Ísrael

Ísrael

Höfuðborg: Jerúsalem (yfirlýst höfuðborg Ísraela þó að fæst ríki heims viðurkenni það). Mannfjöldi: 9,9 milljónir (2025). Flatarmál: 22.145 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Fyrstu lotu friðarviðræðna Banda­ríkjanna og Íran lokið

Fyrstu samningalotu Bandaríkjanna og Írans um að ná endanlegu samkomulagi til að binda enda á stríðið lauk snemma í morgun, mánudag. Viðræðurnar hófust í gær í Sviss, í kjölfar samkomulags Bandaríkjanna og Írans í síðustu viku. Tæknilegar viðræður munu halda áfram alla vikuna en áframhaldandi átök í Líbanon eru sögð hafa veruleg áhrif. 

Erlent
Fréttamynd

Vance þreifar fyrir sér í Sviss

Bandaríski varaforsetinn J.D. Vance lenti í Sviss í morgun en þar eiga friðarviðræður milli Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Obbürgen seinna í dag, þrátt fyrir að íranski herinn hafi tilkynnt í gær að Hormússundi yrði lokað að nýju. Bandaríkjamenn segja að enn virðist opið fyrir skipaumferð um sundið.

Erlent
Fréttamynd

Witkoff stefnir til Sviss

Bandarískir og íranskir erindrekar eru sagðir á leið til Sviss í dag í von um að hefja viðræður um framtíð kjarnorkuvopna í Íran. Ekki liggur fyrir hvort viðræður hefjist í dag og þær virðast háðar því að átökum linni í Líbanon, en þar eru ellefu manns sagðir látnir eftir árásir Ísraels síðasta sólarhringinn.

Erlent
Fréttamynd

Ísrael semur um vopna­hlé við Hezbollah

Ísraelsk stjórnvöld og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa náð samkomulagi um vopnahlé. Aðgerðir Ísraelshers í sunnanverðu Líbanon hafa staðið yfir síðustu mánuði með það að markmiði að gera út um samtökin sem eru á lista yfir hryðjuverkasamtök víða um heim.

Erlent
Fréttamynd

Hættu skyndi­lega við við­ræðurnar í Sviss

Ekkert verður af fyrirhuguðum viðræðum Bandaríkjanna og Írans sem áttu að hefjast í Sviss í dag. Varaforseti Bandaríkjanna er sagður hafa hætt við á flugvellinum eftir að fréttist af árásum Ísraela á Líbanon í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið

Gjaldtaka af skipum sem sigla um Hormússund hefst eftir að tveggja mánaða viðræðum Írana og Bandaríkjamanna lýkur, að sögn íranskra stjórnvalda. Samkomulag sem skrifað var undir í vikunni kveður á um að sundið verði opnað og án gjaldheimtu.

Erlent
Fréttamynd

Þetta er í sam­komu­lagi Trumps við Írani

Samkomulag sem Bandaríkjamenn og Íranir skrifuðu undir í gærkvöldi felur í sér vopnahlé, opnun Hormússund og að Íranir komi sér ekki upp kjarnavopnum. Bandaríkjamenn skuldbunda sig einnig til þess að aflétta öllum viðskiptaþvingunum á Íran, skipta sér ekki af innri málefnum landsins og að skila frystum eignum Írana.

Erlent
Fréttamynd

Sam­komu­lag um sam­komu­lag undir­ritað og klárt

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagt að bráðabirgðasamkomulag um að binda enda á stríðið við Íran hafi þegar verið undirritað og gaf í skyn að upplýsingar um samkomulagið yrðu birtar „mjög fljótlega“.

Erlent
Fréttamynd

Lét Netanjahú heyra það í sím­tali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“

„Af hverju í andskotanum þurfti Bibi að gera árás? Ég varð svo brjálaður. Ég lét hann vita af því. Hann hefur enga helvítis dómgreind. Ég sagði honum það.“ Þetta segir Donald Trump Bandaríkjaforseti um árás Ísraelshers á Líbanon í dag og samtal sem hann átti við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í kjölfarið.

Erlent
Fréttamynd

Friðar­við­ræður sagðar í uppnámi

Aðalsamningamaður Íran sagði friðarviðræður við Bandaríkin í uppnámi eftir nýjustu loftárás Ísraela á Beirút, höfuðborg Líbanon. Þrír eru látnir og fimmtán særðir í úthverfum borgarinnar eftir árásina, að sögn yfirvalda í Líbanon. Þá hafa byggingar og verslanir orðið fyrir umtalsverðum skemmdum. 

Erlent
Fréttamynd

Full­yrti að sam­komu­lag yrði undir­ritað og sundið opnað

Íran og Bandaríkin hafa aldrei verið jafn nálægt samkomulagi um endalok stríðsins, að sögn fulltrúa Pakistans sem hafa milligöngu um friðarviðræður ríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti að samkomulag yrði undirritað á morgun en stjórnvöld í Íran gáfu til kynna að samningsaðilar þyrftu aðeins meiri tíma.

Erlent
Fréttamynd

„Af­leiðingarnar muni vara í ein­hver ár jafn­vel“

Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 

Erlent
Fréttamynd

Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vestur­bakkanum

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sakað Ísraela um þjóðernishreinsanir gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum. Rannsakendur samtakanna segja aukinn hraða á uppbyggingu landtökubyggða á Vesturbakkanum og hún sé studd af ríkinu. Þúsundir Palestínumanna hafi verið reknir af heimilum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Hækka vöru­verð: „Um­hverfið mjög krefjandi“

Hækkandi ál- og olíuverð er farið að skila sér í verðhækkunum á mat- og drykkjarvöru, að sögn framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar en félagið tilkynnti nýlega um verðhækkanir á öllum sínum framleiðsluvörum, svo sem gosdrykkjum. Rekstrarumhverfið sé orðið krefjandi en hann sé áfram bjartsýnn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Báðir segjast hættir, í bili

Útlit er fyrir að átökunum milli Ísrael og Íran, sem blossuðu upp á nýjan leik í gærkvöldi, sé lokið eða í það minnsta í bili. Ráðamenn í báðum ríkjum segjast hættir árásum en halda möguleikanum á því að hefja þær að nýju opnum.

Erlent
Fréttamynd

Íranir skjóta á Ísrael

Íranir gerðu í kvöld loftárás á Ísrael í kjölfar þess að Ísraelsmenn gerðu árásir í höfuðborg Líbanon fyrr í dag þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi þar. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael í tæpan mánuð. Ísraelsmenn heita hefndum.

Erlent
Fréttamynd

Sam­þykkja að koma á vopna­hléi

Leiðtogar Ísraels og Líbanon hafa samþykkt að vopnahléi verði komið á landanna á milli. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Ísraels, Líbanon og Bandaríkjanna sem send var út í nótt. Samkvæmt samkomulaginu þarf Hezbollah að hætta öllum árásum á Ísrael og flytja alla liðsmenn sína frá suðurhluta Líbanon.

Erlent
Fréttamynd

„Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels munnhjuggust ansi harkalega í símtali sín á milli að sögn heimildarmanna. Trump mun hafa sagt Netanjahú að hann sé „fokking klikkaður“ og að allir hati hann.

Erlent
Fréttamynd

Áfram­haldandi á­tök í Líbanon þrátt fyrir sam­komu­lag

Átök héldu áfram í Líbanon í nótt þrátt fyrir að Ísraelar og Hezbollah hafi samþykkt tillögu Bandaríkjamanna um staðbundið vopnahlé. Hezbollah gerði í nótt þrjár árásir á ísraelska skriðdreka og hermenn nærri þorpum í norðurhluta Ísrael og ríkismiðlar í Líbanon hafa greint frá árásum Ísraela í suðurhluta landsins.

Erlent