Erlent

Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á loka­metrunum

Eiður Þór Árnason skrifar
Abdul El-Sayed og eiginkona hans Sarah Jukaku voru að vonum glöð eftir að niðurstaðan varð ljós.
Abdul El-Sayed og eiginkona hans Sarah Jukaku voru að vonum glöð eftir að niðurstaðan varð ljós. aP/Julia Demaree Nikhinson

Demókratinn Abdul El-Sayed sigraði Repúblikanan Mike Rogers í baráttunni um annað öldungadeildarsæti Michigan í þingkosningunum í gær. Hann vakti mikla athygli í kosningabaráttunni og er talinn einn af kyndilberum nýrrar kynslóðar Demókrata og vinstri arms flokksins sem sá framboð hans sem prófraun í einu mikilvægasta sveifluríki landsins.

El-Sayed sigraði þingkonuna Haley Stevens í forvali Demókrataflokksins en hún sneri baki við honum og lýsti yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í Michigan örfáum dögum fyrir kosningarnar. Stevens er nær hinni pólitísku miðju innan Demókrataflokksins en El-Sayed tilheyrir vinstri væng hans. Var þessi ákvörðun Stevens harðlega gagnrýnd af flokksmönnum Demókrata.

Ekki gegnt kjörnu embætti

El-Sayed tekur við þingsætinu af Demókratanum Gary Peters sem bauð sig ekki fram til endurkjörs. El-Sayed er sonur egypskra innflytjenda og verður fyrsti múslimski öldungadeildarþingmaður Bandaríkjanna. Hann starfaði áður sem embættismaður á sviði lýðheilsu og hefur aldrei áður gegnt kjörnu embætti. Hann tapaði forvali Demókrata í Michigan fyrir átta árum með tveggja stafa tölu en fór alla leið þetta árið.

Sjálfur lýsti hann sér sem „ólíklegasta frambjóðandanum“ á kosningafundi í dag þegar hann lýsti yfir sigri í Detroit. „Takk fyrir. Þetta er allt út af ykkur.“

El-Sayed stóð frammi fyrir gríðarlegum fjárútlátum utanaðkomandi aðila, bæði í forvali Demókrata og í sjálfum kosningunum. Hann háði grasrótarbaráttu þar sem hann talaði fyrir greiðara aðgengi að heilbrigðisþjónustu og útilokun utanaðkomandi fjármagns í kosningabaráttu. Þá gagnrýndi hann stríðsrekstur Ísraels harðlega.

Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og þar af fjögurra manna meirihluta í öldungaadeildinni, samkvæmt greiningu AP-fréttaveitunnar. Hefur flokkurinn náð sjö mönnum af Repúblikönum þegar þetta er skrifað en alls var kosið um 35 sæti af 100. 

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn banda­mönnum sínum

Donald Trump Bandaríkjaforseti lét gamminn geisa á samfélagsmiðli sínum um það leyti sem kosninganiðurstöður og spár fóru að birtast í gær. Ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um að reyna að grafa undan trúverðugleika kosninganna en forsetinn segist nú ætla að viðurkenna niðurstöðuna sem hefur verið lýst sem algerum ósigri.

Sögu­legir sigrar í Bandaríkjunum

Keisha Lance Bottoms verður fyrsta svarta konan til að gegna ríkisstjóraembætti í Bandaríkjunum eftir nýafstaðnar kosningar í Georgíu. Hún verður um leið fyrsti Demókratinn til að sitja í ríkisstjórabústað þessa mikilvæga barátturíkis í yfir 25 ár.

Draumur Demókrata að rætast

Demókrataflokkurinn er talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Talning atkvæða er í fullum gangi en línurnar eru víða farnar að skýrast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×