Vornanen kastað úr þingflokknum Finnski stjórnarflokkurinn Sannir Finnar hefur vísað þingmanninum Timo Vornanen úr þingflokknum. Ástæðan er að lögregla rannsakar nú atvik þar sem Vornanen skaut úr byssu eftir heimsókn á næturklúbb síðastliðinn föstudag. Erlent 2. maí 2024 12:57
Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Timo Vornanen, þingmaður Sannra Finna, var handtekinn og er grunaður um að hafa hleypt af skoti í götuslagsmálum sem brutust út í miðborg Helsinki aðfaranótt föstudags. Erlent 27. apríl 2024 13:07
Kennari fékk piltinn til að fara úr skólastofunni eftir skotárásina Finnska lögreglan segir að kennari hafi fengið tólf ára dreng sem skaut þrjú skólasystkini sín, þar af eitt til bana, í Vantaa í síðustu viku til þess að yfirgefa skólastofuna. Pilturinn er sagður hafa notað byssu sem hann tók frá ættingja sínum í leyfisleysi. Erlent 10. apríl 2024 14:11
Play hefur flug til „heimkynna jólasveinsins“ Flugfélagið Play hefur sett í sölu flug til þorpsins Rovaniemi í norðurhluta Finnlands. Viðskipti innlent 9. apríl 2024 12:40
Tólf ára árásarmaðurinn segist sjá eftir gjörðum sínum Tólf ára árásarmaðurinn sem hóf skothríð í grunnskóla í Vantaa í Finnlandi á þriðjudaginn segist sjá eftir gjörðum sínum. Lögregla yfirheyrði hann í gær og mun yfirheyrsla halda áfram ótímabundið. Erlent 4. apríl 2024 22:50
Finnar framlengja lokun landamæranna ótímabundið Ríkisstjórn Finnlands ákvað að halda landamærum landsins að Rússlandi áfram lokuðum ótímabundið í dag. Finnar saka rússnesk stjórnvöld um að senda hælisleitendur frá öðrum ríkjum að landamærunum til þess að baka þeim vandræði. Erlent 4. apríl 2024 13:46
Einelti sagt ástæða árásarinnar Tólf ára barnið sem grunað er um skotárásina í grunnskóla í Vantaa í Finnlandi í gær hafði einungis verið nemandi í skólanum í ellefu vikur. Ástæða árásarinnar er sögð vera einelti sem nemandinn hafði sætt. Erlent 3. apríl 2024 14:14
Flaggað í hálfa stöng eftir skotárásina Flaggað verður í hálfa stöng við allar opinberar byggingar og stofnanir í Finnlandi í dag vegna skotárásarinnar í grunnskóla í Vantaa í gær. Tólf ára drengur lét lífið og tvær stúlkur særðust þar í árás tólf ára barns. Erlent 3. apríl 2024 09:16
Árásin í Vantaa: Tólf ára barn lést og tvö alvarlega særð Tólf ára barn lést og tvö eru alvarlega særð eftir skotárás tólf ára barns í grunnskóla í finnska bænum Vantaa í morgun. Erlent 2. apríl 2024 10:33
Tólf ára barn grunað um árásina Tólf ára barn er nú í haldi finnsku lögreglunnar vegna skotárásarinnar í Vantaa í morgun. Þrjú börn eru sögð hafa særst í árásinni, en ekki liggur fyrir hvort einhver hafi látið lífið. Erlent 2. apríl 2024 08:34
Skotárás í finnskum grunnskóla Lögregla í Finnlandi hefur handtekið einn eftir að tilkynnt var um skotárás í grunnskóla í finnska bænum Vantaa í morgun. Einhverjir hafa særst í árásinni þó að enn hafi ekki verið gefið upp um nákvæman fjölda. Erlent 2. apríl 2024 07:28
Unnur og Brynjar keyptu 200 fermetra einbýli á 4,5 milljónir „Af hverju við fluttum? Það var sett á sölu húsið sem við bjuggum í og leigumarkaðurinn var algjörlega glataður. Ég varð svo pirruð yfir þessu að ég sagði bara: Af hverju prófum við ekki eitthvað nýtt?“ segir Unnur Eygló Bjarnadóttir en þau Brynjar Ingimarsson eiginmaður hennar ákváðu fyrir nokkrum árum að freista gæfunnar í finnskri sveit. Lífið 11. mars 2024 20:01
Finnar eyða óvissunni og staðfesta þátttöku í Eurovision Finnska ríkisútvarpið hefur staðfest þátttöku í Eurovision í Malmö í maí. Líkt og á Íslandi hefur verið talað við sniðgöngu keppninnar vegna þátttöku Ísraels. Þeirri óvissu hefur verið eytt í Finnlandi. Lífið 20. febrúar 2024 15:31
Kaupa gagnaver í Finnlandi Borealis Data Center, sem rekur þrjú gagnaver hér á landi, hefur fest kaup á á gagnaveri í Kajaani í Norður-Finnlandi sem verður fyrsta starfsstöð félagsins erlendis. Viðskipti innlent 15. febrúar 2024 09:08
Brókarlalli kenndur við Windows fær traust Finna Finnski tónlistarmaðurinn Windows95man flytur framlag þjóðar sinnar í Eurovision í Malmö í ár. Hann byrjar atriðið inni í eggi og neitar að vera í buxum þar til undir lok atriðisins, enda engar reglur hjá honum. Lífið 12. febrúar 2024 16:00
Stubb bar nauman sigur úr býtum Önnur umferð forsetakosninga Finnlands fór fram í dag. Kosningabaráttan stóð milli Alexanders Stubb fyrrverandi forsætisráðherra og Pekka Haavisto fyrrverandi utanríkisráðherra en sá fyrrnefndi sigraði. Erlent 11. febrúar 2024 21:14
Engir rauðir límmiðar lengur á Iittala Nýr listrænn stjórnandi Iittala hefur nú svipt hulunni af nýjum lit og merkingum fyrir merkið. Í stað rauða litarins sem hefur einkennt merkið í áratugi, og auðvitað rauðu límmiðana, er nú tekinn við gulur ferskari litur. Viðskipti erlent 7. febrúar 2024 08:56
Stubb sigraði fyrri umferð finnsku forsetakosninganna Finnsku forsetaframbjóðendurnir Alexander Stubb og Pekka Haavisto voru atkvæðamestir í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Erlent 29. janúar 2024 07:32
Finnar kjósa sér forseta í dag Forsetakosningar Finna fara fram í dag. Baráttan um embættið stendur milli níu frambjóðenda. Ef enginn þeirra hlýtur yfir fimmtíu prósent atkvæða fer fram önnur umferð eftir tvær vikur. Erlent 28. janúar 2024 15:14
Finnskir tónlistarmenn hvetja til sniðgöngu Eurovision Yfir 1300 tónlistarmenn í Finnlandi hafa skrifað nafn sitt á undirskriftarlista þar sem þess er krafist að finnska ríkisútvarpið sniðgangi Eurovision söngvakeppnina í Malmö í ár taki Ísrael þátt í keppninni. Lífið 10. janúar 2024 15:32
Norrænt kuldamet slegið í Finnlandi Kuldakast ríður nú yfir norðurhluta Skandinavíu og fór hitastigið á hinum norðlægu landamærum Noregs, Svíþjóðar og Finnlands niður fyrir -40 gráður. Erlent 6. janúar 2024 16:27
Snjóstormur gerir Skandinövum lífið leitt Snjó hefur kyngt niður í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Finnlandi og stormur fylgt snjónum með tilheyrandi samgöngutruflunum. Talað er um metmagn af snjó í Noregi og þá hafa þúsundir bíla setið fastir í Svíþjóð og í Danmörku. Tveir létust í snjóflóði í Finnlandi. Erlent 4. janúar 2024 11:26
Segir hatursfulla umræðu ekki hafa haft neitt að gera með stjórnmálin Sanna Marin fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands segir margar ungar konur velta fyrir sér að fara í stjórnmál en hika við það vegna hatursfullar umræðu á samfélagsmiðlum. Erlent 30. desember 2023 22:40
Finnar og Bandaríkjamenn undirrita varnarsamning í dag Stjórnvöld í Finnlandi munu í dag undirrita varnarsamning við Bandaríkin sem greiðir meðal annars fyrir umsvifum Bandaríkjahers í landinu. Erlent 18. desember 2023 10:15
Bein útsending: Forsætisráðherrarnir ræða við blaðamenn í Osló Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundar með forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna í Osló í dag. Innlent 13. desember 2023 11:44
atNorth mun opna tíunda gagnaver sitt í Finnlandi 2025 Félagið atNorth mun opna nýtt gagnaver í finnsku borginni Kouvola á seinni helmingi árs 2025. Viðskipti innlent 13. desember 2023 10:49
Norrænir forsætisráðherrar funda í Noregi um öryggismál Forsætisráðherrar Norðurlandanna munu miðvikudaginn 13. desember funda saman um norrænt samstarf í öryggis- og varnarmálum. Innlent 8. desember 2023 18:51
Skólar í Finnlandi og í Eistlandi fá PISA upplýsingar Í Eistlandi og í Finnlandi eru grunnskólarnir sem taka þátt í PISA könnuninni upplýstir um árangurinn, ólíkt því sem tíðkast hér á landi. Innlent 8. desember 2023 06:53
Loka nú öllum landamærunum við Rússland Ríkisstjórn Finnlands hefur tekið þá ákvörðun að loka öllum landamærastöðvum við landamæri Rússlands til 13. desember. Eingöngu vörur munu komast yfir landamærin á einum stað. Erlent 28. nóvember 2023 16:38
„Typpið á mér er frosið“ Sænski gönguskíðakappinn Calle Halfvarsson lenti í heldur betur óþægilegri uppákomu um nýliðna helgi þegar að Ruka gönguskíðamótið í Finnlandi fór fram. Keppt var í nístingskulda sem átti eftir að draga dilk á eftir sér fyrir Calle. Sport 28. nóvember 2023 07:30