Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxus­lífi og slags­málum

Rapparinn Sean „Diddy“ Combs hefur verið fluttur í alríkisfangelsi í Pennsylvaníu eftir að fréttir bárust af því að hann hefði lifað lúxuslífi í fangelsi í New Jersey og slasast í átökum. Rapparinn hefur afplánað í fangelsi í New Jersey frá því að hann var dæmdur í fyrra fyrir brot gegn vændi. 

Lífið
Fréttamynd

Cage og Banderas  í næstu seríu True Detective

Tvenn ný þekkt nöfn bætast nú við langan lista þeirra sem farið hafa með aðalhlutverk í bandarísku spennuþáttunum True Detective en þeir Nicolas Cage og Antonio Banderas eru staðfestir að leika í næstu þáttaröð. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og var síðasta þáttaröð True Detective: Night Country tekin að mestu leyti upp á Dalvík.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Frestar gildis­töku refsi­að­gerða gegn Rúss­landi

Donald Trump forseti Bandaríkjanna undirritaði í gær forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Hann tilkynnti á þinginu í gær að hann væri að fresta gildistökunni í þágu þjóðarhagsmuna en útskýrði það ekki nánar. 

Erlent
Fréttamynd

Faðir tveggja nem­enda í skólanum sá sem skaut á­rásar­manninn

Tvö fórnarlamba árásarmanns sem skaut þrjú börn og einn kennara til bana í Oregonríki í Bandaríkjunum í vikunni hafa verið nafngreind. Árásarmaðurinn var hinn sextán ára gamli Griffin J. John II og nú hefur verið greint frá því að hann sé fyrrverandi nemandi í skólanum sem er fyrir börn frá leikskólaaldri og upp í fimmta bekk sem eru með sérþarfir . 

Erlent
Fréttamynd

Varaði við nýju Rúss­landi Pútíns

Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni.

Erlent
Fréttamynd

Fljúga dag­lega til Boston

Bandaríska flugfélagið Delta tilkynnti í dag að það ætli að hefja áætlunarflug milli Boston Logan-flugvallar og Keflavíkurflugvallar í apríl á næsta ári. Flugið verður í boði fram í lok október. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Deilt um sönnunar­gögn og mögu­legan vitorðsmann

Saksóknarar og lögmenn Alex Murdaugh mættust í dómsal í dag í fyrsta sinn frá því í sumar og deildu þeir þar um ný réttarhöld sem til stendur að halda. Rétta á aftur yfir Murdaugh í apríl eftir að dómur hans fyrir að myrða eiginkonu sína og son var felldur úr gildi. Þá eru uppi spurningar um það hvort Murdaugh eigi að hafa notið hjálpar lögregluþjóns við að fela sönnunargögn.

Erlent
Fréttamynd

Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs

Tónlistarmaðurinn Billy Joel segist hvorki geta ekið bíl né komið fram á tónleikum eftir að hann greindist með sjaldgæfa heilakvillann fullorðinsvatnshöfuð (e. normal pressure hydrocephalus) á síðasta ári. Taugasjúkdómalæknir sagði popparanum að framkoma á tónleikum hafi svipuð áhrif á hann og heilahristingur.

Lífið
Fréttamynd

Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Ís­landi

Kvikmyndin The Social Reckoning, sem fjallar um stóra Facebook-lekann árið 2021 sem afhjúpaði varhugaverða stjórnunarhætti fyrirtækisins, hefur fengið dræmar viðtökur hjá bæði gagnrýnendum og áhorfendum. Viðtökurnar hafa verið svo dræmar að hætt var við sýningu á kvikmyndinni á Íslandi, um þremur vikum fyrir frumsýningu.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

„At­kvæði gegn Kanada er hættu­leg blekking“

Mark Carney varaði samlanda sína við því í gær að Bandaríkin væru að reyna að sundra Kanada. Markmið þeirra væri að eiga Kanadamenn og bað hann fólk um að greiða atkvæði í atkvæðagreiðslum um mögulegan aðskilnað Alberta-fylkis frá öðrum í Kanada eins og framtíð ríkisins væri í húfi, því það væri nákvæmlega svo.

Erlent
Fréttamynd

Hleypur í skarðið vegna per­sónu­legra mála Reeves

Leikstjórinn Steven Soderbergh mun klára kvikmyndina The Batman: Part II vegna fjölskyldumála leikstjórans Matt Reeves. Fyrri myndin kom út vorið 2022 og átti framhaldið að koma út þremur árum síðar en útgáfunni hefur verið seinkað í þrígang til ársbyrjunar 2028. Ekki hefur komið fram hvers vegna Reeves steig til hliðar en um alvarlegt mál virðist vera að ræða.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur

Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf.

Erlent
Fréttamynd

Á­rásar­maðurinn sex­tán ára

Sá sem skaut þrjú börn á grunnskólaaldri og einn kennara til bana í Oregonríki í Bandaríkjunum í gær var sextán ára. Hann var skotinn til bana af óbreyttum borgara.

Erlent
Fréttamynd

Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon

Minnst þrjú börn og einn fullorðinn féllu í skotárás í Silver Rail-grunnskólanum í Bend í Oregonríki í Bandaríkjunum í dag. Árásarmaðurinn var skotinn til bana, að sögn lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

„Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“

Það var margt um manninn í Kringlunni í hádeginu í dag þegar tímabundin verslun Skims var opnuð. Tugir biðu í röð fyrir utan áður en dyrnar voru opnaðar og bættist í eftir því sem leið á. Viðmælendur fréttastofu voru mjög spenntir fyrir komu merkisins til landsins. Fyrsti karlmaðurinn til að versla var líklegast sá allra spenntasti. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hættir við að skjóta Hasan í beinni

Nidal Malik Hasan verður ekki skotinn til bana í beinni útsendingu. Donald Trump tilkynnti þá ákvörðun sína að hætta við að streyma aftöku hans á netinu en hún hafði verið harðlega gagnrýnd úr ýmsum áttum vestanhafs.

Erlent
Fréttamynd

Mamdani skaut á Man City

Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, segir Manchester City ekki eiga heima í ensku úrvalsdeildinni. Hann skaut á félagið á viðburði vestanhafs í gær.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ó­létt 52 ára

Bandaríska leikkonan Hillary Swank og eiginmaður hennar, Philip Schneider, eiga von á sínu þriðja barni í desember. Swank, sem varð 52 ára í sumar, varð fyrst móðir fyrir rúmum þremur árum þegar hún eignaðist tvíbura. Leikkonan frysti egg sín 37 ára gömul til að geta einbeitt sér að leiklistarferlinum.

Lífið
Fréttamynd

Hófu aftur á­rásir á olíuvinnslur í Rúss­landi

Úkraínumenn gerðu í morgun árás á olíuvinnslu í Ryazan-héraði í Rússlandi. Það var skömmu eftir að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi myndu hefjast á nýjan leik. Úkraínumenn hættu þessum árásum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því einhliða yfir að Úkraínumenn og Rússar hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars.

Erlent
Fréttamynd

Eldur í ráðu­neyti og banka í ó­eirðum í Tirana

Tugþúsundir námsmanna flykktust út á götur Tírana, höfuðborgar Albaníu, í gær til að mótmæla enn á ný. Mótmælin urðu ofbeldisfull og var kveikt í stjórnarráðsbyggingu og tveimur bönkum. Samkvæmt frétt Guardian eru 23 lögreglumenn slasaðir og sex mótmælendur. Þá kemur fram að 35 hafi verið handteknir.

Erlent
Fréttamynd

Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða

Málaliðar á vegum Erik Prince, stofnanda málaliðafyrirtækisins Blackwater, lentu í umsátri í Austur-Kongó í síðasta mánuði. Að minnsta kosti tuttugu málaliðar og hermenn féllu eða særðust í umsátrinu og þar á meðal maður sem barðist í UFC.

Erlent
Fréttamynd

„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“

Söng- og fjölmiðlakonan Kelly Clarkson stendur í stríði við galdrabúð í Brooklyn eftir að henni fannst starfsmaður gefa í skyn að hún hefði ekki efni á vélrænum fugli í búðinni. Eigendur búðarinnar sögðu í yfirlýsingu að fuglinn væri varanleg útsetning og ekki til sölu en annar sambærilegur fugl væri falur. Það væri miður að Clarkson hefði upplifað sig óvelkomna og enn leiðinlegra að aðdáendur hennar hefðu ráðist á búðina á samfélagsmiðlum.

Lífið
Fréttamynd

Brösugleg byrjun hjá nýjum tals­manni Trumps

Katie Zacharia, nýr upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, þykir ekki hafa riðið feitum hesti frá sínum fyrsta blaðamannafundi í gær. Sá fundur stóð yfir í einungis fjórtán mínútur og hún svaraði einungis spurningum frá þremur blaðamönnum og á þeim tíma leit hún ítrekað niður og virtist lesa handrit. Hún muldraði á köflum, ruglaðist á forsetanum og eiginmanni sínum og samstarfsmenn hennar í Hvíta húsinu eru strax byrjaðir að velta vöngum yfir því hve lengi hún geti varið í starfinu.

Erlent
Fréttamynd

Netflix segir upp þúsund starfs­mönnum

Bandaríska streymisveitan Netflix hyggst segja upp þúsund starfsmönnum sínum eða sex prósent af öllu starfsfólki. Um er að ræða mestu breytingar hjá fyrirtækinu síðan árið 2022 en ástæðan er rakin til áhorfstala sem benda til þess að áhorf hafi staðnað hjá fyrirtækinu á undanförnum mánuðum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Á­rásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur

Íranir hafa fjölgað árásum sínum á olíuflutningaskip á Hormússundi og gera árásir á stærra svæði. Þetta hefur skilað nokkrum árangri í vel heppnuðum árásum en markmið Írana er að halda eldsneytisverði háu og reyna þannig að hafa áhrif á þingkosningar í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

Erlent