Viðskipti innlent

Ella frá Marel til Lands­bankans

Samúel Karl Ólason skrifar
Elín Gränz eða Ella.
Elín Gränz eða Ella.

Elín Gränz hefur verið ráðin sem mannauðsstjóri Landsbankans. Hún starfar í dag sem mannauðsstjóri rekstrarsviðsins Meat & Prepared Foods hjá JBT Marel, með ábyrgð á mannauðsmálum í Evrópu og Norður-Ameríku en hefur störf hjá Landsbankanum í upphafi næsta árs.

Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að Ella búi yfir 25 ára reynslu af mannauðsmálum, rekstri og breytingastjórnun.

Áður en hún fór að vinna sem mannauðsstjóri Meat & Prepared Foods var hún mannauðsstjóri hjá Marel. Þar tók hún þátt í uppbyggingu rekstrareiningarinnar Retail and Food Service Solutions. Hún hefur gegnt mannauðsstjórnunarstörfum hjá deCODE genetics og Hörpu og var framkvæmdastjóri mannauðs og innri þjónustu hjá Opnum kerfum, samkvæmt áðurnefndri tilkynningu.

Ella er með MBA-gráðu, meistaragráðu í mannauðsstjórnun og BSc-gráðu í viðskipta- og alþjóðamarkaðsfræði. Hún hefur jafnframt lokið diplómanámi í markþjálfun og viðurkenndum stjórnarháttum. Ella hefur setið í ýmsum stjórnum og ráðum í gegnum tíðina og situr nú í stjórn Marel ehf. og fulltrúaráði Birtu lífeyrissjóðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×