Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 31. október 2026 13:45 Nýbökuðu foreldrarnir Hrafnhildur Elsa Arnardóttir og Alexander Örn Sævarsson ásamt „Litlu Líf“ sem kom í heiminn við vægast sagt óvæntar aðstæður í gærkvöldi. Aðsend Barn kom í heiminn um borð í bíl á Vesturlandsvegi í gær. Foreldrarnir segjast sjúkraflutningafólkinu sem rétt náði að taka á móti stúlkubarninu afar þakklát.
Hrafnhildur Elsa Arnardóttir og Alexander Örn Sævarsson eignuðust sitt annað barn í gær. Barnið kom þó í heiminn með nokkuð óvenjulegum hætti eða þess heldur á óvenjulegum stað en það fæddist við hringtorg á Vesturlandsvegi um borð í Nissan Leaf-bíl. Nýbökuðu foreldrarnir voru í mat hjá systur Hrafnhildar þegar stutt fór að líða á milli hríða. Þá var ekki annað í stöðunni en að bruna upp á fæðingardeild. En Hrafnhildur og Alexander drifu ekki svo langt. „Við keyrum af stað en náum bara að Kötlu Fitness. Þá byrjar hún [Hrafnhildur] að öskra á mig að stoppa bílinn, að hún sé bara að fara að fæða núna,“ segir Alexander í samtali við Vísi. Foreldrarnir eru afar þakklát starfsfólki Slökkviliðsins á Höfuðborgarsvæðinu og Landspítalans. Aðsend Alexander hafi í kjölfarið hringt á neyðarlínuna og stoppað við hringtorgið við Bauhaus á Vesturlandsvegi. „Ég hringi bara í 112 og óska eftir sjúkrabíl og ég segi að ég sé stopp hjá hringtorginu úti í kanti við Bauhaus, bara annað dekkið uppi á grasinu og bílar að keyra fram hjá. Þá bara þurfti ég að þreifa eftir öllu og gá hvort það væri allt í góðu og þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar.“ Blessunarlega hafi fyrrnefnd systir Hrafnhildar fylgt þeim eftir en hún er bráðahjúkrunarfræðingur. „Þannig það var aðeins betra að fá hana á staðinn,“ segir hann. Tveir sjúkrabílar hafi mætt á staðinn í þann mund sem stúlkan kom í heiminn. „Svo akkúrat þegar hausinn er að fara að koma út þá mæta tveir sjúkrabílar og þetta frábæra starfsfólk rétt náði að taka á móti henni.“ „Svolítið kalt“ Atburðarrásin var mjög hröð en foreldrarnir séu fyrst og fremst afar ánægð og þakklát sjúkraflutningafólkinu. „Við hringjum 19:56 í sjúkrabíl og hún er skráð með fæðingartíma bara 20:04. Ég held að sjúkrabíllinn hafi komið 20:02. Þannig þetta gekk allt eins og í sögu. Fjölskyldunni heilsast vel. Aðsend Þetta var svolítið kaos en við erum bara ógeðslega ánægð með hvernig sjúkraflutningafólkið gerði þetta allt. Þetta var bara yndislegt. En það var svolítið kalt úti þannig að hún var bara hágrátandi og ísköld og við fórum bara beint inn í sjúkrabíl með hana.“ Öllum heilsast vel og eru í „toppstandi“. Sama sé þó ekki að segja um bílinn. „Við þurfum eitthvað að skoða bílinn eftir þetta. En Nissan Leaf-inn dugði í þetta,“ segir Alexander og bæði hlæja. Stúlkan verði því kölluð „Litla Líf“ þangað til hún fær nafn, með vísan í bílinn.
Börn og uppeldi Tímamót Tengdar fréttir Fæddi barn utan við verslun Elko Barn fæddist fyrir utan verslun Elko í Skeifunni í gærkvöldi en Rúv greindi fyrst frá. Að sögn Sigurjóns Hendrikssonar hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu koma atvik sem þetta öðru hverju fyrir og slökkviliðsmenn hafa tekið á móti börnum á ýmsum stöðum. 10. september 2026 14:29 Kom í heiminn á slökkviliðsstöðinni Lítið stúlkubarn kom í heiminn í bílasal slökkviliðsstöðvarinnar í Skógarhlíð í gærkvöldi. Ljósmóðir hafði ráðlagt foreldrunum að koma þar við þegar þeir sáu ekki fram á að ná í tæka tíð á sjúkrahús. 26. september 2020 08:02 Mest lesið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Sjá meira
Fæddi barn utan við verslun Elko Barn fæddist fyrir utan verslun Elko í Skeifunni í gærkvöldi en Rúv greindi fyrst frá. Að sögn Sigurjóns Hendrikssonar hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu koma atvik sem þetta öðru hverju fyrir og slökkviliðsmenn hafa tekið á móti börnum á ýmsum stöðum. 10. september 2026 14:29
Kom í heiminn á slökkviliðsstöðinni Lítið stúlkubarn kom í heiminn í bílasal slökkviliðsstöðvarinnar í Skógarhlíð í gærkvöldi. Ljósmóðir hafði ráðlagt foreldrunum að koma þar við þegar þeir sáu ekki fram á að ná í tæka tíð á sjúkrahús. 26. september 2020 08:02
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið