Ný sóttvarnarlög samþykkt
Alþingi samþykkti í dag ný sóttvarnalög sem setja nýjan ramma um viðbrögð við farsóttum. Lögin heimila ráðherra að setja reglur um aðgerðir allt frá skimunum og einangrun til bólusetninga og hlífðarbúnaðar, og brot gegn þeim geta varðað fangelsisvist. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir lögin veita ráðherra of vítt svigrúm.