Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Hætt hefur verið við eða hlé gert á rúmum helmingi af stærstu kolefnisföngunarverkefnum sem áformuð voru í Svíþjóð. Stefna sænskra stjórnvalda um kolefnishlutleysi á næstu tuttugu árum byggir að hluta til á að kolefni verði fangað í auknum mæli. Erlent 16.3.2026 08:33
Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Sænskir jarðfræðingar telja að aðstæður séu til þess að farga hundruð milljónum tonna af koltvísýringi í berggrunni utan stranda Svíþjóðar undir Eystrasalti. Aðferðin væri sambærileg við tækni sem íslenska fyrirtækið Carbfix hefur þróað. Erlent 15.3.2026 07:01
Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Kjartan Kjartansson, blaðamaður Vísis, hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2025 fyrir umfjöllun sína um loftslagsmál. Innlent 13.3.2026 18:21
Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Innlent 13.3.2026 06:02
„Við hefðum náð meiri árangri með því að vera innan Evrópusambandsins“ Íslensk stjórnvöld hefðu náð betri árangri í samningaviðræðum um undanþágur frá losunarheimildum ETS-kerfisins hefði Ísland verið hluti af Evrópusambandinu að mati utanríkisráðherra. Hún ítrekaði orð sín um að hún myndi ekki skrifa undir slæman samning. Innlent 8. mars 2026 12:01
Samfylkingin sé að vinna mót „í vondri pólitík“ „Miðjan færist til hægri. Hægrið færist enn lengra í sömu átt,“ sagði Svandís Svavarsdóttir í síðustu ræðu sinni sem formaður Vinstri grænna. Hún gagnrýndi Samfylkinguna sem væri að vinna á „þríþrautarmóti í vondri pólitík“. Innlent 7. mars 2026 15:12
Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands heldur í dag málþing um stöðu loftlagsrannsókna á Íslandi, helstu þekkingargöt og brýna þörf á aukinni samhæfingu rannsókna og miðlun á niðurstöðum þeirra. Fylgjast með má málþinginu á Vísi. Innlent 6. mars 2026 12:32
Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Hlýindi í hafinu víða í kringum Ísland í febrúar voru þau mestu frá upphafi mælinga Hafrannsóknastofnunar. Vísbendingar eru um að hringrás sem flytur hlýjan sjó til norðurs hafi styrkst en óvissa ríkir enn um framtíð hennar í hlýnandi heimi. Innlent 6. mars 2026 09:28
Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Hópur vísindamanna í Hollandi segir að fjöldi jarðarbúa sem er talinn í hættu vegna vaxandi ágangs sjávar sé mun meiri en áætlað hefur verið hingað til vegna þess að sjávarhæð hafi verið verulega vanmetin. Erlent 5. mars 2026 15:43
Þekking er lykillinn að lausnum í loftslagsmálum Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun samtímans. Til að bregðast við þeim þurfum við ekki aðeins pólitískar ákvarðanir og tæknilausnir heldur einnig traustan þekkingargrunn. Rannsóknir á loftslagsmálum eru því ekki jaðarmál heldur grundvöllur skynsamlegrar stefnumótunar og ábyrgra ákvarðana. Skoðun 5. mars 2026 10:30
Galíleó-heilkennið og hinn dýrkeypti efi í loftslagsumræðunni Í nýlegu útvarpsviðtali í Bítinu á Bylgjunni endurtók spyrillinn, Heimir Karlsson, nokkrum sinnum þá hugmynd að við ættum að vera meira „efasemdarfólk“ um loftslagsbreytingar af mannavöldum. Skoðun 5. mars 2026 09:01
Hagkerfið allt í hættu „Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran. Viðskipti innlent 3. mars 2026 13:12
Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Bandarískir vísindamenn segja að tilraun sem þeir gerðu með basalausn í Maine-flóa hafi bundið kolefni úr lofti án þess að skaða sjávarlífverur. Utanríkisráðherra hafnaði því að veita leyfi fyrir sambærilegri tilraun í Hvalfirði síðasta sumar þrátt fyrir jákvæðar umsagnir sérfræðistofnana. Erlent 2. mars 2026 15:24
Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Leifar af eldflaugum og gervihnöttum sem brenna upp í lofthjúpnum gætu raskað ósónlaginu og jafnvel hversu mikil sólgeislun berst til yfirborðs jarðar. Vísindamenn sem rannsökuðu endurkomu eldflaugar SpaceX hafa áhyggjur af því að þekkingu skorti á áhrifum geimrusls. Erlent 24. febrúar 2026 07:01
Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Danska ríkisstjórnin ætlar að leggja jafnvirði hátt í þriggja hundraða milljarða íslenskra króna í að verja strandbyggðir landsins fyrir vaxandi ágangi sjávar. Aðgerðirnar eru hluti af aðlögunaráætlun stjórnvalda að loftslagsbreytingum. Erlent 23. febrúar 2026 13:59
Þess vegna er Svíþjóð að standa sig vel Svíþjóð er meðal þeirra ríkja sem hafa náð miklum árangri í loftslagsmálum á síðustu áratugum. Árið 1990 nam losun gróðurhúsalofttegunda um 82,5 milljónum tonna CO₂-ígilda en er í dag um 44 milljónir tonna. Skoðun 23. febrúar 2026 13:32
Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Bandaríkjastjórn hótar því að yfirgefa Alþjóðaorkumálastofunina ef hún fellur ekki frá tali um orkuskipti. Kolefnishlutleysi muni aldrei nást. Erlent 18. febrúar 2026 11:14
Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Icelandair og ítalskt leiguflugfélag fengu úthlutað losunarheimildum frá íslenska ríkinu á grundvelli sérlausnar ESB fyrir Ísland í síðasta mánuði. Ríkissjóður verður af rúmlega 400 milljónum króna í tekjur sem hann hefði getað haft af því að selja heimildirnar. Viðskipti innlent 18. febrúar 2026 08:30
Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu eins og spáð hafði verið. Veðurfræðingur segir að litlu hafi munað, aðeins fjórum eða fimm kílómetrum, að snjókoman næði þangað. Gul viðvörun er á Suður- og Suðausturlandi en snjórinn léttur og festist illa. Veður 18. febrúar 2026 07:27
Er AMOC kerfisáhættan í Epstein-skjölunum? Nei - Veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) kemur ekki fyrir í Epstein-skjölunum. Samlíkingin varpar ljósi á hvernig fjölmiðlaumræða beinist að dramatískum afhjúpunum á kostnað kerfislægra loftslagsógna. Skoðun 18. febrúar 2026 07:00
„Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Stóriðjufyrirtæki í Evrópu halda nú uppi harðri gagnrýni á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Sérfræðingur í kolefnismörkuðum telur vel skipulagða herferð í gangi til þess að hafa áhrif á endurskoðun kerfisins sem stendur fyrir dyrum. Viðskipti innlent 17. febrúar 2026 07:01
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. Innlent 16. febrúar 2026 13:10
Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Færð á jökla eru miklu erfiðari vegna mikillar rýrnunar. Víða eru að koma í ljós sprungusvæði sem geta verið hættuleg ferðamönnum og þeim sem sinna mælingum. Afkomumælingum seinkaði verulega vegna slæmrar færðar og aðgengis. Eins slæmar og mælingar voru fyrir síðasta vetur er útlitið ekkert betra í ár. Hrafnhildur Hannesdóttir, fagstjóri jöklarannsókna hjá Veðurstofu Íslands, hefur miklar áhyggjur af bæði horfum jöklanna og færðinni á þá. Innlent 15. febrúar 2026 19:01
Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fellt úr gildi álit Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna um að gróðurhúsalofttegundir, sem valda hnattrænni hlýnun, séu skaðlegar heilsu og velferð manna. Erlent 13. febrúar 2026 06:58
Orðræðu Viðskiptaráðs um loftslagsskatta snúið upp á loftslagsmál og raunveruleikann Sunnudaginn 8. febrúar síðastliðinn var áhugavert viðtal á Sprengisandi við Björn Brynjúlf Björnsson, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og Geir Guðmundsson verkfræðing um aukinn kostnað í flugi og flutningum vegna afnáms undanþágu sem Íslendingar hafa lengi notið innan viðskiptakerfis ESB um losunarheimildir koldíoxíðs. Skoðun 11. febrúar 2026 18:32