Kínversku nýári fagnað í dag
Kínversku nýári var fagnað ærlega víða í Asíu í dag með flugeldasýningum, skrúðgöngum og öðrum hátíðarhöldum. Ár drekans er nú að baki og ár snáksins er gengið í garð. Samkvæmt kínverskri stjörnuspeki hefur snákurinn ýmsar merkingar en á þó einna helst að vera tákn breytinga með vísan til hamskipta dýrsins.