Skoðun

Verum dug­legri að sjá hvert annað

Valdimar Víðisson skrifar

Það er eitt viðfangsefni sem hefur verið mér sérstaklega hugleikið undanfarin misseri. Það er einmanaleikinn. Ekki síst nú þegar daginn tekur að stytta og skammdegið færist yfir. Fyrir mörg okkar er þessi árstími notalegur. Fyrir aðra getur þessi sami tími verið erfiður. Kyrrðin verður meiri, kvöldin lengri og fjarvera annarra sárari.

Ég hef alla tíð haft mikla ánægju af því að vera í kringum fólk. Mér finnst fátt dýrmætara en mannleg samskipti en að mínu mati eru mannleg samskipti ein mikilvægasta undirstaða góðs samfélags.

Það er sárt að hugsa til þess að á sama tíma og aldrei hefur verið auðveldara að ná sambandi við annað fólk þá upplifa of margir að þeir hafi engan til að tala við.

Það er hægt að vera umkringdur fólki en upplifa sig samt einan.

Einmanaleikinn spyr ekki um aldur

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin birti árið 2025 umfangsmikla skýrslu um einmanaleika. Þar kemur fram að um einn af hverjum sex einstaklingum í heiminum upplifi einmanaleika. Samkvæmt mati stofnunarinnar tengist einmanaleiki yfir 871 þúsund ótímabærum dauðsföllum árlega.

Þetta eru sláandi tölur. Á bak við hverja tölu er manneskja, einstaklingur með sögu, tilfinningar, vonir og væntingar.

Einmanaleikinn spyr ekki um aldur. Hann getur fylgt barninu sem finnur sig ekki í hópnum, unglingnum sem upplifir sig utangarðs, einstaklingnum sem missir maka eða þeim sem stendur á tímamótum í lífinu.

Það sem gerir einmanaleikann svo erfiðan er meðal annars hversu ósýnilegur hann getur verið. Við vitum nefnilega ekki alltaf hvað býr að baki brosinu. Sá sem virðist glaður og félagslyndur getur farið heim í tómt hús og upplifað mikla einsemd.

Við tölum mikið um mikilvægi hreyfingar, mataræðis og þess að hugsa vel um líkamann. Allt er þetta mikilvægt. En við þurfum líka að hugsa um félagslega heilsu okkar. Að eiga einhvern að, að tilheyra, að finna að maður skipti máli.

Við lifum á tímum þar sem við mælum ótrúlega margt. Fylgjendur, læk og áhorf. En við mælum sjaldnar hversu margir eiga einhvern sem þeir geta hringt í þegar lífið verður erfitt. Einhvern sem hlustar án þess að dæma.

Þegar allt kemur til alls eru það einmitt þessi tengsl sem skipta mestu máli. Ekki hversu margir fylgjast með lífi okkar í gegnum miðlana heldur hversu margir taka raunverulegan þátt í því.

Það þarf svo lítið til að breyta svo miklu

En hvað getum við gert? Hvernig getum við brugðist við þessum þögla vanda sem snertir svo marga?

Svarið byrja hjá okkur sjálfum. Við þurfum að gefa okkur tíma til að rauverulega sjá fólkið í kringum okkur. Ekki bara heilsa í flýti heldur staldra við. Við þurfum að spyrja hvernig fólki líður og vera tilbúin að hlusta.

Við getum hringt í einhvern sem við höfum ekki heyrt í lengi. Boðið nágranna í heimsókn, tekið nýjum samstarfsfélaga opnum örmum eða boðið þeim sem stendur utan hópsins að vera með.

En við megum heldur ekki leggja alla ábyrgðina á þann sem upplifir einmanaleika. Það er auðvelt að segja fólki að fara út, hitta aðra eða taka þátt í félagsstarfi. En fyrir þann sem hefur lengi verið einn getur slíkt verið gríðarlega stórt skref.

Þess vegna þurfum við hin að vera tilbúin að stíga skrefið á móti. Ekki bara segja „þú ert alltaf velkominn“, heldur mæta, bjóða með og fylgja viðkomandi inn í hópinn. Stundum er munurinn á því að tilheyra og standa fyrir utan einfaldlega sá að einhver tekur utan um mann og segir: „Komdu, vertu með okkur.“

Höfum í huga að eitt boð eða eitt símtal leysir ekki endilega vandann. Mannleg tengsl verða til með tíma, nærveru og því að sýna aftur og aftur að okkur sé ekki sama.

Þarna skiptir samfélagið allt máli. Skólar, vinnustaðir, félagasamtök og nærumhverfið okkar þurfa að vera staðir þar sem fólk finnur að það tilheyri.

Lífið getur verið erfitt, stundum ósanngjarnt og við göngum öll í gegnum tímabil þar sem reynir á. En við höfum val um hvernig við mætum öðru fólki. Við getum valið hlýju fram yfir afskiptaleysi, áhuga fram yfir áhugaleysi og samveru í raunheimum fram yfir samveru í gegnum miðlana.

Við getum breytt ótrúlega miklu með litlum hlutum. Við þurfum ekki að hafa öll svörin eða leysa öll vandamálin. Við þurfum fyrst og fremst að vera til staðar fyrir hvert annað.

Kannski er einhver í kringum okkur sem hefur beðið lengi eftir símtali. Kannski er einhver sem langar að vera boðið með en þorir ekki að spyrja. Kannski er einhver sem þarf einfaldlega að heyra að hann skipti máli.

Verum manneskjan sem hringir. Manneskjan sem býður. Manneskjan sem tekur eftir.

Við vitum aldrei hvaða baráttu fólkið í kringum okkur er að heyja. En við vitum að hlýja og umhyggja geta skipt sköpum.

Nú þegar skammdegið færist yfir er gott að minna sig á að við getum ekki alltaf lýst upp dagana hjá öðrum en við getum gert þá hlýrri. Ef við getum með nærveru okkar gert lífið aðeins bjartara fyrir eina manneskju þá höfum við þegar gert eitthvað sem skiptir máli.

Þegar öllu er á botninn hvolft snýst lífið ekki bara um dagana sem við lifum heldur fólkið sem við deilum þeim með.

Enginn á að upplifa að hann skipti engu máli.

Valdimar Víðisson, skólastjóri Húsaskóla og bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirð




Skoðun

Sjá meira


×