Borgarsamfélag á hröðu breytingaskeiði Íbúðahverfi sem byggja þarf á næstu áratugum þurfa að mæta þörfum fólks sem eru 60 ára og eldri í mun ríkari mæli en gert hefur verið og sjá má enn í dag í drögum að nýjum og óbyggðum hverfum. Skipulag hverfa, uppbygging innviða og hönnun híbýla þarf að taka mið af félagslegum þörfum fólks á þriðja og fjórða æviskeiði. Umræðan 13.1.2025 09:38
Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Íbúi í Smyrilshlíð í Hlíðarendahverfi hefur miklar áhyggjur af fyrirhuguðu fimm hæða húsi nokkrum metrum frá íbúð hennar. Íbúð sem áður var auglýst sem útsýnisíbúð verði án sólarljóss allan ársins hring breyti borgin ekki áformum. Innlent 9.1.2025 21:58
Högum þykir miður að byggingin valdi óþægindum Forstjóri Haga segir félaginu þykja miður að byggingin við Álfabakka 2, sem félagið hyggst leigja undir ákveðinn hluta starfsemi sinnar, valdi óþægindum fyrir nágranna og hafi fullan skilning á sjónarmiðum íbúa sem fram hafa komið eftir að byggingin reis. Innlent 9.1.2025 11:45
Kortleggja tómar íbúðir í samstarfi við sveitarfélög Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, ætlar að bregðast við ábendingum frá sveitarfélögum um fjölda tómra íbúða. Í nýrri mánaðarskýrslu stofnunarinnar sem kom út í dag kom fram að á landinu væru um tíu þúsund tómar íbúðir. Það væri um 6,5 prósent allra fullbúinna íbúða. Sum telji að fjöldinn sé ofáætlaður og önnur telji hann vanáætlaðan. Viðskipti innlent 19. desember 2024 18:22
Ein af hverjum fimm íbúðum tóm í nokkrum sveitarfélögum Alls eru yfir tíu þúsund íbúðir á landinu án fastrar búsetu sem jafngildir 6,5 prósent allra fullbúinna íbúða samkvæmt varfærnu mati HMS. Hagfræðingur stofnunarinnar segir flestar leigðar út til ferðamanna en það kunni að breytast með hertum reglum. Allt að tuttugu prósent íbúða eru tómar í nokkrum sveitarfélögum á landinu. Innlent 19. desember 2024 13:02
Tómar íbúðir á landinu nú um 10 þúsund Veltan á fasteignamarkaði hefur verið töluverð ef miðað er við árstíma, þrátt fyrir að hafa dregist nokkuð saman frá því í vor. Mest hefur dregið úr veltu í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eftir því sem Grindavíkuráhrif hafa fjarað út. Tómar íbúðir á landinu eru fleiri en 10 þúsund eða um 6,5 prósent allra fullbúinna íbúða. Viðskipti innlent 19. desember 2024 06:27
Dagsljósið hafi gleymst í þéttingu byggðar Ásta Logadóttir, verkfræðingur hjá Lotu og sérfræðingur í birtu og lýsingu í húsum, segir dagsbirtuna oft gleymast þegar verið er að hanna hús. Hún fagnar nýrri reglugerðarbreytingu á byggingarreglugerð og óskar þess að nýr ráðherra taki hana föstum tökum. Innlent 18. desember 2024 23:41
Búseti segir margvíslega galla á deiliskipulaginu Búseti hefur krafið borgina svara um deiliskipulag sem uppbygging ellefu þúsund metra vöruhúss við Álfabakka 2 byggir á. Skipulagið hafi komið borgarfulltrúum í opna skjöldu og breytingar sem gerðar voru árið 2022 hafi ekki verið í samræmi við lög. Innlent 18. desember 2024 20:50
Vöruhúsið ekki hannað af arkitekt „Arkitektar eru sérmenntaðir í að hanna út frá þörfum manneskjunnar á fagurfræðilegum grundvelli, en það er mikill misskilingur að halda að þeir einir komi að mótun borgarumhverfisins. Það gera einnig byggingarfræðingar, byggingatæknifræðingar, verkfræðingar, landslagsarkitektar og fleiri.“ Innlent 17. desember 2024 20:47
Um fimm þúsund fá aðstoð fyrir jólin Félagsráðgjafi með tuttugu ára reynslu af hjálparstarfi dáist að seiglu og útsjónarsemi sem fátækt fólk þarf að sýna um hver mánaðarmót til að lifa af. Jólin reynast þessum hópi oft erfið og aðstoðar Hjálpastarf kirkjunar hátt í fimm þúsund manns sérstaklega í desember. Innlent 16. desember 2024 19:25
Búseti sættir sig ekki við vöruhúsið Húsnæðissamvinnufélagið Búseti sættir sig ekki við stærðarinnar vöruhús sem reist var fáum metrum frá fjölbýlishúsi í þeirra eigu. Framkvæmdastjórinn segir stjórnendur munu funda með lögmanni sínum á morgun. Innlent 15. desember 2024 15:31
Einkaframtakinu sé ekki alltaf treystandi fyrir miklu svigrúmi í skipulagi Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Pírata segir augljóst að einkaframtakinu hafi ekki verið treystandi fyrir rúmum skipulagsheimildum í Breiðholti. Þess vegna séu reglur og kvaðir á skipulag mikilvægar. Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir reglur of strangar en tekur þó fram að mikilvægt sé að borgin hafi afskipti þegar það varði heildarhagsmuni. Innlent 15. desember 2024 14:25
„Framsóknarlegt“ bakkaklór hjá borgarstjóra Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir ummæli borgarstjóra um hæð og útlit umdeilds vöruhúss í Breiðholti „Framsóknarleg.“ Hún segir tillögur hans um að minnka umfang hússins bakkaklór. Innlent 14. desember 2024 17:11
Það þarf að kyngja klúðrinu Við höfum öll getað sett okkur í spor íbúa í Breiðholtinu sem hafa fengið risavaxna geymslu, gluggalausa og flata, sem eina útsýni sitt. Tillitsleysið í þeirra garð þegar ákveðið var að reisa fimm hæða gímald var algert og óskiljanlegt. Skoðun 14. desember 2024 15:30
Festa kaup á áttatíu íbúðum fyrir eldra fólk Leigufélag aldraðra og Brák íbúðafélag hafa komist að samkomulagi um að Brák kaupi öll þrjú fjölbýlishús Leigufélags aldraðra sem eru samtals 80 hagkvæmar leiguíbúðir fyrir eldra fólk. Með kaupunum er ætlunin að ná fram aukinni stærðarhagkvæmni og renna styrkari stoðum undir rekstur íbúðanna og áframhaldandi útleigu þeirra til tekju- og eignalægra eldra fólks. Viðskipti innlent 13. desember 2024 23:07
„Kom mér algjörlega í opna skjöldu að sjá hvernig þetta lítur út“ Borgarstjóri segir hæð og útlit á umdeildu vöruhúsi í Breiðholti hafa komið sér algjörlega í opna skjöldu. Hann vill kanna hvort hægt sé að lækka húsið. Innlent 13. desember 2024 22:55
„Mér finnst þetta bara ömurlegt“ „Ég skil íbúa mjög vel og mér finnst þetta bara ömurlegt,“ sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsráðs, um risavaxið iðnaðarhúsnæði sem risið er í Breiðholti, þétt upp við fjölbýlishús. Innlent 13. desember 2024 06:53
Tíminn til að njóta Sjómannadagsráð afhenti á árinu tvö ný hús með leiguíbúðum á Skógarvegi í Reykjavík. Alls eru þetta 87 íbúðir í tveimur samtengdum húsum fyrir fólk 65 ára og eldra. Fyrra húsið var afhent í júlí og það seinna í október og eru bæði húsin tengd lífsgæðakjarnanum Sléttunni þar sem hægt er að sækja fjölbreytta þjónustu. Skoðun 12. desember 2024 14:02
Síðastliðin tvö ár verið „alveg skelfileg“ Íbúi fjölbýlishúss í Breiðholti er allt annað en ánægður með framkvæmdir sem staðið hafa yfir á næstu lóð í meira en ár. Þegar framkvæmdum lýkur mun standa eftir mörg þúsund fermetra vöruhús, steinsnar frá stofuglugganum. Innlent 11. desember 2024 21:03
Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir Hekla fasteignir hefur keypt fasteign að Drápuhlíð 14 til 16 þar sem áður var heilsugæsla. Félagið er í eigu forstjóra Heklu, Friðberts Friðbertssonar. Heilsugæslan flutti í Skógarhlíð sumarið 2023. Eignina keypti Friðbert af Reykjavíkurborg og ríkissjóði á um 341 milljón. Viðskipti innlent 11. desember 2024 15:02
Galið að lán miðist við stýrivexti Seðlabankans „Til að bæta gráu ofan á svart, þá miðast óverðtryggð og allt að því verðtryggð lán á Íslandi að stórum hluta til við stýrivexti Seðlabankans. Í mínum huga er þetta alveg galið. Seðlabankavextir eru sú prósenta sem að fjármálastofnanir fá fyrir að leggja pening inn í Seðlabankann til sjö daga í senn. Vaxtakjör íslenskra heimila, óverðtryggðra og óbeint verðtryggðra vaxta miðast við sjö daga innlán hverju sinni. Það segir sig nokkuð sjálft að þegar þú ert að líta á þessar sveiflur að þá eru miklu meiri sveiflur í skammtíma vöxtum.“ Innlent 8. desember 2024 18:09
Lánakvótar svarið við háum vöxtum húsnæðislána Hagfræðingur leggur til að stjórnvöld geri Seðlabanka Íslands kleift að nota lánakvóta til að ná niður verðbólgu og vaxtastigi. Mikilvægt sé að bankinn geti náð markmiðum sínum með öðrum hætti en tíðum og miklum stýrivaxtabreytingum. Þannig væri auðveldara að halda lánsvöxtum bæði lægri og stöðugri. Viðskipti innlent 8. desember 2024 15:25
Ekki allir sammála um magn jólaskreytinga eða litaval Hildur Ýr Viðarsdóttir formaður Húseigendafélagsins segir að á þessum árstíma fjölgi alltaf fyrirspurnum til félagsins um skreytingar við hús. Fólk velti því fyrir sér hversu mikið megi skreyta og hvort eitthvað sé of mikið. Þá sé einnig kvartað yfir of miklum skreytingum og spurt um reglur um til dæmis samræmdar skreytingar og kostnað við skreytingarnar. Innlent 4. desember 2024 21:57
Jólaskreytingafyllerí: Eru takmörk fyrir því hversu langt má ganga í jólaskreytingum? Nú brestur á sá tími árs þar sem jólaskreytingar standa sem hæst. En má skreyta út í hið óendanlega? Eru einhver takmörk fyrir því hversu mikið og hvernig má skreyta? Skoðun 4. desember 2024 07:34