Fannst hann ekki geta haldið áfram Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. ágúst 2026 13:41 Andy Burnham forsætisráðherra tjáði sig um sviplegt fráfall prófessorsins. Vísir/Samsett Forsætisráðherra Bretlands segir fráfall fræðimannsins Jason Arday kalla á umhugsun. Arday sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla vegna ásakana um ritstuld sem hann sagði sprottnar af kynþáttafordómum.
Jason Arday fannst látinn á heimili sínu í gær aðeins 41 árs gamall. „Þetta er harmleikur á svo mörgum sviðum en sérstaklega fyrir þeim sem þekktu Jason, fjölskyldu hans, vini hans. Við hugsum til þeirra í dag,“ sagði Andy Burnham Það sé ekki tímabært að fella hleypidóma. „Það er tími til umhugsunar, myndi ég segja, um það hvernig kom til þessa. Þetta er gríðarlega sorgleg staða og ég held að við hugsum öll til Jason í dag, framlags hans, fjölskyldu og vina,“ sagði hann. Margir hafa tjáð sig um sviplegt andlát Arday í dag. Borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, vottaði fjölskyldu hans samúð sína. Efasemdir um ferilskrána Arday sagði af sér stöðu prófessors í félagsfræði menntunar við Cambridge í síðustu viku eftir að ásakanir um ritstuld komu fram opinberlega, ásamt efasemdum um ýmis afrek sem hann kvaðst hafa unnið. Hann vísaði ásökununum alfarið á bug en gekkst þó við mistökum í fræðilegum skrifum sínum. Deilurnar hófust þegar Nathan Cofnas, fræðimaður sem skilgreinir sjálfan sig sem „kynþáttaraunsæismann“ og var rekinn frá Cambridge árið 2024, sagðist hafa fundið fjölda dæma um ritstuld í verkum Ardays. Í kjölfarið vöknuðu einnig efasemdir um fullyrðingar hans um íþróttaafrek í þágu góðgerðarmála, meðal annars að hafa hlaupið 30 maraþon á 35 dögum og safnað yfir fimm milljónum punda til líknarmála. Arday sagði hluta af villunum í fyrri skrifum sínum mega rekja til einhverfu, þar sem hann hefði stuðst við eftirhermu til að vinna úr upplýsingum, og benti á að sambærileg rýni myndi líklega leiða í ljós áþekkar villur hjá öðrum fræðimönnum. „Við erum að tala um háskólasamfélagið hérna, ég myrti engan. Sú grimmd sem ég hef mátt þola, að vera stimplaður lygari og ómerkingur, er algjörlega óviðunandi,“ sagði hann í samtali við Times fyrr í mánuðinum. Fannst hann ekki geta haldið áfram Málið vakti frá upphafi mun meiri athygli en dæmigerð deila um fræðileg vinnubrögð, meðal annars vegna þess hvernig það fléttaðist saman við víðtækari umræðu um fjölbreytnistefnu í háskólasamfélaginu. Arday varð yngsti svarti prófessor í sögu Cambridge þegar hann var ráðinn árið 2023, og var ráðningin á sínum tíma víða fagnað sem tímamótaskrefi í átt að auknum fjölbreytileika innan æðstu menntastofnana Bretlands. Simon Baron-Cohen, klínískur sálfræðingur og forstöðumaður Autism Research Centre, sem var vinur Ardays, sagði í þættinum Today á Radio 4 að hann hefði haft samband við hann á föstudagsmorgun og sagt að honum fyndist hann ekki geta haldið áfram. „Hann notaði þessi orð í símsvaraskilaboðum. Í kjarna þessa alls var maður sem hafði verið greindur í æsku með fatlanir sem fólu í sér einhverfu, seinkaðan málþroska og námsörðugleika. Hann var viðkvæmt barn, viðkvæmur unglingur og viðkvæmur fullorðinn einstaklingur, svo hann þurfti á vernd, stuðningi og sanngjarnri aðlögun að halda og átti það skilið á hverju skrefi,“ sagði Simon Baron-Cohen.
Bretland England Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira