„Við þurfum að vinna leik á mánudaginn“ Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var að vonum svekktur með tap síns liðs gegn Grindavík nú í kvöld. Körfubolti 23.4.2026 21:41
Breiðablik mun berjast um sæti í Bónus deildinni Breiðablik mun leika til úrslita um sæti í Bónus deild karla. Blikar fóru þægilega í gegnum undanúrslitaeinvígið gegn KV og fögnuðu þriðja sigrinum í kvöld, lokatölur 92-90 en það gefur ranga mynd af leiknum. Körfubolti 23.4.2026 21:08
Grindavík - Njarðvík 94-75 | Grindavík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík er aðeins einum sigri frá úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna í körfubolta, eftir afar öruggan 94-75 sigur gegn Njarðvík í öðrum leik liðanna. Körfubolti 23.4.2026 18:32
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti 22.4.2026 18:34
„Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Það fór ekki vel á með þeim Seth LeDay og Arnari Guðjónssyni í Síkinu í kvöld þegar Stjörnumaðurinn hoppaði og skoppaði utan í Arnar við lok þriðja leikhluta, í undanúrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta. Körfubolti 21. apríl 2026 21:59
Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Íslandsmeistarar Stjörnunnar eiga frábærar minningar úr Síkinu á Sauðárkróki og bættu í safnið í kvöld með mögnuðum sigri gegn Tindastóli, 96-95, í fyrsta leik undanúrslita Bónus-deildar karla í körfubolta. Körfubolti 21. apríl 2026 21:08
Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Victor Wembanyama, leikmaður San Antonio Spurs, var valinn varnarmaður ársins í NBA-deildinni í körfubolta. Hann fékk fullt hús atkvæða í kjörinu. Körfubolti 21. apríl 2026 14:03
Fagnaði sigri með bumbukossi Körfuboltastjarnan Kristófer Acox fagnaði sigri Valsmanna á Keflavík í átta liða úrslitum Bónus-deildarinnar í körfubolta með því að kyssa bumbuna á óléttri kærustu sinni, Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur. Lífið 21. apríl 2026 13:19
Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, segir það klókt hjá Ægi Þór Steinarssyni, leikmanni Stjörnunnar að varpa pressunni yfir á Tindastól fyrir einvígi liðanna í undanúrslitum Bónus deildarinnar sem hefst í kvöld í Síkinu á Sauðárkróki. Körfubolti 21. apríl 2026 12:30
Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Minnesota Timberwolves og Atlanta Hawks jöfnuðu metin í einvígum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Þá er Cleveland Cavaliers í góðri stöðu í sinni rimmu. Körfubolti 21. apríl 2026 11:31
Selfyssingar svöruðu fyrir sig Staðan í einvígi Selfoss og Sindra í undanúrslitum umspils um sæti í Bónus deild karla í körfubolta er orðin 1-1 eftir 85-81 sigur Selfyssinga á heimavelli í kvöld. Körfubolti 20. apríl 2026 22:00
„Í kvöld varð ég að stíga aðeins upp“ Amandine Toi átti stórkostlegan leik í kvöld þegar Haukar tóku forystu í einvígi sínu gegn Keflavík með fjórtán stiga sigri 85-71. Amandine Toi skoraði 34 stig í leiknum og hún ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik. Sport 20. apríl 2026 21:25
Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Íslandsmeistarar Hauka náðu forystunni í einvíginu gegn Keflavík með öruggum fjórtán stiga sigri, 85-71, í fyrsta leik liðanna í Ólafssal í kvöld. Körfubolti 20. apríl 2026 20:50
Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Alba Berlin styrkti stöðu sína í 2. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta með öruggum sigri á Bonn, 91-75, í kvöld. Körfubolti 20. apríl 2026 20:02
Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ „Hann veit að pabbi hans var goðsögn í leiknum og hann er að reyna að gera pabba sinn stoltan,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, um Frank Aron Booker sem átti algjöran stjörnuleik í sigrinum gegn Keflavík í gærkvöld. Körfubolti 20. apríl 2026 15:45
Of mikil pása gæti verið slæm „Þetta leggst bara rosa vel í okkur. Þær eru allar mjög spenntar og bara til í þetta,“ segir Emil Barja þjálfari Hauka fyrir fyrsta leik liðsins gegn Keflavík í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í kvöld en leikurinn fer fram í Ólafssal og verður í beinni á Sýn Sport. Körfubolti 20. apríl 2026 13:31
„Vildi að pabbi væri hérna“ Valur hafði betur gegn Keflavík í oddaleik liðanna í N1 höllinni á Hlíðarenda, 90-74, í kvöld og tryggði sér um leið síðasta sætið í undanúrslitum Bónus deild karla. Þar mæta Valsmenn Grindavík. Frank Aron Booker ræddi við Andra Má Eggertsson eftir leik. Körfubolti 19. apríl 2026 21:37
Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Valur og Keflavík mætast í oddaleik í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta. Sigurvegarinn mætir Grindavík í undanúrslitum en tapliðið fer í sumarfrí. Körfubolti 19. apríl 2026 21:12
„Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Grindavík er komið í bílstjórasætið í einvígi liðsins gegn Njarðvík í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna eftir 81-87 sigur í Njarðvík í kvöld. Körfubolti 19. apríl 2026 19:54
Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Það voru tvö funheit lið sem mættust í Ice Mar höllinni í dag í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna. Körfubolti 19. apríl 2026 19:15
Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Karlalið Keflavíkur er komið í oddaleik í einvígi sínu á móti Val í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta. Keflvíkingar hafa fallið á öllum slíkum prófum undanfarin fimmtán ár. Körfubolti 19. apríl 2026 11:02
Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Úrslitakeppni NBA deildarinnar hófst í nótt og upp úr stendur frammistaða Luke Kennard og LeBron James í 107-98 sigri Los Angeles Lakers gegn Houston Rockets en bæði lið voru meiðslum hrjáð. Körfubolti 19. apríl 2026 09:37
Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma „Ég er svo þakklátur að hafa hitt hann þarna. Það hefði verið mjög erfitt að fyrirgefa sér að hafa ekki farið,“ segir íþróttafréttamaðurinn og skemmtikrafturinn Andri Már Eggertsson. Andri skaust upp á stjörnuhimininn fyrir nokkrum árum, heiðrar landsmenn oft með nærveru sinni á skjánum á íþróttaleikjum og hefur verið hvað þekktastur fyrir viðurnefnið Nablinn. Hann ræddi við blaðamann um líf sitt og tilveru, vonir og drauma, lífsgleðina og mikla sorg sem hann gekk í gegnum fyrir rúmum tveimur árum síðan. Lífið 19. apríl 2026 07:00
Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Hamar/Þór tryggði sér 3-0 sigur í úrslitaeinvígi 1. deildar kvenna með heimasigri á Fjölni. Körfubolti 18. apríl 2026 19:42
Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Surne Bilbao töpuðu í kvöld dýrmætum stigum á heimavelli í baráttunni um að tryggja sér sæti í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Körfubolti 18. apríl 2026 17:22