Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Lovísa Arnardóttir skrifar 4. nóvember 2026 13:45 Þórir Ingvarsson varðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir netspjallið bjóða upp á auðkenningu og það sé gott að fá afrit af spjalli. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur opnað netspjall á heimasíðunni lrh.is þar sem almenningur getur nú haft samband við þjónustuborð lögreglunnar. Netspjallið var opnað í sumar og hafa þegar hundruð netspjalla farið fram. Hægt er að hafa samband undir nafni, með auðkenningu eða nafnlaust.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að netspjallið sé opið mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 8:30–15:00 og á föstudögum frá 8:30–14:00. Þar geti fólk komið á framfæri fyrirspurnum og fengið aðstoð vegna almennra erinda. Tekið er fram að netspjallið er ekki ætlað fyrir neyðartilvik og að í neyð skuli ávallt hringja í 112. „Það er ótrúlega margt sem fólk er að hringja í okkur með. Fólk er að hringja til að fá tíma í kærumóttöku, vegna þess að það vill fá upplýsingar um hvernig ákveðin mál eru meðhöndluð eða vill koma ábendingum til lögreglu, það er ansi margt,“ segir Þórir Ingvarsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir marga sé þægilegra að eiga samtal eða senda ábendingu í gegnum netspjall. Hægt sé að gera það, til dæmis, í vinnu eða í síma á meðan fólk gerir eitthvað annað. „Það er aðeins annar taktur í netspjalli en í símtali, þetta á að vera alternatívt við símtöl,“ segir Þórir og að netspjallið komi ekki í stað símtala, heldur sé viðbót. Þá segir hann yngri kynslóðir frekar kjósa að eiga samskipti með því að skrifa en tala í síma og það sé tekið mið af því með því að auka þjónustuna með þessum hætti.„Fólk getur verið að gera þetta í símanum eða á vinnustað, án þess að það heyrist í þeim. Svo eru líka aðrir kostir við netspjallið eins og að það er hægt að senda skilaboð og fá svar daginn eftir og að fólk fær afrit af samtalinu í tölvupósti,“ segir Þórir og að þá sé það einnig kostur að ef fólk vill fara lengra með samtalið sé hægt að óska eftir auðkenningu í gegnum island.is og bóka til dæmis tíma í kærumóttökuna þannig. Með þeim hætti sé einnig hægt að fá betri upplýsingar í gegnum netspjallið. Bæta og fjölga þjónustuleiðum Þórir segir „mjúka opnun“ hafa verið á netspjallinu í sumar. Það hafi verið settar upplýsingar um það í símsvara og þau unnið að því að finna bestu leiðirnar til að nýta spjallið. Hann segir lögregluna einnig vera að þróa fleiri stafrænar leiðir til að eiga í samskiptum við fólk. „Þolendur kynferðisbrota geta farið í þjónustugátt og fengið stöðu mála og við erum að skoða hvernig það er hægt að gera þetta í fleiri tegundum mála. Á island.is er hægt að skoða núna punktastöðu og sviptingar og hvenær þeim er lokið,“ segir hann og að þannig sé lögreglan að reyna að stuðla að því að upplýsingar séu aðgengilegri fyrir fólk og að hægt sé að fá svör skjótar. „Fólki finnst stundum erfitt að heyra í okkur og þá hjálpar þetta. Við erum alltaf að reyna að koma betur til móts við fólk og vera með fleiri þjónustuleiðir,“ segir Þórir. Lögreglan meira en lögreglumenn Hann segir lögreglumenn þó ekki svara í netspjallinu heldur þrautþjálfaða þjónustufulltrúa. „Það eru þjónustufulltrúar sem svara, þeir eru vanir að svara á þjónustuborði. Það eru almennt ekki lögreglumenn sem svara í símann, en kerfin eru þannig uppbyggð að við getum alltaf leitað til lögreglumanna ef það eru spurningar sem eru þess eðlis. Lögreglan er miklu meira en lögreglumenn, það er sumt sem þjónustufulltrúar vita miklu meira en lögreglumenn,“ segir Þórir. Hann segir þegar mörg hundruð netspjalla hafa farið fram og fólk hafi almennt verið ánægt með þjónustuna. Þá hafi einnig létt á símanum og auðveldara sé að gefa sér góðan tíma í símtölin þegar færri bíða.
Lögreglan Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira