„Hver heldurðu að fljúgi svona, Ómar?“
„Hver heldurðu að fljúgi svona, Ómar?“ segir Ómar Ragnarssson að Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hafi spurt þegar hann kvartaði undan því að Ómar hefði ekki varað hann við því hvernig væri að lenda á hinum alræmda Suðureyrarflugvelli, sem stóð á syllu ofan þorpsins. Í þætti um litlu flugfélögin í þáttaröðinni Flugþjóðin á Sýn+ rifjar Ómar upp sögur úr fluginu með Þórólfi Magnússyni flugstjóra.