinn sem lögregla hafði afskipti af er alls ótengdur málinu en ríkslögreglustjóri harmaði að drengurinn hefði dregist inn í málið í gær. Innlent 21. apríl 2022 12:01
Strokufanginn enn ófundinn Lögregla leitar enn að hinum tvítuga Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lögreglu í fyrradag. Innlent 21. apríl 2022 10:13
Pantaði mat á veitingastað og gat ekki borgað Karlmaður pantaði mat á veitingastað í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan 23 í gærkvöldi en þegar rukka átti manninn gat hann ekki borgað fyrir veitingarnar. Lögregla var kölluð á staðinn og leysti úr málinu. Innlent 21. apríl 2022 07:22