Keppast um að minnast Stewarts Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. október 2026 09:10 Ian McKellen og Patrick Stewart hafa lengi verið góðir vinir. vísir Fjölmargar stórstjörnur hafa mundað pennann eða lyklaborðið nánar tiltekið og lagt orð í belg til að minnast leikarans Patrick Stewart sem lést á miðvikudag 86 ára að aldri. Þar á meðal er Ian McKellen stórleikari en þeir félagar eru meðal annars hvað þekktastir fyrir að glæða persónurnar Magneto og Charles Xavier úr X-men myndunum lífi.
McKellen birti færslu á Facebook-síðu sinni í nótt þar sem hann ausir lofi yfir hinn látna Stewart og þakkar honum fyrir samfylgdina. „Umfram allt einkennir það Patrick að hafa verið fæddur og uppalinn í Jórvíkurskíri, þeirri stoltu sýslu í norðurhluta Englands sem hann unni fram til hins síðasta. Það mátti nema á hreimnum hans og þeirri sterku hreinskilni sem hann nýtti til að segja þér nákvæmlega hvað honum fannst og hvernig honum leið. Hann var með hjartað á erminni sem gerði hann að manni sem maður gat reitt sig á, dáðst að og í mínu tilviki elskað.“ Leikararnir hafi fyrst kynnst fyrir um fimmtíu árum þar sem þeir störfuðu báðir hjá the Royal Shakespeare Company í London. Fyrsta skýra minning McKellen af Stewart hafi átt sér stað nokkrum árum seinna þegar þeir rákust hvor á annan úti á götu í London. Þá tjáði Stewart honum að hann hafi fengið boð um að taka við aðalhlutverki í Star Trek. Patrick Stewart og Sir Ian McKellen á góðri stundu.vísir „Bandaríkin urðu hans annað heimili, þar sem hann kynntist sinni ástkæru Sunny sem annaðist hann í blíðu og stríðu, í gegnum súrt og sætt. En hann gleymdi aldrei uppruna sínum. Stoltasta afrek hins virtasta og ástsælasta leikara sinnar kynslóðar beggja vegna Atlantshafsins var skipun hans sem rektors Huddersfield-háskóla í Jórvíkurskíri,“ segir McKellen og tekur fram að kveðja Stewart af stóra tjaldinu á enn eftir að koma út og lokar sínum skrifum með því að minnast á Avengers: Doomsday sem kemur út rétt fyrir jól. Fleiri hafa minnst Stewart og þakkað honum fyrir hans góðu verk. Til að mynda má nefna William Shatner sem flestir þekkja sem skipstjóra Kirk úr upprunalegu útgáfu Star Trek frá árunum 1966 til 1969. Patrick Stewart tók síðan við af honum árið 1987 þegar hann gerði Jean-Luc Picard skipstjóra að ógleymanlegri persónu. Shatner lifir Stewart þrátt fyrir að vera forveri hans sem skipstjóri í Star Trek. Hann segir Stewart hafa verið kollega, vin og stórkostlegan leikara. „Kapteinn Picard var holdgervingur þess besta sem mannkynið hefur upp á að bjóða og það var maðurinn sem lék hann einnig. Ég ber mikla væntumþykju og aðdáun í hans garð. Hugur minn er hjá Sunny og fjölskyldu hans. Hans verður sárt saknað.“ Hugh Jackman, sem flestir þekkja sem stökkbreyttu veruna geðþekku Wolverine, minnist Stewart með mynd sem virðist hafa verið tekin við tökur fyrir myndina Logan sem sló rækilega í gegn. „Í dag misstum við risa úr heimi leiksviðsins og hvíta tjaldsins. Að mínu mati einstakan vin og mann. Ég lærði svo margt af honum. Ég mun sakna þín, Patrick Stewart, alla mína daga.“ Seth Macfarlane, maðurinn á bak við Family Guy, Ted og American Dad, minnist Stewarts einnig og þakkar honum fyrir hans góða verk í fyrrnefndum þáttum og mynd. Patrick was one of those icons who we somehow all took for granted would always be with us. I grew up as a fan, and was later gifted the privilege of becoming a colleague and friend, working with him for many years on “American Dad!”, “Family Guy”, and “Ted”. He was that rare actor who could take any bit of dialogue and elevate it, making a good writer sound great, and a great writer sound masterful. He was also as humble as they come. I remember exchanging emails with him a number of years ago when he was beginning day 1 of a new film. He commented to me that he always walked onto a new set feeling like the biggest novice there. My stunned reaction was the same as anyone’s would be. I said, “Patrick, if you feel that way, the rest of us are screwed.” We have lost a legendary actor today, and for many of us, a good friend. He will be deeply missed by the entire planet.— Seth MacFarlane (@SethMacFarlane) October 29, 2026
Andlát Bretland England Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Keppast um að minnast Stewarts Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira