Öskubuskusaga sex ár í vinnslu
Glænýja íslenska leikverkið Ormstunga hefur fengið góðar undirtektir síðan það var frumsýnt fyrir rúmlega viku. Um er að ræða óperu, rapp, söngleik sem byggir á Gunnlaugs sögu ormstungu. Ungt fólk á þrítugsaldri er í algjöru aðalhlutverki í uppsetningunni en við ræðum við ungu höfundana sem strituðu í sex ár til að gera þetta að raunveruleika. Við ræðum einnig við unga leikara í þremur stærstu hlutverkunum og Jóa Pé sem var tónlistarstjóri.