Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 16. ágúst 2026 12:48 Dorrit Moussaief virðist ekki ánægð með þessa landa sína. Vísir/Samsett Dorrit Moussaief fyrrverandi forsetafrú vill fá að ræða við eigendur kaffihússins Lava Sweets í Keflavík og biðja þau afsökunar.
Palestínskir eigendur staðarins segja fjóra menn hafa ógnað starfsmanni staðarins og valdið tjóni eftir að hafa séð að á veggnum var kort af Palestínu með vinsælu slagorði. Farah Al-Qasem, sem á Lava Sweets ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, sagði ísraelska ferðamenn hafa komið inn á kaffihúsið eftir að hafa hoggið eftir mynd á vegg staðarins. „Einn úr hópnum kom að starfsmanninum við afgreiðsluborðið og sagði: af hverju eruð þið með þessa mynd hérna? Þið eruð að hvetja til þjóðarmorðs, til ofbeldis og svo framvegis,“ sagði Farah og sagði hann hafa ógnað starfsmanni kaffihússins. Í kjölfar atviksins segir Farah að fjöldi neikvæðra umsagna hafi birst um staðinn á Google Maps á skömmum tíma. Staðurinn hafi áður verið með fimm stjörnu einkunn úr um þrjú hundruð umsögnum en falli nú niður í 4,8 stjörnur eftir að átta nýjar einnar stjörnu umsagnir bárust, frá fólki sem hún segir ekki hafa heimsótt staðinn. Myndin sem hangir á veggnum.Instagram/irocizim Málið hefur vakið mikla athygli á heimsvísu og fréttaveita á samfélagsmiðlum birti meðal annars myndina sem um ræðir ásamt upptöku úr öryggismyndavél frá atvikinu. Þessi færsla hefur dreifst víða og hafa þúsundir gert athugasemdir við hana. Meðal þeirra er Dorrit Moussaief sem er sjálf ísraelsk og fæddist í Jerúsalem. „Getur einhver komist að því hvað staðurinn heitir og hver síminn þeirra er? Ég vil fá að biðja þau afsökunar og ræða við þau,“ skrifar hún í athugasemd við færsluna.
Palestína Ísrael Reykjanesbær Veitingastaðir Dorrit Moussaieff Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira