Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Birgir Olgeirsson skrifar 26. október 2026 14:29 Tæplega kílómetra langur kafli Oxford Street í London er nú göngugata. Þar er akstur bíla, strætisvagna, leigubíla og reiðhjóla bannaður. Vísir/EPA Tæplega kílómetra löngum kafla Oxford Street í London var í dag lokað fyrir bíla, strætisvagna, leigubíla og reiðhjól. Breytingin er liður í áformum um að glæða eina þekktustu verslunargötu Bretlands nýju lífi.
Reuters greinir frá því að lokunin sé varanleg og marki fyrsta skrefið í víðtækari endurnýjun svæðisins. Samkvæmt AP-fréttastofunni nær göngukaflinn frá Orchard Street að Great Portland Street. Á næsta ári á að bæta við rúmlega fimmtíu trjám, yfir hundrað sætum og tveimur torgum við Oxford Street.Vísir/EPA „Þetta eru tímamót fyrir London, tímamót fyrir Oxford Street. Þetta er upphafið að breyttum tímum,“ sagði Sadiq Khan, borgarstjóri London, að því er AP hefur eftir honum. Vilja snúa við hnignun götunnar Financial Times fjallar um erfiðan áratug að baki verslunargötunni. Lokanir stórverslana á borð við Debenhams og House of Fraser og síðar heimsfaraldurinn hafi sett mark sitt á svæðið. Auðum verslunarrýmum fjölgaði og lægri leiga laðaði að minjagripa- og sælgætisverslanir. Það hafi ýtt undir ímynd götunnar sem svæðis á undanhaldi. Borgaryfirvöld vilja glæða verslunarlíf við Oxford Street nýju lífi. Sumir íbúar óttast þó að lokunin leiði til aukinnar umferðar á nærliggjandi götum.Vísir/EPA Blaðið segir þó að trú fyrirtækja á svæðinu hafi aukist á ný. Auðum verslunarrýmum hafi fækkað verulega og alþjóðleg vörumerki fjárfesti þar nú í nýjum verslunum. Íbúar óttast aukna umferð AP greinir frá því að áformin hafi mætt andstöðu íbúa sem óttast að umferð verði beint inn í hverfin þeirra þegar hún hverfur af Oxford Street. Samkvæmt Reuters verður framkvæmdum stillt í hóf fyrir jól, þegar verslunin er hvað mest. Á næsta ári er meðal annars stefnt að því að bæta við rúmlega fimmtíu trjám, yfir hundrað sætum og tveimur torgum.
England Samgöngumál Bílar Göngugötur Bretland Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira