Erlent

Enn einu skipinu sökkt á Svarta­hafi

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot úr myndbandi frá vettvangi. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað.
Skjáskot úr myndbandi frá vettvangi. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað.

Björgunaraðgerð stendur nú yfir undan ströndum Rúmeníu þar sem flutningaskip er á hvolfi og marar í hálfu kafi eftir að eldur kviknaði þar um borð. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað eftir að skipinu hvolfdi en yfirvöld í Rúmeníu segja skipinu hafa verið sökkt með rússneskum dróna.

Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, sakaði í morgun Rússa um að bera ábyrgð á því að skipið hefði sokkið. Hann sagði Rússa vera að fjölga árásum sínum á svæðinu og um væri að ræða hluta af stigmögnun Rússa vegna innrásarinnar í Úkraínu.

Rússar hafa verið sakaðir um fjölda árása og ógnana innan Evrópu á undanförnum mánuðum.

Tíu Úkraínumenn og þrír Aserar eru í áhöfn skipsins en verið var að sigla því frá Tyrklandi til Sulina í Rúmeníu. Skipið, sem heitir Khoryv og er skráð í Comoros, var statt rúma tuttugu kílómetra austur af Costanta þegar því hvolfdi.

Myndefni sem hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum sýnir það mara í hálfu kafi í morgun. Veður hefur gert björgunarstörf erfið.

Rússar hafa gert árásir á þó nokkur flutningaskip á svæðinu, innan efnahagslögsögu Rúmenía og Búlgaríu, NATO-ríkja, á undanförnum dögum. Samkvæmt AP-fréttaveitunni eru árásirnar orðnar að minnsta kosti sjö í þessum mánuði. Þetta yrði þá áttunda árásin.

Að minnsta kosti tveir eru látnir og 25 er saknað eftir þessar drónaárásir.

Fréttin hefur verið uppfærð með ummælum forseta Rúmeníu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×