Sverrir Ingi hafði betur í Íslendingaslagnum Sverrir Ingi Ingason og félagar í Midtjylland gerðu góða ferð til Kaupamannahafnar í dag þar sem liðið lagði heimamenn í FC København með tveimur mörkum gegn engu. Fótbolti 30. september 2023 15:24
Selma Sól kom Rosenborg á bragðið í bikarsigri Landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir var í byrjunarliði Rosenborg þegar liðið tók á móti Lilleström í undanúrslitum norska bikarsins. Fótbolti 30. september 2023 14:50
Karólína Lea setti tvö í stórsigri Leverkusen Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og félagar í Bayer Leverkusen tóku Nurnberg í létta kennslustund í þýsku úrvalsdeildinni þar sem Karólína skoraði tvö mörk og lagði upp eitt mark að auki. Fótbolti 30. september 2023 11:55
Sérfræðingur Sky spáir óvæntu tapi Arsenal gegn Bournemouth Lewis Jones, tippsérfræðingur Sky Sports, segir að það sé ekki óvitlaust að setja pening á að Arsenal tapi sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið sækir Bournemouth heim í dag. Fótbolti 30. september 2023 11:01
Sjálfsmark Sergio Ramos tryggði Barcelona sigur Barcelona settust í toppsæti spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar liðið lagði Sevilla í eina leik kvöldsins. Það var Sergio Ramos sem skoraði eina mark kvöldsins en þó í rangt mark. Fótbolti 29. september 2023 22:19
Víðismenn tryggðu sér Fótbolta.net bikarinn fyrstir allra Knattspyrnufélagið Víðir frá Garði tryggði sér Fótbolta.net bikarinn í kvöld með sigri á KFG í úrslitaleik sem fram fór á Laugardalsvelli. Elís Már Gunnarsson tryggði Víði sigurinn með marki á 88. mínútu. Fótbolti 29. september 2023 21:50
Dortmund skutust á toppinn í bili Borussia Dortmund tyllti sér í toppsæti þýsku Búndeslígunnar, í bili í það minnsta, með góðum 1-3 sigri á Hoffenheim í kvöld. Fótbolti 29. september 2023 20:39
Besta upphitunin: Íslandsmeisturum boðið í spjall Úrslitin eru ráðin í Bestu deild kvenna þetta árið en þó eru enn tvær umferðir eftir í efri hlutanum. Helena Ólafsdóttir hitaði upp fyrir umferð morgundagsins í Bestu upphituninni og fékk til sín góða gesti að vanda. Fótbolti 29. september 2023 18:06
Rúnar Kristinsson ekki áfram með KR KR tilkynnti nú rétt í þessu að félagið muni ekki endurnýja samningi sinn við Rúnar Kristinsson sem rennur út núna um mánaðarmótin. Rúnar hefur stýrt liði KR síðan 2017 og undir hans stjórn hefur KR unnið þrjá Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Fótbolti 29. september 2023 17:46
Á láni hjá Víði og Vestra: Bjórinn frír og þagnarskylda um samninginn Jóhann D. Bianco, einnig þekktur sem Joey Drummer, mun hafa í nógu að snúast um helgina. Það liggur við að hann flytji lögheimili sitt í Laugardal þar sem hann mun halda stemningunni uppi á tveimur úrslitaleikjum á föstudag og laugardag. Íslenski boltinn 29. september 2023 15:01
Xavi hló að blaðamanni: „Nei, ég er ekki hræddur“ Xavi Hernández, þjálfari Barcelona, sat í gær fyrir svörum á blaðamannafundi í aðdraganda leiks Barcelona við Sevilla í kvöld. Hann hafði gaman að spurningu blaðamanns á fundinum. Fótbolti 29. september 2023 14:01
Sjokkeraðir eftir sturlað sigurmark: „Það fallegasta í sögu Noregs“ Fótboltaheimurinn á Noregi fór á hliðina í gærkvöld eftir ótrúlegt mark kamerúnska framherjans Faris Moumbagna sem tryggði Bodö/Glimt sæti í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar. Fótbolti 29. september 2023 12:30
Neuer byrjaður að æfa á ný Manuel Neuer er mættur aftur til æfinga hjá Bayern Munchen eftir að hafa fótbrotnað í skíðaslysi fyrir tæpu ári síðan. Tomas Tuchel, þjálfari liðsins, segir þetta frábærar fréttir en þó sé enn bið í að markvörðurinn mæti aftur á völlinn. Fótbolti 29. september 2023 11:31
Klopp búinn að finna arftaka Salah? Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur áhuga á að fá leikmann frá gamla liðinu sínu, Borussia Dortmund. Enski boltinn 29. september 2023 11:00
Umdeild U-beygja United: Antony æfir og má spila Brasilíumaðurinn Antony, leikmaður Manchester United, er mættur til æfinga hjá félaginu og er laus úr banni frá því að spila fyrir liðið. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Enski boltinn 29. september 2023 10:42
Zidane tilbúinn að snúa aftur í þjálfun með einu skilyrði Franska fótboltagoðið Zinedine Zidane er tilbúinn að snúa aftur í þjálfun, en með einu skilyrði. Fótbolti 29. september 2023 10:31
Eto'o til rannsóknar hjá lögreglunni vegna hagræðingar úrslita Fótboltagoðsögnin Samuel Eto'o er til rannsóknar hjá kamerúnsku lögreglunni vegna gruns um hagræðingu úrslita. Fótbolti 29. september 2023 09:31
Mourinho segir tapið fyrir Alberti og félögum það versta á ferlinum José Mourinho var ekki sáttur eftir að Roma tapaði fyrir Alberti Guðmundssyni og félögum í Genoa, 4-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 29. september 2023 07:31
Fordæma „niðrandi og óþolandi“ söngva eftir komu Greenwoods Spænska úrvalsdeildarliðið Getafe hefur fordæmt það sem félagið kallar „niðrandi og óþolandi“ söngva í garð liðsins eftir að Mason Greenwood gekk í raðir félagsins. Fótbolti 29. september 2023 07:00
Tjá sig um vafasama TikTok-færslu: „Ætluðum aldrei að móðga Victor“ Ítalska knattspyrnufélagið Napoli hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem félagið tjáir sig um vafasöm myndbönd sem birtust á TikTok-reikningi félagsins. Í myndbandinu virðist félagið gera grín að stjörnuframherja liðsins, Victor Osimhen. Fótbolti 28. september 2023 23:31
Biðla til Evrópuþjóða um að spila ekki gegn Rússum þrátt fyrir leyfi UEFA Úkraínska knattspyrnusambandið hefur beðið Evrópuþjóðir um að leika ekki gegn U17 ára landsliði Rússa þrátt fyrir að knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hafi gefið rússneska liðinu grænt ljós á að snúa aftur til keppni. Fótbolti 28. september 2023 23:02
„Það er gaman að vinna Breiðablik“ Valsmenn tryggðu sér í kvöld annað sæti Bestu deildarinnar með sigri á Breiðablik. Lokatölur 4-2 á Hlíðarenda í fjörugum leik. Fótbolti 28. september 2023 21:54
Þrjú rauð er Atlético Madrid hafði betur gegn Osasuna Atlético Madrid vann sinn annan deildarleik í röð er liðið lagði Osasuna á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, 0-2. Fótbolti 28. september 2023 21:52
Albert kom Genoa á bragðið í stórsigri gegn Roma Albert Guðmundsson skoraði fyrsta mark leiksins er Genoa vann öruggan 4-1 sigur gegn Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 28. september 2023 20:43
Selja hlut í Liverpool og borga upp skuldir Eigendur enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, Fenway Sports Group (FSG), hefur selt fjárfestingafyrirtækinu Dynasty Equity hlut í félaginu. Fótbolti 28. september 2023 17:30
Sádarnir vilja kaupa enska dómara Fjölmargir öflugir fótboltamenn hafa flykkst til Sádi-Arabíu undanfarna mánuði. Sádarnir ætla ekki að láta þar við sitja. Fótbolti 28. september 2023 13:00
Heimsmeistari selur sundlaugar Leikmaður heimsmeistaraliðs Frakka 1998 er í nokkuð óvenjulegu starfi. Hann selur nefnilega sundlaugar. Fótbolti 28. september 2023 11:02
Formleg rannsókn á meintum mútum Barcelona hafin á Spáni Formleg rannsókn, á meintum mútum spænska knattspyrnufélagsins Barcelona til spænsku fótboltadómaranefndarinnar á Spáni, er hafin en rannsóknin spannar um tveggja áratuga tímabil. Fótbolti 28. september 2023 10:15
Ásthildur kallar eftir naflaskoðun en segir að þetta sé ekki leikmönnunum að kenna Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta náði í þrjú stig út úr tveimur fyrstu leikjum sínum í Þjóðadeildinni en frammistaða liðsins var ekki góð. Liðið marði sigur á heimavelli á móti lélegasta liði riðilsins og steinlá síðan á móti Þjóðverjum þar sem liðið gerði ekkert sóknarlega. Fótbolti 28. september 2023 09:30
Allt jafnt á toppnum eftir að Inter tapaði óvænt á heimavelli Alls fóru sex leikir fram í sjöttu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í dag. AC Milan jafnaði Inter á toppi deildarinnar eftir óvænt tap Inter gegn Sassuolo. Fótbolti 27. september 2023 21:20