England

England

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 58,6 milljónir (2024). Flatarmál: 132.932 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar

Fámennur hópur leikara mun spreyta sig í prufutökum fyrir hlutverk breska njósnarans 007 á næstu dögum. Reiknað er með því að í það minnsta þrír leikarar taki þátt í tökunum í von um að taka við af hinum breska Daniel Craig sem lék njósnarann James Bond frá árinu 2006 til ársins 2021.

Bíó og sjónvarp

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hvað veistu um… Karl Breta­konung?

Karl Bretakonungur varð konungur árið 2022 eftir andlát móður sinnar, Elísabetar II, sem hafði þá gegnt embætti drottningar frá árinu 1952. Þegar Karl tók við embætti konungs hafði hann verið krónprins í rúmlega sjö áratugi og varð þá elsti maðurinn til að taka við bresku krúnunni.

Lífið
Fréttamynd

Enn lítið um svör í Eng­landi

Yfirvöld í Bretlandi hafa enn litlu svarað um handtöku fimm manna nærri mikilvægri herstöð í Englandi á sunnudaginn. Mönnunum var sleppt í gær og hefur það vakið mikla furðu, þar sem þeir voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi var lýst yfir við herstöðina, þar sem enn má sjá mikinn viðbúnað.

Erlent
Fréttamynd

Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi

Lögreglan í Bretlandi hefur sleppt úr haldi fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa brotið lög um sprengiefni og eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverks. Mennirnir voru handteknir nærri stórri breskri herstöð á sunnudaginn en verður sleppt gegn tryggingu en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands segir að þeir verði undir nánu eftirliti og takmarkanir settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra.

Erlent
Fréttamynd

Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna

Andri Lucas Guðjohnsen, landsliðsmaður í fótbolta, er genginn út. Hann er í sambandi með enska pílateskennaranum Madi Woodruff. Andri hefur byrjað nýtt tímabil gríðarlega vel. 

Lífið
Fréttamynd

Allir mennirnir breskir ríkis­borgarar

Mennirnir fimm sem handteknir voru vegna gruns um að þeir væru að skipuleggja hryðjuverkaárás á breska herstöð á sunnudaginn eru allir breskir ríkisborgarar. Þeir búa allir í mismunandi hlutum Lundúna og eru á bilinu 23 til 25 ára gamlir.

Erlent
Fréttamynd

Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftir­liti

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mennina fimm sem handteknir voru nærri herflugstöðinni RAF Fairford í Englandi í nótt hafa ætlað að valda „miklum skaða“ á stöðinni. Hann segir bandarísk yfirvöld hafa haft mennina undir eftirliti um nokkurt skeið og fagnar samstarfi við Breta.

Erlent
Fréttamynd

Fimm hand­teknir og grunaðir um skipu­lagningu hryðjuverks

Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka.

Erlent
Fréttamynd

Heimili rýmd nærri herflugstöð

Heimili nærri herflugstöð í Gloucester-skíri á Englandi voru rýmd í morgun að sögn lögreglu þar í landi. Nokkrir voru handteknir grunaðir um brot á lögum er varða sprengiefni nærri stöðinni en bandaríski flugherinn hefur þar aðsetur.

Erlent
Fréttamynd

Vilja verða jafningjar Eng­lendinga

Tími Westminster er að líða undir lok. Þetta segja leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands sem hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu um að yfirvöld í Bretlandi hefji undirbúning fyrir sundurliðun Stóra-Bretlands. Allir vilja þeir sjálfstæði frá Lundúnum og fá að ákvarða eigin framtíð.

Erlent
Fréttamynd

„Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla Eng­land“

„Þetta er auðvitað ofboðslega erfitt og þetta er nú langur vegur. Þetta er ekki eitthvað sem er að fara að gerast hér á næstunni. Það sem þeir eru að gera núna er að krefjast réttarins til þess að halda atkvæðagreiðsluna því að þeir geta ekki gert það upp á eigin spýtur samkvæmt bresku stjórnarskránni og í rauninni þarf forsætisráðherra að fallast á þetta.“ 

Erlent
Fréttamynd

Hvað veistu um… London?

London er ein fjölmennasta borg Evrópu og höfuðborg Bretlands. Borgin á sér langa og viðburðaríka sögu og má þar finna bæði sögufrægar byggingar og nýrri hverfi þar sem nútímaarkitektúr fær að njóta sín. London er einnig ein helsta menningar- og viðskiptamiðstöð álfunnar með fjölbreyttu mannlífi, söfnum, leikhúsum, verslunum og veitingastöðum.

Lífið
Fréttamynd

Tveir hinna látnu lög­reglu­menn

Sjö létust í bílslysi nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt þegar lögreglubíll og Volkswagen Passat-bifreið skullu saman. Tveir hinna látnu voru lögreglumenn.

Erlent
Fréttamynd

Fannst hann ekki geta haldið á­fram

Forsætisráðherra Bretlands segir fráfall fræðimannsins Jason Arday kalla á umhugsun. Arday sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla vegna ásakana um ritstuld sem hann sagði sprottnar af kynþáttafordómum.

Erlent
Fréttamynd

Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn

Jason Arday, sem sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla í síðustu viku í kjölfar ásakana um ritstuld, er látinn 41 árs að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Battersea í suðurhluta Lundúnaborgar síðdegis í dag.

Erlent
Fréttamynd

Önnur lestin af sporinu á innan við sólar­hring

Miklar tafir urðu á lestarsamgöngum í Essex á Englandi eftir að lest fór út af sporinu í dag, önnur á jafnmörgum dögum. Um borð voru tæplega 45 farþegar en enginn þeirra slasaðist og lestin hélst upprétt í hamaganginum.

Erlent