Aðeins Íslendingar undanþegnir skimun í Eistlandi Frá og með deginum í dag taka nýjar sóttvarnareglur gildi á landamærum Eistlands. Samkvæmt þeim eru farþegar sem koma frá Íslandi þeir einu sem undanþegnir verða skimun fyrir kórónuveirunni við komuna til landsins. Erlent 11. janúar 2021 07:17
Rætt við fleiri en Pfizer um rannsókn á hjarðónæmi Rætt hefur verið við nokkra framleiðendur bóluefnis gegn kórónuveirunni um þá hugmynd að Ísland verði einskonar tilraunaverkefni til að rannsaka hjarðónæmi heillar þjóðar. Innlent 11. janúar 2021 06:58
Liggur við að Kári spyrji hvað Svíinn í Sviss sé að reykja „Ég hafði svo sannarlega rangt fyrir mér og það gleður mig,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, um þann spádóm að Íslendingar þyrftu að glíma við nýja bylgju kórónuveirufaraldursins í tengslum við hátíðirnar. Þess í stað hafi gengið prýðilega að halda faraldrinum hér niðri, sérstaklega ef litið er til Bandaríkjanna eða ríkja Evrópu. Innlent 10. janúar 2021 23:56
Fólk sem velur ekki skimun gert að dvelja í sóttvarnarhúsi Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skylda farþega sem neita að fara í landamæraskimun til að fara í 14 daga sóttkví í farsóttarhúsi. Með þessu féllst hún ekki á þá tillögu sóttvarnalæknis að öllum komufarþegum verði skylt að fara í landamæraskimun. Innlent 10. janúar 2021 23:15
Óttast „glatað sumar“ vegna tvöfaldrar skimunar Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skipta sköpum fyrir ferðaþjónustuna að fólk sé ekki skyldað til þess að vera í sóttkví milli skimana og er hún ekki hrifin af þeirri hugmynd að einhverjir gætu verið skyldaðir í farsóttahúsið ef þeir greinist með tiltekið afbrigði veirunnar. Hún efist um að það sé lagaheimild fyrir slíkum aðgerðum. Innlent 10. janúar 2021 21:41
Engir áhorfendur á HM Engir áhorfendur verða á HM í handbolta sem fram fer í Egyptalandi frá 13. janúar. Handbolti 10. janúar 2021 19:03
Segir stjórnvöld hafa gert mistök í að elta Evrópusambandið í bóluefnamálum Prófessor í ónæmisfræði furðar sig á því að Ísland skuli hafa hengt sig á Evrópusambandið við kaup á bóluefni, þegar það sé yfirlýst stefna hérlendra stjórnvalda að vera utan þess. Íslenska þjóðin hefði getað tekið forystu í bólusetningum og þannig klárað að bólusetja alla þjóðina á skömmum tíma. Innlent 10. janúar 2021 17:50
Bóluefnaskammtar fyrir 660 þúsund manns hafa verið tryggðir Búist er við að í næstu viku verði ljóst hvenær bóluefni AstraZeneca fær markaðsleyfi í Evrópu, að sögn forstjóra Lyfjastofnunar. Innlent 10. janúar 2021 17:33
Yfir áttatíu þúsund hafa látist í Bretlandi Frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst í Bretlandi hafa rúmlega áttatíu þúsund látist af völdum veirunnar. Undanfarnar vikur hafa um þúsund manns látist á hverjum sólarhring, en faraldurinn hefur verið í miklum vexti í landinu. Erlent 10. janúar 2021 12:12
Þrír greindust innanlands í gær Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru allir í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. Innlent 10. janúar 2021 10:48
Bóluefnablús Bóluefnið heldur áfram að vera helsta málið. Upplýsingar um magntölur streyma inn en enn virðist allt á huldu um afhendingartíma annað en að ekki muni fást efni fyrstu þrjá mánuði ársins nema til að þá hafi 30 þúsund manns eða rétt ríflega 8% þjóðarinnar verið bólusett. Skoðun 10. janúar 2021 10:01
Búið að bólusetja Elísabetu og Filippus Elísabet II Bretadrottning og Filippus prins, hertogi af Edinborg voru í dag bólusett við Covid-19. Bættast hjónin þar með í hóp um 1,5 milljón Breta sem hafa allavega fengið fyrri skammtinn af bóluefni. Erlent 9. janúar 2021 23:33
Gætu þurft að opna fleiri farsóttarhús vegna mikillar fjölgunar Mikil fjölgun hefur verið í farsóttarhúsinu við Rauðarárstíg síðustu daga. Forstöðumaður segir ekki ólíklegt að það þurfi að opna fleiri slík hús ef fram heldur sem horfir. Ríflega þúsund manns hafa þurft að dvelja í sóttvarnahúsum frá því kórónuveirufaraldurinn hófst. Innlent 9. janúar 2021 22:49
Bjartsýnn á að bólusetningu verði lokið hér á landi í sumar Vonir glæðast um að það styttist í hjarðónæmi á Íslandi og reikna má með því að bólusetningu við Covid-19 verði lokið um mitt sumar. Þetta segir Richard Bergström, sem hefur yfirumsjón með bóluefnamálum í Svíþjóð og á sæti í samninganefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) um bóluefni. Innlent 9. janúar 2021 21:34
Önnur lönd tilkynna um andlát aldraðra eftir bólusetningar Fimmta andlátið sem tengist mögulega bólusetningu við Covid-19 var tilkynnt til Lyfjastofnunar í gær. Þetta er sjötta alvarlega tilkynningin sem stofnunin fær vegna bólusetningarinnar. Forstjóri stofnunarinnar segir að sambærilegar tilkynningar hafi komið upp í nágrannalöndum okkar. Innlent 9. janúar 2021 18:32
Áhyggjuefni hve mikið smituðum hefur fjölgað Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir það kveikja á viðvörunarbjöllum að greindum kórónuveirusmitum hafi fjölgað núna eftir áramót. Tíu greindust með veiruna innanlands í gær en tveir daginn þar áður. Níu af þessum tíu voru í sóttkví. Innlent 9. janúar 2021 16:15
Veiran og vísindin Það er ekki góð leið til að halda athygli lesenda pistils um veirufaraldurinn að byrja að tala um „hina fordæmalausu tíma“. Þetta er vafalaust þreyttasta klisja síðastliðins árs og það er ekki gaman að vera minntur á að þessir tímar standa enn yfir. Skoðun 9. janúar 2021 14:00
Tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út mars Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gert nýjan samning við Icelandair sem tryggir lágmarkssamgöngur milli Bandaríkjanna og Íslands til og með 31. mars. Verður því flogið minnst tvisvar í viku til Boston á því tímabili. Innlent 9. janúar 2021 13:35
Tilkynnt um annað tilvik alvarlegra aukaverkana í kjölfar bólusetningar Ein tilkynning hefur borist til Lyfjastofnunar um andlát eftir bólusetningu gegn Covid-19 til viðbótar við þær fjórar tilkynningar sem greint var frá fyrr í vikunni. Um er að ræða aldraða manneskju sem var bólusett í lok desember en lést fyrir skömmu. Innlent 9. janúar 2021 12:56
Tíu greindust innanlands í gær Tíu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru níu í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í nýuppfærðum tölum á covid.is. Innlent 9. janúar 2021 10:46
„Við viljum ekki að þessar reglur séu of íþyngjandi“ Takmarkanir á samkomum verða rýmkaðar þann 13. janúar. Samkvæmt reglunum verður krám og skemmtistöðum áfram gert að hafa lokað. Heilbrigðisráðherra segist skilja gremju fólks yfir misræmi í sóttvarnaraðgerðum. Innlent 8. janúar 2021 22:37
Eigandi Sporthússins segir reksturinn ekki standa undir sér: „Þetta hjálpar við að lágmarka tjónið eða minnka það“ Eigandi Sporthússins segir rýmkun á sóttvarnareglum hjálpa við að lágmarka tjónið sem líkamsræktarstöðvar hafa orðið fyrir. Reksturinn standi þó ekki undir sér. Innlent 8. janúar 2021 20:26
Allt mótahald á dagskrá: „Þurfum að passa okkur vel svo að við fáum ekki aftur á okkur keppnis- og æfingabann“ Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, var eðlilega himinlifandi með fréttir dagsins en í dag var tilkynnt að keppni í íslenskum íþróttum má fara af stað á nýjan leik frá og með næsta miðvikudegi. Körfubolti 8. janúar 2021 19:46
Breyttar ferðatakmarkanir í Bretlandi og Danmörku Breyttar ferðatakmarkanir eru í Bretlandi og Danmörku vegna faraldurs kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Innlent 8. janúar 2021 18:59
Íslendingar fá tvöfalt fleiri skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech Gert er ráð fyrir því að Ísland geti fengið tvöfalt fleiri skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech við Covid-19 í kjölfar nýs samkomulags Evrópusambandsins (ESB) við framleiðendurna. Þetta staðfestir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í samtali við fréttastofu. Innlent 8. janúar 2021 17:07
Neyðarástandi lýst yfir í London Ráðamenn í London hafa lýst yfir neyðarástandi af ótta við að sjúkrahús í borginni ráði ekki við þá fjölgun sjúklinga sem tengd er við nýtt afbrigði nýju kórónuveirunnar. Á rúmri viku hefur sjúklingum í London sem þurft hafa í öndunarvél fjölgað úr 640 í 908 eða um 42 prósent. Erlent 8. janúar 2021 15:55
Kallar eftir skýrari áætlun lendi lið í sóttkví Darri Freyr Atlason, þjálfari karlaliðs KR í körfubolta, segir vissulega gleðiefni að keppni geti hafist að nýju í Dominos-deildunum í næstu viku. Fyrirvarinn sé hins vegar skammur og því verði KR ekki með fullskipað lið í fyrstu leikjunum eftir hléið langa. Körfubolti 8. janúar 2021 15:23
Leiðrétta nýkynntar sóttvarnareglur: Engar breytingar hjá verslunum Heilbrigðisráðuneytið hefur sent frá sér leiðréttingu og áréttað að engar breytingar verði gerðar á takmörkunum í verslunum þegar nýjar sóttvarnareglur taka gildi þann 13. janúar næstkomandi. Viðskipti innlent 8. janúar 2021 15:16
Gerði samkomulag við Pfizer um að bólusetja alla fyrir páska Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, segist hafa gert samkomulag við Pfizer sem tryggi öllum Ísraelum, eldri en sextán ára, bólusetningu fyrir lok marsmánaðar. Forsætisráðherrann segir að fyrirtækið hafi samþykkt að senda milljónir aukaskammta af bóluefni og þeir fyrstu muni berast á sunnudaginn. Erlent 8. janúar 2021 14:53
Skilja ekki rökin á bak við tillögu Þórólfs Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, skilur ekkert í að þrengja eigi að verslunum frá og með 13. janúar næstkomandi. Heilbrigðisráðherra tilkynnti í dag væntanlegar breytingar á sóttvarnareglum, með fyrirvara um að faraldurinn haldist í lágmarki. Viðskipti innlent 8. janúar 2021 14:48