Handbolti

Atli Steinn kláraði Stjörnuna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Atli Steinn Arnarson átti frábæran dag.
Atli Steinn Arnarson átti frábæran dag. ÍBV

Atli Steinn Arnarson skoraði 14 mörk í sigri ÍBV á Stjörnunni í níundu umferð Olís-deildar karla í handbolta.

Leikur dagsins var jafn og spennandi stærstan part. Garðbæingar voru skrefinu á undan í fyrri hálflelik og leiddu 18-16 þegar hálfleiksflautið gall.

Eyjamenn slógu hins vegar frá sér í byrjun seinni hálfleiks og náðu forystunni. Þeir héldu þeirri forystu allt til loka.

ÍBV bætti við forskot sitt eftir því sem leið á og unnu að endingu fimm marka sigur, 31-26.

Skyttan Atli Steinn Arnarson fór fyrir ÍBV og skoraði heil 14 mörk úr 19 skotum. Ísak Logi Einarsson skoraði tólf fyrir gestina.

Eftir leikinn er ÍBV með tíu stig eftir níu leiki í sjötta sæti deildarinnar en Stjarnan er með fimm stig í níunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×