Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Önnur bandarísk herþota er sögð hafa hrapað á Persaflóasvæðinu í dag. Flugmaðurinn er sagður heill á húfi og ekki í haldi Írana. Erlent 3.4.2026 19:05
Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Artemis-II er liður í Artemis-áætlun Geimferðastofnunarinnar NASA en tunglskotið er sögulegt að mörgu leyti. Geimfarið Orion fór nýlega af braut sinni í kringum jörðina og í átt að tunglinu en óvænt óhapp, sem þykir þó tiltölulega minniháttar, skeði um borð í gær. Erlent 3.4.2026 14:49
Einum úr áhöfninni bjargað Íranski herinn skaut bandaríska herflugvél af gerðinni F-15 yfir miðhluta landsins í dag. Leit að áhöfninni stendur yfir en öðrum áhafnarmeðlimi af tveimur hefur verið bjargað. Erlent 3.4.2026 13:05
New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Verðbólga hefur verið áberandi umfjöllunarefli fjölmiðla undanfarin misseri en nú hefur hún mögulega í fyrsta skipti verið skoðuð frá sjónarhóli pylsuunnenda. Þrátt fyrir að verð nái nýjum hæðum þá hörfa Íslendingar ekki frá þeim góða sið að fá sér eina með öllu. Innlent 2. apríl 2026 09:21
Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Áætlunarflug á rafmagnsflugvélum er hafið í tilraunaskyni bæði í Noregi og Skotlandi. Fyrst um sinn er þó eingöngu flogið með vörur og póst. Erlent 1. apríl 2026 22:11
Fyrsta mannaða tunglskotið frá 1972: Lögð af stað til tunglsins Fjórir geimfarar lögðu í kvöld af stað út í geim þar sem þeir eiga að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta er í fyrsta frá tíma Apollo-áætlunarinnar sem menn eru sendir til tunglsins. Erlent 1. apríl 2026 17:29
Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Donald Trump segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Trump hefur lengi talað gegn bandalaginu og hefur hann virst reiður út í bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að aðstoða ekki við árásir á Íran og koma ekki askvaðandi þegar hann bað um aðstoð við að opna Hormússund aftur. Erlent 1. apríl 2026 10:53
Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Bandarískur dómari stöðvaði í gær byggingu nýs veislusalar við Hvíta húsið. Hann sagði að vinnan mætti ekki halda áfram, án þess að þingið veitti henni blessun sína. Þetta sagði alríkisdómarinn Richard Leon í máli sem verndarsamtök höfðuðu gegn ríkisstjórn Donalds Trump. Erlent 1. apríl 2026 10:01
Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn munu „yfirgefa“ Íran innan tíðar og að hernaðaraðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur. Þá segir hann aðalmarkmiðum hafa verið náð, það er að segja að koma í veg fyrir að Íranir eignuðust kjarnavopn. Erlent 1. apríl 2026 07:04
Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Sjálfstætt starfandi blaðamanni hefur verið rænt í Bagdad, höfuðborg Íraks, og er einn hinna grunuðu tengdur vígahópnum Kataib Hezbollah, að sögn írakskra og bandarískra embættismanna. Erlent 31. mars 2026 22:05
Vilja fresta fyrirtöku á grunni kúlurannsóknar Lögmenn mannsins sem grunaður er um að hafa skotið Charlie Kirk til bana hafa beðið um að fyrirtöku í málinu gegn honum verði frestað um hálft ár. Segjast þeir þurfa tíma til að fara betur yfir sönnunargögn sem tengjast lífsýnum sem fundust á rifflinum sem talinn er hafa verið notaður. Erlent 31. mars 2026 15:50
„Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Donald Trump segir að þau ríki heims sem skorti eldsneyti vegna lokunar Hormússunds og hafi neitað að aðstoða Bandaríkin í stríðinu gegn Íran, standi ein. Forsetinn nefnir Bretland sérstaklega og segir að Bandaríkin verði ekki lengur til staðar fyrir þessi ríki. Erlent 31. mars 2026 12:53
Skoðar að enda stríðið án þess að opna Hormússund Donald Trump hefur sagt ráðgjöfum sínum í Hvíta húsinu að hann sé tilbúinn til að binda enda á stríð Bandaríkjanna gegn Íran, án þess að opna Hormússund fyrir skipasiglingar á nýjan leik. Forsetinn og ráðgjafar hans eru sagðir þeirrar skoðunar að það yrði of tímafrekt að opna sundið með hervaldi og þess vegna vilji hann halda í hluta af upprunalegu markmiðum sínum um að útrýma flota Íran og valda skaða á eldflaugaframleiðslu þar og binda enda á árásir á næstunni. Erlent 31. mars 2026 10:14
Hyggjast tollleggja skipaumferð um Hormuz-sund Íranskir miðlar hafa greint frá því að þingnefnd hafi samþykkt tillögu um að heimta toll af skipaumferð um Hormuz-sund. Samkvæmt fréttastofunni Fars verður sundið lokað skipum frá Bandaríkjunum, Ísrael og öðrum ríkjum sem hafa beitt Íran refsiaðgerðum. Erlent 31. mars 2026 08:14
Andspyrna á Íslandi sé hvatning fyrir þau sem heima eru Hópurinn Indivisible Iceland boðaði til mótmæla á Austurvelli síðustu helgi til að mótmæla aðgerðum Trump í Bandaríkjunum og víða um heim. Um átta milljónir manns tóku þátt í svipuðum No Kings-mótmælum víða um Bandaríkin síðustu helgi. Innlent 31. mars 2026 06:47
Ofsahræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flugtak Ofsahræðsla greip um sig meðal farþega flugvélar Delta Air Lines þegar henni var flogið á loft í Sao Paulo í Brasilíu í gær. Rétt eftir flugtak slökknaði á öðrum hreyfli vélarinnar með miklum látum og hvellum og kviknaði í honum. Engan sakaði þó og tókst flugmönnum flugvélarinnar að snúa við og framkvæma neyðarlendingu. Erlent 30. mars 2026 16:25
Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Fjórum geimförum verður á miðvikudaginn skotið af stað til tunglsins. Þar eiga þeir að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta verður í fyrsta sinn í marga áratugi, frá tímum Appollo-áætlunarinnar, sem menn verða sendir til tunglsins. Erlent 30. mars 2026 15:50
Segir viðræður ganga stórvel en hótar stríðsglæpum Bandaríkjamenn eiga í viðræðum við „nýja og skynsamari“ ríkisstjórn í Íran um að binda enda á árásir á landið. Þessar viðræður hafa skilað miklum árangri, eftir því Donald Trump Bandaríkjaforseti, segir en hann hótar þó umfangsmiklum stríðsglæpum gegn Íran, náist samningar ekki fljótt og verði Hormússund ekki opnað fyrir skipasiglingar á nýjan leik. Erlent 30. mars 2026 14:00
Hera verður ástkona JFK Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad, danskan blaðamann sem átti í ástarsambandi við JFK, í nýrri þáttaröð um uppgang Kennedy-fjölskyldunnar á síðustu öld og hvernig John F. Kennedy komst úr skugga eldri bróður síns. Bíó og sjónvarp 30. mars 2026 13:04
„Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Þrír Bandaríkjamenn með tengsl við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, voru í fyrra sagðir undir eftirliti dönsku leyniþjónustunnar. Voru þeir sakaðir um að eiga í eins konar leynilegri áróðursherferð í Grænlandi og leggja grunninn að mögulegri yfirtöku Bandaríkjanna á eyjunni, eins og Trump hefur ítrekað talað um. Erlent 30. mars 2026 10:37
Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka álögur og skatta á eldsneyti frá og með 1. apríl næstkomandi til þess að létta undir með landsmönnum. Olíuverð er nú í hæstu hæðum vegna stríðsins í Íran og verð á hráolíu er komið yfir 116 dollara á tunnuna. Viðskipti erlent 30. mars 2026 08:29
Enn fer ekki saman hljóð og mynd Donald Trump Bandaríkjaforseti heldur áfram að hafa í hótunum við stjórnvöld í Íran, á sama tíma og hann segir samningaviðræður eiga sér stað, beint og óbeint, og lýsir nýrri forystu landsins sem „sanngjarnri“ (e. reasonable). Erlent 30. mars 2026 06:24
Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Bandaríska landhelgisgæslan hyggst ekki hindra för rússnesks olíuflutningaskips til Kúbu með langþráðar eldsneytisbirgðir þrátt fyrir nokkurra mánaða óformlegt hafnbann á olíuflutninga til landsins. Erlent 29. mars 2026 23:24
Íranir búa sig undir árásir landherliðs Íranir segjast tilbúnir að bregðast við árásum bandarískra landgönguliða sem þeir telja í farvatninu hjá Bandaríkjaher. Forseti íranska þingsins sakar Bandaríkjamenn um að skipuleggja slíkar árásir á sama tíma og þeir þykist opnir fyrir friðarviðræðum. Erlent 29. mars 2026 14:41
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent