Vegagerð hafin milli Mjólkár og Dynjanda Vinna er hafin við lagningu nýs vegarkafla Vestfjarðavegar í botni Arnarfjarðar, milli Mjólkárvirkjunar og fossins Dynjanda. Kaflinn er 4,3 kílómetra langur fyrir Meðalnes, milli Dynjandisvogar og Borgarfjarðar. Suðurverk annast stóran hluta verksins sem undirverktaki Íslenskra aðalverktaka. Innlent 27. janúar 2021 13:45
Söguleg skipun forstöðumanns Fjölmenningarseturs Nicole Leigh Mosty hefur verið skipuð í embætti forstöðumanns Fjölmenningarseturs til fimm ára. Hún tekur til starfa þann 1. mars. Greint er frá skipun Ásmundar Einar Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, á vef stjórnarráðsins. Innlent 26. janúar 2021 16:18
Róa lífróður eftir að stjórnandi „gerði skandal sem við vissum ekki um“ Jón Guðbjartsson, stjórnarformaður rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði, segir að bókhald fyrirtækisins hafi „byggst á skáldskap í allt of langan tíma.“ Nú sé unnið að því að reyna að bjarga félaginu. Viðskipti innlent 25. janúar 2021 11:50
Rýmingu aflétt í Skutulsfirði Veðurstofan hefur aflýst hættustigi sem varðar þau þrjú atvinnuhúsnæði sem rýmd voru á Ísafirði í Skutulsfirði síðastliðinn föstudag. Innlent 25. janúar 2021 08:46
Íbúar húsanna þriggja á Flateyri mega snúa heim Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á Flateyri en íbúum þriggja íbúðarhúsa var gert að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. Þeir mega því snúa heim. Sömuleiðis er talið óhætt að dvelja á hafnarsvæðinu og viðvörunarljósið þar verður slökkt. Innlent 24. janúar 2021 14:51
Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt og stöðvaðist skammt utan við veginn að íbúðarhúsinu Sólbakka. Unnið er að könnun á ummerkjum flóðsins. Innlent 24. janúar 2021 11:54
Varðskipið Þór heldur vestur á firði Varðskipið Þór verður til taks í samvinnu við lögregluna á Vestfjörðum og almannavarnir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Varðskipið verður þar á meðan þurfa þykir. Innlent 23. janúar 2021 22:01
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Flateyri Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu og verða þrjú íbúðarhús rýmd á Flateyri. Innlent 23. janúar 2021 15:32
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Ísafirði Ákveðið hefur verið að rýma hús á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að um reit níu sé að ræða og á honum sé atvinnuhúsnæði sem tryggt hafi verið að væru mannlaus í gærkvöldi. Innlent 23. janúar 2021 09:52
Þjóðþekktir á meðal hinna hugrökku á slysstað í Skötufirði Lögreglan á Vestfjörðum segir að fjórir vegfarendur sem fyrstir komu á vettvang umferðarslyssins í Skötufirði þann 16. janúar hafi sýnt mikið hugrekki og unnið vel á vettvangi. Fjórmenningarnir eru sumir hverjir þjóðþekktir og segir lögregla að þeir hafi veitt fyrstu hjálp í slysinu. Á endanum kostaði slysið unga móður og barn hennar, sem búsett voru á Flateyri, lífið. Innlent 23. janúar 2021 08:00
Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum, en nokkur minni snjóflóð hafa verið að falla á svæðinu. Ekkert þeirra hefur þó náð niður á veg. Innlent 22. janúar 2021 18:16
Tomasz og fjölskylda þakka þeim sem komu að slysinu Lögregla hefur komið á framfæri kæru þakklæti frá Tomasz Majewski og fjölskyldu hans til vegfarenda sem voru fyrstir á vettvang í Skötufirði á laugardag og til allra viðbragðsaðila auk starfsfólks Landspítalans. Innlent 22. janúar 2021 14:26
Snjóflóð féll fyrir ofan veginn um Eyrarhlíð Í morgun féll lítið snjóflóð á varnarþil fyrir ofan veginn um Eyrarhlíð sem liggur á milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Innlent 22. janúar 2021 11:26
Kampi á Ísafirði í greiðslustöðvun og starfsmanni sagt upp Rækjuvinnslan Kampi á Ísafirði fékk í morgun greiðslustöðvun hjá Héraðsdómi Vestfjarða til að komast til botns í fjárhagsvanda fyrirtækisins. Fjármálastjóra fyrirtækisins var sagt upp störfum í desember. Stjórnarformaður Kampa segir stjórnina hafa fengið áfall þegar slæm fjárhagsstaða blasti við í lok árs. Viðskipti innlent 21. janúar 2021 12:52
Vegrið vantar við tugi kílómetra vegarins um Ísafjarðardjúp Rannsókn lögreglu á tildrögum banaslyssins sem varð í Skötufirði á laugardag er ekki lokið. Hálka var á veginum þegar slysið varð og afar lélegt símasamband var á svæðinu. Þá voru engin vegrið við veginn þar sem að bíllinn rann út af og hafnaði í sjónum. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að samkvæmt úttekt sem gerð var við Ísafjarðardjúp árið 2013 vanti vegrið á nokkurra tuga kílómetra kafla, meðal annars í Skötufirði, til að uppfylla núgildandi kröfur. Innlent 20. janúar 2021 19:23
Samfélagið á Flateyri slegið Rannsókn lögreglu á tildrögum banaslyssins í Skötufirði gengur vel en er ekki lokið samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum. Bænastund verður haldin í Flateyrarkirkju í kvöld. Sóknarpresturinn segir slysið hafa mikil áhrif á samfélagið. Innlent 20. janúar 2021 14:01
Líðan mannsins eftir atvikum góð Líðan mannsins sem lifði af bílslysið í Skötufirði á laugardag er eftir atvikum góð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Innlent 20. janúar 2021 11:19
Litli drengurinn látinn eftir slysið í Skötufirði Drengur sem lenti í umferðarslysi ásamt foreldrum sínum í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á laugardag er látinn. Innlent 19. janúar 2021 18:39
Safna fyrir fjölskyldu konunnar sem lést í Skötufirði Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu Kamilu Majewsku, pólskrar konu búsett á Flateyri, sem lést eftir umferðarslys í Skötufirði á laugardagsmorgun. Pólskir vinir konunnar standa að söfnuninni og segja hana til styrktar eiginmanni hennar og sonar sem sé í lífshættu. Innlent 19. janúar 2021 11:50
Lést á gjörgæsludeild eftir slysið í Skötufirði Kona sem lenti í alvarlegu umferðarslysi í Skötufirði í gær lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gærkvöldi. Hún hét Kamila Majewska og var á þrítugsaldri. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu á Vestfjörðum. Innlent 17. janúar 2021 10:37
Skipverjum létt að málinu sé lokið en furða sig á refsingunni Skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni sem smituðust af Covid-19 í veiðiferð um borð í skipinu er létt að máli vegna veikinda þeirra sé lokið en óvissan hefur verið þeim þungbær. Einhverjir þeirra séu þó undrandi á dómi skipstjóra togarans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Verkalýðsfélagi Vestfjarða. Innlent 16. janúar 2021 09:30
Gjafmildi landsmanna bjargaði starfi björgunarsveitarinnar á Flateyri Einu ári eftir að snjóflóð féllu á Flateyri er björgunarsveitin þar á bæ komin í nýtt húsnæði sem sveitin gat keypt með fé sem almenningur og fyrirtæki í landinu gáfu eftir hamfararnir. Í nýja húsnæðinu verður starfrækt heilsugæsla sem var ekki í boði fyrir ári. Innlent 14. janúar 2021 18:01
Hættustigi aflýst á Ísafirði Allir sem fóru í sýnatöku við Covid-19 í morgun á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða reyndust neikvæðir. Viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða hefur því tekið sjúkrahúsið af hættustigi. Innlent 14. janúar 2021 16:54
Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar sviptur réttindum í fjóra mánuði Sveinn Geir Arnarsson, skipstjóri á Júlíusi Geirmundssyni, játaði sök þegar mál lögreglustjórans á Vestfjörðum gegn honum var þingfest fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í dag. Innlent 14. janúar 2021 14:08
„Við álítum þetta mögulega hættu og gætum fyllstu varúðar“ Sjúklingurinn sem greindist með kórónuveiruna á Landspítalanum í gær naut áður þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Af þeim sökum hefur sjúkrahúsið á Ísafirði verið fært á hættustig sem þýðir að þjónustan á sjúkrahúsinu verður í lágmarki þar til frekara ljósi verður varpað á stöðuna fyrir vestan. Innlent 14. janúar 2021 11:11
Sjúkrahúsið á Ísafirði komið á hættustig vegna Covid-19 smits Sjúkrahúsið á Ísafirði er komið á hættustig eftir að sjúklingur sem nú liggur á Landspítala greindist með Covid-19 í gær. Sá hefur á síðustu dögum notið þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þrír starfsmenn á sjúkrahúsinu á Ísafirði eru í sóttkví og þrír til viðbótar í úrvinnslusóttkví. Innlent 14. janúar 2021 10:16
Vestfirðingar vilja láta bora fern ný jarðgöng Forystumenn á Vestfjörðum telja þörf á minnst fernum nýjum jarðgöngum í fjórðungum til að koma samgöngumálum þar í viðunandi horf; einum á norðanverðum fjörðunum og þrennum á sunnanverðum. Innlent 6. janúar 2021 23:19
Förum næst í kræklinginn þegar við verðum búin að byggja upp fiskeldið Kræklingur sest í stórum stíl á fiskeldiskvíar og er vannýtt tegund, að mati fiskeldismanns á Vestfjörðum. Hann hvetur til þess að Vestfirðingar snúi sér að kræklingaeldi þegar búið verði að byggja upp fiskeldið. Innlent 5. janúar 2021 23:19
Ásgeir og Helga trúlofuðu sig við Dynjanda Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Helga Viðarsdóttir viðskiptafræðingur trúlofuðu sig í dag. Frá þessu greina þau í uppfærslum á Facebook. Lífið 1. janúar 2021 22:42
Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar ákærður Skipstjórinn á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefur verið ákærður fyrir brot á sjómannalögum eftir að grunur kom upp um kórónuveirusmit um borð. Tuttugu og tveir skipverjar sýktust af veirunni. Innlent 23. desember 2020 18:26