Dagný skoraði og Glódís Perla hélt hreinu Fyrirliðinn Dagný Brynjarsdóttir skoraði annað mark West Ham United í 2-0 sigri á Birmingham City í enska deildarbikarnum í fótbolta í dag. Þá stóð Glódís Perla Viggósdóttir vaktina í hjarta varnar Bayern München sem vann sannfærandi 2-0 sigur á Essen í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 27. nóvember 2022 18:46
Frábær endurkoma Króatíu sem ætlar sér langt í Katar Þrátt fyrir að lenda undir snemma leiks þá sneri Króatía taflinu sér í við og vann á endanum magnaðan 4-1 sigur á Kanada í F-riðli HM karla í fótbolta. Fótbolti 27. nóvember 2022 18:00
Íhuga að fá Pulisic á láni til að fylla skarð Ronaldo Forráðamenn Manchester United íhugðu að sækja bandaríska landsliðsmanninn Christian Pulisic á láni frá Chelsea síðasta sumar. Áhuginn er enn sá sami og gæti Man United reynt að fá leikmanninn í sínar raðir þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Fótbolti 27. nóvember 2022 17:00
Marokkó galopnaði F-riðilinn með sigri gegn Belgum Marokkó vann mikilvægan 2-0 sigur er liðið mætti Belgíu í F-riðli heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu sem fram fer í Katar. Með sigrinum stökk marokkóska liðið á topp riðilsins. Fótbolti 27. nóvember 2022 15:00
Sveindís og stöllur styrktu stöðu sína á toppnum með stórsigri Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg unnu öruggan sigur er liðið heimsótti Köln í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur 0-4 og Wolfsburg er nú með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Fótbolti 27. nóvember 2022 14:00
Segir að ummæli Klinsmann um íranska liðið sé „svívirðing við fótbolta“ Carlos Queiroz, þjálfari íranska landsliðsins í fótbolta, segir að ummæli fyrrum knattspyrnumannsins Jürgen Klinsmann um liðið séu „svívirðing við fótbolta.“ Fótbolti 27. nóvember 2022 13:00
Eitt skot á mark og Kosta Ríka heldur sér á lífi Kosta Ríka vann lífsnauðsynlegan 1-0 sigur er liðið mætti Japan á HM í Katar í dag. Keysher Fuller skoraði eina mark leiksins með fyrsta skoti Kosta Ríka á markið í keppninni. Fótbolti 27. nóvember 2022 11:54
Aðstoðarþjálfarinn fær traustið og tekur við Bournemouth Gary O'Neil hefur samið við Bournemouth um að taka við sem aðalþjálfari liðsins í ensku úrvalsdeildinni til ársins 2024. Fótbolti 27. nóvember 2022 11:31
Króatar óska eftir virðingu eftir að þjálfari Kanada sagðist ætla að ríða þeim Zlatko Dalic, þjálfari króatíska landsliðsins í knattspyrnu, hefur beðið kollega sinn hjá kanadíska landsliðinu, John Herdman, um að sýna liðinu sem hafnaði í öðru sæti á seinasta heimsmeistaramóti virðingu eftir að sá síðarnefndi sagði að hann og leikmenn hans myndu ríða Króötum í leik liðanna sem fram fer í dag. Fótbolti 27. nóvember 2022 08:01
Íhugaði að hætta eftir fyrsta leik á HM en mamma talaði hann af því Hinn 26 ára Lucas Hernández, leikmaður Bayern München og franska landsliðsins, íhugaði að binda enda á knattspyrnuferil sinn eftir að hafa slitið krossband í fyrsta leik franska landsliðsins á HM í Katar. Fótbolti 27. nóvember 2022 07:01
Stuðningsmaður Wales lést í Katar Velska knattspyrnusambandið hefur staðfest að einn stuðningsmaður velska landsliðsins hafi látist í Katar þar sem heimsmeistaramótið í fótbolta fer nú fram. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað. Fótbolti 26. nóvember 2022 23:31
KR-ingar ráða norskan aðstoðarþjálfara Knattspyrnudeild KR hefur samið við Norðmanninn Ole Martin Nesselquist og mun hann gegna stöðu aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu. Fótbolti 26. nóvember 2022 23:01
Nökkvi skaut Beerschot á toppinn Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði sigurmark Beerschot er liðið vann 2-1 sigur gegn Anderlecht U23 í belgísku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Sigurinn skaut Nökkva og félögum á topp deildarinnar. Fótbolti 26. nóvember 2022 21:45
Argentínumenn héldu vonum sínum á lífi Eftir óvænt tap gegn Sádí-Arabíu í fyrsta leik þurfu Lionel Messi og félagar hans í argentínska landsliðinu sárlega á sigri að halda gegn Mexíkó í seinasta leik dagsins á HM í Katar. Messi og Enzo Fernandez sáu um markaskorun Argentínumanna og niðurstaðan 2-0 sigur. Fótbolti 26. nóvember 2022 20:58
Hjörtur og félagar kláruðu leikinn í fyrri hálfleik Hjörtur Hermannsson og félagar hans í Pisa unnu öruggan 3-1 sigur er liðið tók á móti Ternana í ítölsku B-deildinni í fótbolta í kvöld þar sem öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Fótbolti 26. nóvember 2022 18:58
Heimsmeistararnir fyrstir til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Ríkjandi heimsmeistarar Frakklands urðu í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum HM í Katar er liðið vann 2-1 sigur gegn Dönum. Fótbolti 26. nóvember 2022 17:58
Guðný lagði upp í stórsigri í Íslendingaslag Guðný Árnadóttir og stöllur hennar í AC Milan unnu sannkallaðan stórsigur er liðið heimsótti Alexöndru Jóhannsdóttur og liðsfélaga hennar í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 1-6 og Guðný átti sinn þátt í fyrsta marki gestanna. Fótbolti 26. nóvember 2022 15:40
Loksins skoraði Lewandowski á HM og Pólverjar upp í efsta sæti Pólverjar unnu mikilvægan 2-0 sigur er liðið mætti Sádí-Arabíu í C-riðli heimsmeistaramótsins í Katar. Sigurinn lyftir Pólverjum upp í efsta sæti riðilsins og setur bæði Mexíkó og Argentínu í erfiða stöðu fyrir seinni leik riðilsins í dag. Fótbolti 26. nóvember 2022 15:05
Fiskaði víti og kallaður snillingur Meðlimur nefndar sem greinir alla leiki á HM í Katar fyrir Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hrósar Cristiano Ronaldo og segir portúgalska framherjann með snilligáfu. Ástæðan er hvernig Ronaldo fiskaði vítaspyrnu í 3-2 sigir Portúgals á Gana. Fótbolti 26. nóvember 2022 13:00
Ástralía lætur sig dreyma eftir sigur á Túnis Ástralía vann 1-0 sigur á Túnis í fyrsta leik dagsins á HM í Katar. Sigurinn þýðir að Ástralía á enn möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Fótbolti 26. nóvember 2022 12:00
Felix vill yfirgefa Madríd Portúgalski landsliðsmaðurinn João Félix hefur fengið nóg af bekkjarsetunni hjá Atlético Madríd og vill yfirgefa félagið þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Fótbolti 26. nóvember 2022 11:30
Southgate hrósaði hugarfarinu og segir liðið í góðri stöðu Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, talaði lið sitt upp eftir frekar dapra frammistöðu í markalausu jafntefli liðsins gegn Bandaríkjunum á HM í Katar. Southgate var sérstaklega sáttur með varnarleik sinna manna. Fótbolti 26. nóvember 2022 10:30
Englendingar með annan fótinn í 16-liða úrslit þrátt fyrir töpuð stig England er komið með annan fótinn í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins í knattspyrnu eftir markalaust jafntefli gegn Bandaríkjunum í kvöld. Fótbolti 25. nóvember 2022 20:55
Brassar verða án Neymar út riðlakeppnina Brasilíska landsliðið í knattspyrnu þarf að sætta sig við það að leika án sinnar stærstu stjörnu það sem eftir lifir riðlakeppninnar á HM sem nú fer fram í Katar. Neymar þurfti að fara meiddur af velli í sigri liðsins gegn Serbíu í gær og nú er ljóst að hann missir af næstu tveimur leikjum liðsins. Fótbolti 25. nóvember 2022 19:00
Allt jafnt í toppslag A-riðils Holland og Ekvador skiptu stigunum á milli sín er liðin gerðu 1-1 jafntefli í annarri umferð riðlakeppni HM í dag. Liðin eru nú jöfn á toppi A-riðils með fjögur stig hvort og nákvæmlega sömu markatölu. Fótbolti 25. nóvember 2022 18:00
Sjáðu þrumuræðu Renards sem kveikti í Sádum Hervé Renard, þjálfari sádí-arabíska fótboltalandsliðsins, vann heldur betur fyrir kaupinu sínu í hálfleik í leiknum gegn Argentínu á HM 2022. Sádar voru 1-0 undir í hálfleik en þrumuræða Renards kveikti heldur betur í þeim og þeir skoruðu tvö mörk í byrjun seinni hálfleiks og tryggði sér sigurinn. Fótbolti 25. nóvember 2022 17:00
Senegal gerði út um drauma heimamanna Gestgjafar Katar eru svo gott sem úr leik á HM karla í fótbolta eftir að hafa tapað 3-1 gegn Senegal í A-riðli mótsins í dag. Fótbolti 25. nóvember 2022 14:52
Hoppar yfir Bestu deildina og út í atvinnumennsku eins og Eyjólfur Sverris Gróttumaðurinn Kjartan Kári Halldórsson tekur nú risastökk á sínum ferli með því að gerast atvinnumaður hjá norska félaginu Haugesund. Fótbolti 25. nóvember 2022 13:02
Íran uppskar í blálokin gegn tíu Walesverjum Íran á fína möguleika á að komast í 16-liða úrslit á HM karla í fótbolta eftir að hafa skorað tvö mörk seint í uppbótartíma og unnið Wales, 2-0, í B-riðli. Fótbolti 25. nóvember 2022 12:05
Öryggisverðir tóku treyju með nafni Masha Amini af stuðningsmanni Írans Öryggisverðir á leik Wales og Írans á HM 2022 fjarlægðu treyju stuðningsmanns íranska liðsins með nafni Masha Amini. Fótbolti 25. nóvember 2022 11:55