Austurland margborgar sig Austurland leggur meira til ríkissjóðs en það fær til baka. Tekjur ríkissjóðs sem rekja má til landshlutans eru áætlaðar 54,2 milljarðar króna á ári en útgjöldin 45,5 milljarðar. Nettóframlag Austurlands er því 8,7 milljarðar króna á ári. Skoðun 1.10.2026 13:31
Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Bilun hefur komið upp í háspennuleiðara við vélaspenni í Fljótsdalsstöð. Talið er að viðgerð taki sex til átta vikur. Aðrar vélar stöðvarinnar verða prófaðar næstu vikur til að tryggja að samskonar bilun komi ekki upp. Innlent 30.9.2026 09:39
Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps kallar á ráðherra að þrýsta á tafarlausar úrbætur á fjarskiptakerfinu. Alvarlegt vinnuslys varð á bæ í dalnum og ekki tókst að ná sambandi við neyðarlínuna. Innlent 30.8.2026 18:50
Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Sigurgeir Svanbergsson sjósundskappi stefnir á sögulegt sund niður Lagarfljót. Tímasetning er ekki enn ljós en kappinn stefnir á að láta til skarar skríða um leið og veður leyfir eftir sjómannadag. Tilgangurinn er að vekja athygli á þjónustu Píetasamtakanna á Austurlandi og um land allt. Innlent 5. júní 2026 15:29
Halla hlaut flest atkvæði í Fljótsdalshreppi Halla Auðunardóttir hlaut flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í Fljótsdalshreppi í dag. Óbundnar kosningar fóru þar fram og voru allir í framboði. Innlent 16. maí 2026 23:31
„Sá gamli er miklu fallegri“ Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður Sýnar brá sér austur á dögunum til að taka púlsinn á íbúum varðandi komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún komst að ýmsu merkilegu – samgöngumálin voru vitaskuld efst á baugi – en í Fljótsdal rakst hún á kjörgrip sem nú, samkvæmt tilskipan yfirkjörstjórnar, hefur lokið leik. Aldargamall kjörkassi. Innlent 9. maí 2026 09:02
Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út á nokkrum stöðum á Austurlandi síðdegis og í kvöld meðan appelsínugul veðurviðvörun hefur staðið yfir. Útköllin snúa fyrst og fremst að því að tryggja samgöngur og koma heilbrigðisstarfsfólki til og frá vinnu. Innlent 2. mars 2026 20:22
Kristmundur verður lögreglustjóri á Austurlandi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Kristmund Stefán Einarsson í embætti lögreglustjóra á Austurlandi. Skipun Kristmundar tekur gildi þann 1. nóvember næstkomandi. Innlent 27. október 2025 17:22
Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Innviðaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi með tillögum að víðtækum breytingum á sveitastjórnarlögum. Meðal tillaga er lögfesting á 250 íbúa lágmarki sveitarfélaga og er stefnt að sameiningu fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Átta sveitarfélög eru undir lágmarkinu. Innlent 23. september 2025 09:43
„Þetta var eins og Atlantis sem sökk“ Í aðdraganda framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun sem hófust árið 2002 fór RAX og myndaði svæðið sem til stóð að færi undir uppistöðulón virkjunarinnar, Hálslón. Lífið 29. ágúst 2025 07:03
Viðja bar sex lömbum takk fyrir Ærin Viðja á bænum Haugum í Skriðdal á Fljótsdalshéraði gerði sér lítið fyrir og bar sex lömbum, sem er mjög, mjög fátítt eða jafn vel einsdæmi. Innlent 28. maí 2025 18:17
Óvenjumikil aðsókn vegna veðurs „Fólk tekur það yfirleitt fram þegar það kemur til okkar að það sé eins gott að fara drífa sig, því það sem vofir yfir er það sem að Íslendingar þekkja því miður betur en aðrar þjóðir, vont veður.“ Innlent 28. nóvember 2024 18:39
Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal Björgunarsveitirnar Hérað og Jökull voru kallaðar út um klukkan 18 í kvöld vegna villtra ferðamanna í námunda við Kirkjufoss í Fljótsdal. Mennirnir fundust á gönguleið frá skála í Laugarfelli. Innlent 10. nóvember 2024 23:47
Lokaleit að ísbjörnum með dróna Þyrla Landhelgisgæslunnar er ekki tiltæk í leit að ísbjörnum, sem erlendir ferðamenn tilkynntu að væru á slóðum Laugarfells, norðaustan við Snæfell í gær. Lokaleit verður því gerð með dróna í dag. Innlent 12. október 2024 11:18
Talið að snjór hafi villt um fyrir ferðamönnum Leit eftir tveimur hvítabjörnum við Laugarfell, norðaustan við Snæfell, sem erlendir ferðamenn tilkynntu um fyrr í dag hefur verið hætt. Lögreglan segir að mögulega hafi ferðamönnunum missýnst. Til að gæta fyllsta öryggis verður leit haldið áfram í birtingu í fyrramálið. Innlent 11. október 2024 21:08
Þyrlan kölluð út vegna tilkynningar um hvítabirni Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum í dag eftir að lögreglan á Austurlandi óskaði eftir aðstoð til að kanna hvort að tveir hvítabirnir leyndust á hálendinu við Laugarfell, norðaustan við Snæfell. Innlent 11. október 2024 18:39
Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Kona á fertugsaldri, erlendur ferðamaður sem var á ferð í Stuðlagili við annan mann, fannst látin í Jökulsá skammt neðan við Stuðlagil skömmu fyrir klukkan fimm í dag. Hún var þá látin. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. Innlent 9. október 2024 15:53
Áfall fyrir allt samfélagið Í kvöld fer fram minningarstund í Norðfjarðarkirkju í Neskaupstað í kjölfar banaslyss við Hálslón á mánudag þegar maður varð fyrir voðaskoti. Presturinn segir mikilvægt að ná sem best utan um samfélögin fyrir austan. Innlent 22. ágúst 2024 11:37
Lést í slysi við Hálslón Einn lést í alvarlegu slysi við Hálslón norðan Vatnajökuls. Lögreglu barst tilkynning um slysið laust fyrir klukkan átta í morgun. Innlent 20. ágúst 2024 12:01
Sveitarstjórn vísar erindi um sameiningu til þorrablótsnefndar Á fundi sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps í vikunni var umsögn innviðaráðuneytisins um að sveitarfélagið yrði fjárhagslega sjálfbærara yrði það sameinað með öðrum sveitarfélögum vísað til þorrablótsnefndar. Oddviti sveitarstjórnar segir umsögnina hjákátlega og sveitarstjórnin hafi því ákveðið að svara henni í hæðni. Innlent 10. desember 2023 11:52
Minningarstund í Egilsstaðarkirkju vegna flugslyssins Minningarstund vegna flugslyssins við Sauðahnjúka í gær verður haldin í Egilsstaðakirkju á morgun. Innlent 10. júlí 2023 13:50
Hyggst sækja verulega hækkun orkuverðs í viðræðum við Alcoa Landsvirkjun hyggst sækja verulega hækkun í viðræðum sem eru að hefjast við Alcoa um endurskoðun raforkuverðs fyrir álverið í Reyðarfirði. Þetta er langstærsti raforkusamningur Landsvirkjunar og tekur til þriðjungs af orkusölu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 27. febrúar 2023 22:42
Stærðarinnar smíðaverkstæði brunnið í Fljótsdal Fjárhús við bæinn Víðivelli 1 í Fljótsdalshreppi stendur í ljósum logum eftir að eldur kom upp í því um klukkan 21 í kvöld. Slökkvistarf gengur vel og hvorki menn né málleysingjar voru í húsunum, enda hefur það um árabil verið notað sem smíðaverkstæði. Innlent 3. febrúar 2023 22:42
Austfirðir væru ekki það sem þeir eru í dag hefði álverið ekki komið Dagurinn sem breytti öllu á Reyðarfirði var 15. mars árið 2003 þegar samningar voru undirritaðir um smíði álvers Alcoa. Þetta austfirska sjávarþorp, sem áður hét Búðareyri, stökkbreyttist í iðnaðarbæ og íbúafjöldinn meira en tvöfaldaðist. Fimmtán ár eru um þessar mundir frá því rekstur þess hófst. Innlent 22. október 2022 07:27