Áframhaldandi góðviðri spáð á Suðvesturhorninu
Áframhaldandi góðviðri er spáð á suðvesturhorni landsins á næstunni. Janúar mældist snjólaus með öllu í Reykjavík fyrsta sinn í hátt í níutíu ár og á þessum myndum sem Bjarni Einarsson tökumaður tók í dag má sjá að nokkuð vorlegt er um að lítast. Borgarbúar nýttu veðurblíðuna ýmist til þess að fara í reiðtúr, golf eða göngutúr.