Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Formaður Miðflokksins útilokar að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Þeir segja utanríkismálanefnd hafa verið hundsaða með öllu og segja ekkert að marka fyrri orð forsætisráðherra. Innlent 6.3.2026 19:13
Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið vera til marks um uppgjöf á þeim verkefnum sem hún tók að sér eftir síðustu kosningar. Valkyrjurnar svokölluðu ætli að leita sér pólitísks skjóls í deilum um Evrópusambandið næstu mánuði. Innlent 6.3.2026 16:30
Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum. Innlent 6.3.2026 12:54
Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran um helgina voru skýlaust brot á alþjóðalögum en hvorki íslenskir né evrópskir ráðamenn hafa treyst sér til þess að fordæma þær frekar en mannrán á forseta Venesúela í vetur. Prófessor í stjórnmálafræði ræðir við Vísi um hvort alþjóðalög skipti máli eða ekki. Innlent 2. mars 2026 13:31
Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur nú lokahönd á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Hún segir stríðið í Íran geta haft veruleg áhrif á Íslendinga og að borgaraþjónustan aðstoði nú fjölda Íslendinga erlendis vegna stríðsins. Innlent 2. mars 2026 09:12
„Leigupennar“ eða einfaldlega fólk sem vill ræða málið? Um fullveldi, ekki fylgispekt.Umræða um framtíð Íslands í Evrópu á að vera ein sú vandaðasta sem við tökum. Í nýlegri skoðanagrein á Vísi heldur Sverrir Páll Einarsson, forseti ungliðahreyfingar Viðreisnar, því fram að andstæðingar áframhaldandi aðildarviðræðna séu fyrst og fremst drifnir áfram af hræðslu og sérhagsmunum. Skoðun 1. mars 2026 12:33
Gerir stólpagrín að Von der Leyen Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gerir stólpagrín að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem tilkynnti í gær að hún hefði boðað til fundar í öryggisráði ESB. Erlent 1. mars 2026 12:20
Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Forsætisráðherra Póllands talaði ítrekað fyrir því að Ísland myndi ganga í Evrópusambandið á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands. Hún ítrekaði að ákvörðun um áframhaldandi viðræður við ESB ættu eftir að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún tók fram að atkvæðagreiðslan verði á næstu mánuðum. Innlent 25. febrúar 2026 18:11
Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Verkstæði tæknifyrirtækisins Vélfags á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara. Fasteignasali segir að samþykki bæði lánastofnunar og utanríkisráðuneytis þurfi áður en salan getur gengið í gegn. Viðskipti innlent 24. febrúar 2026 13:56
Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Fyrrverandi utanríkisráðherra segir samband Íslands við Evrópu ekki þurfa að vera já eða nei spurningu og hægt sé að auka samstarfið án þess að ganga í Evrópusambandið. Hann óttast að umræðan festist í hjólförum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður. Innlent 24. febrúar 2026 08:26
„Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd spyr hvað ríkisstjórnin hafi að fela þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB og spyr hvort nafnlausir heimildarmenn í Brussel muni einir fá að vita hvenær hún fari fram. Þingflokksformaður Viðreisnar segir enga leyndarhyggju í gangi, þjóðaratkvæðagreiðslan verði tekin fyrir á þingi á næstunni. Innlent 23. febrúar 2026 20:28
Enn ekkert ákveðið um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram Utanríkisráðherra segir ekki liggja fyrir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um að taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þrátt fyrir fréttir um að hún kunni að verða haldin strax í sumar. Hagsmunir þjóðarinnar ráði hvenær atkvæðagreiðslan fer fram. Innlent 23. febrúar 2026 11:23
Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður sagt geta orðið strax í ágúst Mögulegt er sagt að þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður um aðild að Evrópusambandinu gæti verið haldin strax í ágúst á þessu ári. Á sama tíma er vaxandi stuðningur sagður við stækkun Evrópusambandsins í ljósi væringa á alþjóðasviðinu. Innlent 23. febrúar 2026 08:24
Humarinn tók yfir heiminn og bað Evrópu um að vakna Það þarf að einfalda regluverk, tryggja aðgang að áhættufjármagni og skapa menningu sem umbunar áræðni og áhættusækni. Það síðastnefnda, reglugerðarmenningin, gæti þó reynst erfið ef ekki óyfirstíganleg hindrun. Umræðan 23. febrúar 2026 08:01
Samanburður á aðferðum Þjóðverja og Kínverja við að draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti Þjóðverjar ákváðu að skipta yfir í hreina orku hratt, eftir ESB módelinu. Það var einkum horft til vindmylla og sólarsella. Á svipuðum tíma var ákveðið að loka öllum kjarnorkuverum, sem mörg voru í fínu lagi. Skoðun 22. febrúar 2026 10:01
Treystir ríkisstjórnin þjóðinni í raun? Forystumönnum ríkisstjórnarinnar hefur verið tíðrætt um það að þeir treysti þjóðinni til þess að ákveða í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu hvort hefja eigi á nýjan leik umsóknarferli að Evrópusambandinu. En hversu vel treystir ríkisstjórnin þjóðinni í raun í þeim efnum? Greinilega ekkert sérlega vel miðað við staðreyndir málsins. Skoðun 21. febrúar 2026 07:31
Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Evrópusambandið samþykkti formlega í gær að skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Það þýðir að samtökin eru nú á hryðjuverkalista ESB og munu sæta þvingunaraðgerðum og refsiákvæðum ESB á grundvelli baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem Ísland tekur einnig þátt í. Boðað hafði verið til mótmæla við utanríkismálaráðuneytið á morgun til að kalla eftir því að íslensk stjórnvöld myndu skilgreina Íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök. Erlent 20. febrúar 2026 17:24
Við yrðum á matseðlinum innan ESB Hérlendum Evrópusambandsinnum eins og Degi B. Eggertssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, hefur orðið nokkuð tíðrætt um það að undanförnu að ríki sem ekki ættu sæti við borðið yrðu á matseðli stórveldanna með vísan í ræðu sem Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, flutti fyrr á árinu. Skoðun 20. febrúar 2026 07:01
Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Bandaríska ríkið hefur komið upp vefgátt þar sem Evrópubúar geta skoðað efni sem lokað hefur verið á. Bandaríkjastjórn hefur sakað Evrópuríki um að grafa markvisst undan tjáningarfrelsi í álfunni. Erlent 19. febrúar 2026 20:44
Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Icelandair og ítalskt leiguflugfélag fengu úthlutað losunarheimildum frá íslenska ríkinu á grundvelli sérlausnar ESB fyrir Ísland í síðasta mánuði. Ríkissjóður verður af rúmlega 400 milljónum króna í tekjur sem hann hefði getað haft af því að selja heimildirnar. Viðskipti innlent 18. febrúar 2026 08:30
Hvers vegna getum við ekki lifað saman í friði ? Sumarið þegar ég var sextánda ári fór ég í fyrsta sinn til útlanda. Þetta var á því herrans ári 1965 en ég var þá skipverji á síðutogaranum Þorkeli Mána sem sigldi í sölutúr til Grimsbý. Á þessum tíma var maður ekki farin að velta svo mikið fyrir sér veröldinni eða hvers vegna hún var eins og hún var. Skoðun 17. febrúar 2026 18:00
ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fyrirskipað rannsókn á kínversku netversluninni Shein. Rannsóknin mun meðal annars miða að því að varpa ljósi á umfang sölu vara sem standast ekki Evrópulög og „ávanabindandi“ viðskiptahætti. Viðskipti erlent 17. febrúar 2026 11:58
Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Persónuverndarstofnun Írlands, sem hefur eftirlit með stórum samfélagsmiðlum, hefur hafið rannsókn á hvort að X hafi brotið evrópsk persónuverndarlög þegar gervigreindartól miðilsins framleiddi og birti falsaðar kynferðislegar myndir af konum og börnum. Viðskipti erlent 17. febrúar 2026 09:31
„Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Stóriðjufyrirtæki í Evrópu halda nú uppi harðri gagnrýni á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Sérfræðingur í kolefnismörkuðum telur vel skipulagða herferð í gangi til þess að hafa áhrif á endurskoðun kerfisins sem stendur fyrir dyrum. Viðskipti innlent 17. febrúar 2026 07:01