Innlent

Feðgar verið hand­teknir í tengslum við rann­sókn á mann­drápi

Eiður Þór Árnason skrifar
Frá vettvangi árásarinnar en þar er búið að koma fyrir blómum og kertum.
Frá vettvangi árásarinnar en þar er búið að koma fyrir blómum og kertum. Vísir/Viktor Freyr

Íslenskir feðgar eru á meðal þeirra þriggja sem eru í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti í Reykjavík í nótt. Þetta herma heimildir RÚV. Sonurinn sé talinn hafa beitt hnífnum í átökum við tvo menn.

Að sögn RÚV er sonurinn á fertugsaldri og faðirinn tæplega sextugur en ekki liggi fyrir hver aðkoma hins síðarnefnda var. Feðgarnir séu báðir með áverka eftir átökin sem hafi átt sér stað á horni Hraunbergs og Austurbergs.

Mbl.is hefur eftir ónafngreindum heimildum að lögregla hafi fundið árásarvopnið í fjölbýlishúsi í hverfinu síðdegis í dag.

Lögregla greindi frá því fyrir hádegi að karlmaður á fertugsaldri væri látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt. Utandyra hafi fundist tveir menn með alvarlega áverka sem taldir voru hafa verið eftir hnífsstungur. Voru þeir fluttir á slysadeild þar sem annar var fljótlega úrskurðaður látinn. Hinn lægi á gjörgæsludeild. 

Búið er að koma fyrir blómum og kertum á vettvangi árásarinnar.Vísir/Viktor Freyr

Þrír menn voru handteknir annars staðar í hverfinu í tengslum við rannsókn málsins. Þeir eru allir íslenskir líkt og þeir sem urðu fyrir árásinni, að sögn lögreglu.

Vísir/Viktor Freyr
Vísir/Viktor Freyr

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Andlát í Breiðholti til rannsóknar

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt en í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að þrír menn hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×