Íslenskt flugfólk varð vitni að opinberri aftöku

Starfsmenn íslenskra flugfélaga í pílagrímaflugi í Sádí-Arabíu urðu sumir vitni að opinberri aftöku. Í þætti Kristjáns Más Unnarssonar um pílagrímaflugið í nýrri þáttaröð um Flugþjóðina er rætt við þau Grétar Br. Kristjánsson, fyrrum lögmann Flugleiða, Þuríði Sigurðardóttur, söngkonu og fyrrverandi flugfreyju, og Þóru Guðmundsdóttur, stofnanda Air Atlanta, um þessa óhuganlegu lífsreynslu. Þættina má sjá á streymisveitunni Sýn+. Hér er fjögurra mínútna langt myndskeið.

40
03:41

Vinsælt í flokknum Flugþjóðin